Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1973, Page 14

Símablaðið - 01.01.1973, Page 14
á ári, fari lækkandi í framtíðinni og brott- flutningur fólks úr landi verði sá sami og á árunum 1961-1970. Samkvæmt þeim for- sendum yrði fjöldi landsmanna 273 þúsund í árslok 2001. I annarri áætluninni er gengið út frá þeim forsendum, að fæðingatíðnin verði sú sama og árið 1970 og brottflutningur fólks úr landi eins og á árunum 1961-1970. Samkvæmt þessu yrðu landsmenn alls 299 þúsund í árslok 2001. Þriðja spáin miðast við, að fæðingatíðn- in verði sú sama og 1970, en brottflutn- ingur og aðflutningur fólks vegi hvor ann- an upp. Samkvæmt því yrði fjöldi lands- manna 319 þúsund í árslok 2001. Þá skal hér ennfremur bent á grein í tímaritinu Sveitastjórnarmál, 1.-2. tbl. 1958, en þar er komizt að þeirri niður- stöðu, að áætlaður mannfjöldi á íslandi verði 374 þúsund árið 2000. Eins og sést á þessu ber nokkuð á milli hinna tveggja aðila og fyrri hluta greinar minnar i Símablaðinu, jól 1972, um mann- íjölda hér á landi um næstu. aldamót: • Framkvæmdastofnun ríkisins (sbr. dag- bl. Tíminn); 273, 299 eða 319 þúsund i árslok 2001 (prentvilla?). Meðaltal 297 þúsund. © Sveitastjórnarmál, 1.-2. tbl. 1958: 374 þúsund árið 2000. ® Fyrri hluti þessarar greinar í Símablað- inu, jól, 1972: 330 þúsund 1.1. árið 2000. Áætlun gerð vorið 1972. STARFSMAÐUR RAÐINN A SKRIFSTOFU F.Í.S. VIÐTAL VIÐ HELGA E. HELGASON Eins og kunnugt er hefur F.f.S. nú ráð- ið til sín starfsmann á skrifstofu félags- ins. Hinn nýráðni starfsmaður heitir Helgi E. Helgason. Hann er fæddur í Reykjavik 31. maí 1944, sonur hjónanna Valnýjar Bárðardóttur og Helga Sæmundssonar, rit- stjóra. Helgi tók stúdentspróf frá máladeild Menntaskólans í Reykjavík vorið 1966. Síðan stundaði hann nám um skeið í Há- skóla fslands, aðallega í íslenzku og sagn- fræði. Jafnframt námi í H.í. var Helgi fyrst við kennslustörf og síðan blaða- mennsku. Hann var blaðamaður við Al- þýðublaðið í Reykjavík í tæp sex ár og vann mest innlendar fréttir, skrifaði m. a. um verkalýðs- og kjaramál. Helgi er kvæntur Ásdísi Ásmundsdóttur, kennara, og eiga þau einn son. Símablaðið hitti Helga að máli fyrir nokkrum dögum og lagði fyrir hann nokkr- ar spurningar. S I MAB LAÐIÐ

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.