Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1957, Síða 10

Símablaðið - 01.01.1957, Síða 10
8 S IMABLAÐIÐ Á skemmtikvöldi. stöðvarstjóraembætta var að ræða á ritsímastöðvum. En er svo nú? Hvað segir hin síðasta slík stöðuveiting og inn- stilling starfsmannaráðs til hennar? Á ég þar við stöðvarstjórastöðuna í Vest- mannaeyjum. Gömlum og reyndum sím- riturum er skákað þar til hliðar og að litlu metnir. Þjónustualdurinn er hér að engu hafður. Ekki er þetta til að auka áhuga eða starfsgleði hjá hinum eldri mönnum, velvild eða traust til yfir- mannanna. Vekur aðeins beiskju, sem von er. Sumir segja að símritarana skorti tækniþekkingu í notkun hinna nýju véla. En fullyrða má að þeir hafa miklu meiri reynslu á afgreiðsluháttum yfirleitt og eru þessvegna betur undir- búnir til að taka að sér stöðvarstjóra- störfin, heldur en hinir, sem aldrei að neinni ritsímaafgreiðslu hafa komið, þó ef til vill megi segja að þeir séu eitthvað betur að sér á sviði tækninnar. Nú virðist sækja í það horf, að yfir- varðstjórastöðurnar verði eina von sím- ritaranna um viðurkenningu fyrir langt starf í þessari grein. En þær eru nú ekki nema tvær, og hvernig er nú litið til þeirra. Hafa þeir fengið lagfæringu sinna mála? Nei, það mun ekki vera. Mál þeirra hefir þvælst fyrir, og er nú að lokum komið í sjálfheldu vegna þess, að óskyldum málum hefir verið blandað inn í. Báðir yfirvarðstjórarnir hafa unn- ið milli þrjátíu og f jörutíu ár hjá lands- símanum, hafa þeir því sérstöðu fram yfir hina yngri menn, sem talið er að þurfi að hækka í launum. Báðir þessir menn eru með hæfustu starfsmönnum landssímans og hefði verið í lófa lagið fyrir þá að vera búnir að fá umdæmis- stjórastöður, hefðu þeir sótzt eftir því, en þeir hafa heldur kosið að vinna á- fram við ritsímann þó þeir hefðu þar lakari kjör og meira erfiði en ella. (* Á þetta ber að líta og meta að verðleik- um, því svo lítur út að varðstjórastöð- urnar séu einu hækkunarstöðurnar sem okkur standa til boða. Að síðustu: Ef reka á stofnun eins og landssímann, svo vel eigi að fara, verð- ur að ríkja fullur skilningur og sam- starf milli allra aðila. Yfirmennirnir verða að gera sér meira far um að kynnast hinum einstöku starfsgreinum fólksins, meira lífrænt samband þarf að skapast milli undir og yfirmanna. Hátækni er góð og sjálfsögð, en skiln- ingi og velvild má ekki gleyma. Sæm. Símonarson. *) Þetta mál hefur nú verið leyst. Freistingin á símaafgreiðslunni ÞaS væri meir’ en meSalhnoss, maSur, — ef henni beint af munni fengi’ ég í leyni frjálsan koss og faSmlög blíS hjá ungmeyjunni. ABC.

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.