Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1973, Blaðsíða 6

Símablaðið - 01.01.1973, Blaðsíða 6
skrá á árinu. En eins og fram kom í skýrslu framkvæmdastjórnar frá fyrra ári, hafði félagið komið í veg fyrir einhliða breyt- ingar stofnunarinnar á vöktum á allmörg- um vinnustöðum. Nokkrar viðræður höfðu átt sér stað um vinnutíma vaktafólksins, en samkomulag ekki tekizt, þar sem stofnunin taldi sig ekki hafa heimild til þess að sem.ia um niðurfellingu kaffitíma, en félagið taldi bað hins vegar forsendu þess að samkomulag gæti tekizt um breyt- ingar á vöktum. Á s.l. hausti voru svo teknar unp nýjar viðræður, þar sem stofn- unin ha^ði þá fengið heimild til að verzla með kaffitímana. í framhaldi af því sam- þykkti vaktavinnufólkið nokkrar breyting- ar á vöktunum nokkru fyrir áramótin. Sendimenn ritsímans komu að máli við stjórn félagsins og óskuðu eftir milligöngu hennar um, að beir fengju leiðréttingu. þar sem beir töldu, að þeir skiluðu lengri vinnutíma en þeim bæri. Athuffun leiddi í ljós, að þeir höfðu verið látnir skila 2 klst. meira á mánuði en þeim bar. Var þetta leiðrétt og lofað greiðslu fyrir þann vinnutíma, sem umfram var, bau tvö ár aftur í tímann, sem þetta hafði staðið. STARFSMANNARÁÐ LANDSSÍMANS Eins og fram kom í síðustu ársskýrslu, höfðu komið fram eindregnar óskir frá Póstmannafélagi fslands um, að póstmenn fengju aðild að Starfsmannaráði Lands- símans. Var hugmynd þeirra sú, að í ráðið bættust, 2 fulltrúar frá P.F.f. og 2 frá póst- inum. F.f S. taldi ekki óeðlilegt, út af fyrir sig, að oóstmenn fengju aðild að Starfs- mannaráði. en lagði til, að fram færi heild- árendurskoðun reglugerðarinnar um ráðið. Mál þetta lá að mestu leyti niðri í heilt ár, en í lok septembermánaðar s.l. barst félaginu bréf frá samgönguráðuneytinu. þar sem segir, að ráðuneytið hafi ákveðið að taka til endurskoðunar gildandi reglur um Starfsmannaráð Landssímans, með það fyrir augum að koma á fót sameiginlegu starfsmannaráði fyrir Póst & Síma, með aðild beggja félaganna. 4 Hafði ráðunevtið ákveðið að skipa nefnd til að gera tillögur í málinu og yrði hún þannig skipuð, að póst- og símamálastiórn tilnefndi 2 fulltrúa og F.Í.S. og P.F.f. 2 fulltrúa hvort, en ráðuneytið skipaði for- mann nefndarinnar. F.f.S. tilnefndi þá Sæ- mund Símonarson og Jón Kárason í nefnd- ina og Biarna Olafsson sem varamann. Sjónarmið F.f.S. fengu til að byrja með lítinn sem engan hljómgrunn í nefndinni, og á fundi framkvæmdastjórnar 12. des. var ákveðið, þar sem að ljóst væri, að samkomulagsgrundvöllur væri ekki fyrir hendi í nefndinni og framkomnar tillögur með öllu óhæfar, að fulltrúar félagsins Félagsmenn vinna við byggingu sumar- húsa F.Í.S. við Apavatn. í nefndinni hættu þar störfum að óbreytt- um málavöxtum. Olli ákvörðun þessi miklu fjaðrafoki, en vegna sérstakra óska sam- gönguráðherra endurskoðaði stjórn félags- ins afstöðu sína gagnvart starfi fulltrúa sinna í nefndinni. Á fundi nefndarinnar í lok desember lögðu fulltrúar F.Í.S. fram heildartillögu frá félaginu að reglugerð um Starfsmanna- ráð Pósts & Síma. Eftir framkomu tillagna F.f.S. taldi nefndin eðlilegt, að Póstmannafélagið leit- aði samkomulags við F.Í.S. um málið. Einn viðræðufundur hefur farið fram milli fé- laganna án þess að samkomulag hafi tek- izt. SÍMAB LAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.