Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Blaðsíða 2
2 ~ir\c\c CV3C-' '19. OKTÓBBR 2005 Fyrst og fremst 3JV Útgáfufélag: 365 - prentmiðlar Rltstjórar: Jónas Kristjánsson og MikaelTorfason Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvlk, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar:515 7599- Ritstjórn: 550 5020 Fréttaskot 550 5090 Rltstjóm: ritstjorn@dv.is Auglýsingan auglysingar@dv.is. Setning og umbrot: 365 - prentmiðlar. Prentvinnsla: isafoldarprentsmiðja. Dreifing: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og úr gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. tevtMgyu™- ingin. Þvf hef ég ákveflið að vera þakklátur (staöinn. Fyrst vil ég þakka Þóru Tómasdóttur og Rikissjónvarpinu fyr- ir afl sýna tveggja ára syni mfnum fyrsta moröiö sitt f sjón- varpinu. Þóra var með viðtal við rokk- leikarann Juliette Lew- is f Kastljósi og valdi að sýna eitt Iftiö og sætt morö úr of- beldisrúnki Olivers Stone, Natural Bom Killers, til að fólk fattaði hvaða kona þetta væri. Smáböm eru ennþá vakandi og gónandi á kassann á þessum tfma. Atriðið var nokkuð subbulegt, Woody Harrelson skaut gengilbeinu sem féll f gótfið og braut kaffikönnu. Syni mfnum varð svo mikið um að hann fór aö grenja og hljóp f fang- ið á mér. Þegar hann verður þrett- án ára verður hann samkvæmt tölfræði búinn aö sjá 8000 morö á skjánum og þvf gott að rlkiö byrji snemma að venja hann við. Tlnnubergi fyrir að flýta sér hægt Til hvers Ifka að vera alltaf meö þennan asa? Starfsmenn Tinnubergs grófu upp götuna hjá mérfsumarog hafatekiðsér allan tfmann f heiminum til aö klára verkið. Um aðgeraaöfarasér hægt enda fátt skemmti- legra en að vaða sand og mold heim að dyrum og skemmtilega krefjandi aö reyna að leggja bfln- um án þess að hann detti ofan f holu. Þá er hávaði f vinnuvélum alftaf indæll. Ég vil Ifka þakka fyrir skiitið sem fyrirtækið setti upp f sumar þegar framkvæmdir hófust en þar stendur að áætluð verklok séu 1. september. Gott að menn séu með þetta svona nákvæmt Leiðari Jónas Kristjánsson „Hér þykjnst allir vera góðir, elslca guð og ndttiír- una,fátœlcafólkið og félagslegan rétttrúnað, en gera Itið gagnstœða. “ Þjóð hræsni og helgislepju Við þykjumst vUja vera góð við útlend- inga, en tmdir niðri erum við rasistar. Við höfum notað þá sem afgangsstærð í fiskvinnslu og rekum þá umsvifalaust, þeg- ar okkur hentar. Við sættum okkur við þrælahald í starfsmannaleigum við Kára- hnjúka undir verndarvæng Vinnumála- stofnunar Framsóknar. Við viljum, að alþingismenn noti háls- bindi í vinnunni, þótt margt ungt fólk hafi þá viðmiðunarreglu að treysta engum, sem hefur hálsbindi. Við tölum á hátíðarstund- um um starf kennara og fóstra sem hom- stein þjóðfélagsins, en túnum ekki að borga þeim kaup. Þannig em vegir hræsninnar á ís- landi. Við megum ekki vatni halda yfir ást okkar á kvenréttindum. Samt gengur ríkið fram fyrir skjöldu með því að skfigreina kvenna- stéttir sem láglaunafólk. Þetta er ein birting- armynd þess, að ráðherrar hafa tvö Janusar- andÚt. Hjá borginni lofa menn ókeypis leik- skólum, en geta samt ekki mannað skólana. Við jesúsum okkur yfir neyzlu fíkniefna, meðan ríkið sjálft selur fíkniefni á okur- verði, sum í sérstökum verzlunum og önnur undir diskinum í sjoppum. K Apótekumm er svo falið að k (keifa fíknieftium, sem Iæknar ávísa. Aðalatriði * ríkisins er, að eimmgis [ það sjálft eða viðurkennd- 1 ir aðilar selji efnin. Við höfum stjóm- málaflokk, sem dásamar einkaframtakið og markaðshagkerfið, en hefur samt ofurtrú á kommissömm og reglugerðum og ræður skipulega ónytjunga í rfldsembætti til að passa upp á hagsmuni sína. Þessi flokkur vill eindregið skipa velferðamefndir, en sker framlög niður við trog. Öll tölum við um, að landið sé fagurt og frítt, loftið sé heilnæmt og vatnið bezt í heimi, en höfúm engan áhuga á náttúmnni annan en þann að nýta hana sem mest og nauðga, samanber áhugann á risavirkjun- um, raflínum og opnum sandnámum. Við höfum afstöðu nauðgarans til náttúrunnar. Við segjumst elska sannleikann, en blaða- menn em samt í hreinum erfiðleikum í við- tölum, af því að sumir viðmælendur tala tóma lygi, ekki sfzt þeir, sem fremst standa í viðskiptum og stjómsýslu. Við emm sam- safit lygalaupa, sem segja bara „gengur bet- ur næst“, ef upp um okkur kemst. Hér þykjast allir vera góðir, elska guð og náttúruna, fátæka fólkið og sjálfan sannleik- ann, en gera hið gagnstæða. Á íslenzku heit- ir allt lff okkar hræsni og helgislepja. Bla bla bla bla bla... Að lokum vil ég þakka fólki sem kann ekki að vera f biðröð og sér- staklega kassafólki sem kann ekki heldur á biðröð. Þetta gerist nær alltaf þegar ég fer út (búö: Ég er í biðröð viö kassa. Fyrir framan mig er gamalmenni sem hefur kosið að borga með krónupeningum. Hefst nú talningin. Röðin lengist fyrir aftan mig.