Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.01.1945, Qupperneq 3

Símablaðið - 01.01.1945, Qupperneq 3
mmicxi bladid Útgefandi: Félag íslenzkra símamanna. Reykjavík 1945 1.—2. tbl. Símablaðið finnur ástæðu til að afsaka og gera grein fyrir hinni strjálu og óregluleg'u útkomu þess undanfarið. En sannleikurinn er sá, að það hefur haft við sömu örðugleika að striða og ýms önnur blöð og tímarit, sem sjálf eiga ekki prentsmiðju. En prentsmiðjurnar hafa verið yfirhlaðn- ar af verkefnum. Og timaritin, — þau minni, — liafa orðið að sætta sig við það, að vera prentuð eftir því, sem á hefur staðið í prentsmiðjunum. Við horð lá, að síðasta jólablað Símablaðsins kæmist ekki út fyrr en eftir áramót og tókst með harðneskju að bjarga þvi við, með því að fá það prentað í þrem prentsmiðjum. — Er slikt vitanlega neyðarúrræði. Um síð- astliðin áramót sagði Félagsprentsmiðjan upp öllum tímaritum nema Sima- blaðinu. — Þó var fyrirsjáanlegt, að í ár myndi ekkert breytast til batnaðar uni prentun þess. Var því reynt að tryggja prentun þess til frambúðar í öðrum prentsmiðjum, — og um það nokkur von, fram á sumar, en þá brást hún. I von um að innan skamms breytist þetta ástand til batnaðar, varð að samkomulagi, milli prentsmiðjustjóra Félagsprentsmiðjunnar og' Símabl., þegar vonlaust var um samninga við aðrar liinar stærri prentsmiðjur, — uð prenta það þar áfram. I ár eru 30 ár frá því að Símablaðið bóf göngu sina. Var það ætlun fitstjórnarinnar, að 1. tbl. yrði afmælisblað, og kæmi út í apríl, eins og 1. tbl. 1915, — en vegna útgáfu-örðugleikanna varð að hverfa frá því. 1 stað þess mun jólablaðið, — sem verður síðasta blað 30. árgangs, —- helgað minn- mgu þess. Væntir ritstjórnin, að félagar sendi greinar tii birtingar í þvi blaði.

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.