Þáeropnaður nýr kassi við hlið- ina en f staðinn fyrir að ég fari á þann kassa treðst liðið sem var kom- ið fyrir aftan mig á kassann. Kassadýrið þar byrjar umsvifalaust aö afgreiða frekjurnar f staðinn fyrir að segja: „Augnablik, þessi myndarlegi maður þama er næstur." En kannski er þetta bara mér að kenna. Lögmál frumskógarins gilda vfst lika f Bónus. ■o Á MEÐAN aldraðir eiga vart fyrir mat og liggja á hjúkrunarheimilum með tólf sentímetra á milli rúma kemur Jón Kristjánsson heilbrigðis- ráðherra fram í Kastljósi til að veija ástandið. Vöm hans er engin. Hann talar lágt, fátt heyrist og það sem heyrist skilst ekki. Hann segir í raun ekki annað en bla, bla, bla, bla. NEMA HVAÐ. Jón Kristjánsson sætt- ir sig ekki við að heilabilaðir séu hafð- ir á stofum með óheilabiluðum vegna þess að það brýtur í bága við lög. Úr því lofar Jón Kristjánsson að bæta. Hann veit bara ekki hvemig og getur fyrir bragðið ekki útlistað það nánar. Segir bara bla, bla, bla, bla. ÞETTA KVÖLD em aldraðir að deyja úr eymd en sjónvarpsáhorfendur að sofna úr leiðindum. Jón Kristjánsson getur ekki veitt öldmðum sómasam- legan aðbúnað. Hann getur heldur ekki haldið sjónvarpsáhorfendum vakandi. Vegna þess að kjör aldraðra verða aldrei bætt né athygli sjón- varpsáhorfenda haldið með því einu að segja bla, bla, bla, bla. STJÓRNMÁLAMENN þurfa að vera kjarkmiklir. Ráðherrar sterkir. Jón Kristjánsson er hvomgt. Þess vegna tekur harm ekki á vandamáli sem æpir á þjóðina sem öll sem ein vill það eitt að eitthvað verði gert. En Jón Kristjánsson segh aldrei neitt. Nema kannski í Kastljósinu þar sem hann segir bara bla, bla, bla, bla. ÞJÓÐIN ÞARF heilbrigðan heUbrigð- isráðherra. Ekki pólitíkus með svefn- Fyrst og fremst sýki. Kastljósmaðurinn Krislján Kristjánsson á þó hrós skilið fyrir að hafa tekist að halda sér vakandi á meðan á sjónvarpsviðtalinu við hinn Kristjánsson stóð. Þjáist Krist- ján þó sjálfur af svefnsýki eins og hann hefur lýst í fjölmiölum. En í A góðri stund Jón Kristjánsson prúðbú inn með eiginkonu sinni í Perlunni. Tómasarhagi 32 Heim- ili heilbrigðisráðherra þar sem alltafbíða heitar máltíðir á meðan eftir- launasjóðurinn bólgnar. sumum vekjaraklukkum heyrist reyndar eitthvað sem líkist bla, bla, bla, bla. 0RÐ VE0A misþungt. Orð Jóns Kristjánssonar vega þó minnst þeg- ar málefni aldraðra em annars veg- ar. I orðum Jóns em aðeins þrír i stafir; b og 1 og a; bla, bla, bla. Dagur sér Ijósið Mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar væm „stórkarlaleg og gamaldags lausn inni í miðri borg, sem yrði á kostn- að nærliggjandi íbúahverfa," segir Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi í viðtali við Mogga. „íbúðahverfin em að verða eins og umferðareyjar mitt í umferðarhafinu.“ Merkilegt er, að hinum rótmtn- tíska borgarfulltrúa skuli ekki hafa dottið þetta í hug, þegar gerð voru slík gatnamót á Hringbraut og á nokkrum stöðum á Kringlumýrar- braut og Reykjanesbraut. Efhonum Dagur Skilur ekkert i afhverju Fteykja- vikurlistinn hefur látið reisa mislæg gatnamót. hefði dottið þétta fyrr í hug, hefði borgin sparað „stórkarlaleg og gamaldags" mannvirki. Kýrnar í strætó „Mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar mundi að- eins færa vandamálið til. Það mundi færast niður að gatnamót- um Lönguhlíðar og Miklubrautar og nærlæg gatnamót", segir Dagur B. Eggertsson í viðtali við Mogga. „Ákveða þyrfti að setja mislæg gatnamót á öll næstu götuhorn." Merkilegt er, að hinum róman- tíska borgarfulltrúa skuli ekki hafa dottið þetta íhug, þegar gerð voru slík gatnamót á Hringbraut og á nokkrum stöðum á Kringlumýrar- braut og Reykjanesbraut. Þá væri gaman að lifa íReykjavík, eigendur blikkbelja fengju gúmoren ogmenn og kýr færu ístrætó.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.