Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1973, Page 15

Símablaðið - 01.01.1973, Page 15
— Er þetta ekki talsvert mikil breyting að hverfa frá blaðamennsko yfir í betta 'iýja starf, Heígi? — Nei, ekki svo ýkja mikil, held ég. Persónulega hef ég alltaf haft mikinn áhuga á félagsmálum. Ég geri ráð fyrir, að sá áhugi minn hafi ráðið mestu um, að ég fór út í blaðamennskuna. Hið sama knýr mig nú til að leita verkefna á öðrum vettvangi. — Hefur einhver þáttur í bví starfi, sem <)ú heíur nú tekið við, gripið hug þinn öðrum fremur? — Stóra verkefnið framundan er að sjálfsögðu undirbúningur nýrra kjarasamn- inga. Vafalaust eru á næsta leyti tímamót í starfi einstakra félaga opinberra starfs- rnanna. Þó að opinberum starfsmönnum hafi enn ekki verið tryggður sá sjálfsagði og lýðræðislegi réttur, að félög þeirra sjálf fari með fullan samningsrétt um laun og kjör félagsmannanna, hJýtur breyting í þessu efni að vera í nánd. Með nýjum lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna, sem afgreidd voru frá Alþingi á dögunum, fær F.f.S. alia vega aukna hlutdeild í þeim kjarasamn- ingum, sem taka eiga gildi frá 1. jan. n.k. Ég hlakka öðrum þræði til að glíma við þau verkefni, sem fylgja í kjölfar þessa. Hins vegar geri ég ráð fyrir, að mörg ljón eigi eftir að verða á veginum, áður en við- unandi samningar takast. Enn veit enginn, hvernig framkvæmd samninga tekst með þeirri skiptingu sarnn- mgsréttarins, sem nýju lögin gera ráð fyr- m. Nú, einnig má vera, að Félag íslenzkra símamanna þurfi ekki að lúta því, að fé- lagið fari aðeins með hluta samningsréttar- ins, en kjósi fremur að freista þess að hljóta viðurkenningu fjármálaráðherra sem heildarsamtök og fara með samnings- réttinn óskiptan. — Er ekki ýmislegt í þínum nýja verka- hring, sem er þér alveg nýtt og jafnvel framandi? — Jú, að sjálfsögðu kem ég eins og af fjöllum í sumum málum, svona fyrst í stað, og ég kem til með að sinna ýmsum málum, sem ég hef ekki kynnzt áður af eigin raun. — Hefur eitthvað komið þér á óvart, síðan þú byrjaðir að starfa á skrifstofu F.Í.S.? — Kannski ekki beinlínis á óvart, en ég vissi ekki, áður en ég réðst til féJags- ins, að hér væri um að ræða félag, sem heíði að baki hér um bil sextíu ára sögu, og hefði gegnt merkilegu forystuhlutverki sem stéttarfélag. — Við hvað áttu? — Þessu verður sjálfsagt bezt svarað með dæmum. Arið 1935 voru samdar starfsmannareglur fyrir Landssímann fyr- ir forgöngu Félags íslenzkra símamanna. Þessar starfsmannareglur urðu síðan að meginefni fyrirmynd að þeirri löggjöf, sem síðar kom um réttindi og skyldur opin- berra starfsmanna. Fyrir allmörgum árum var stofnað Starfsmannaráð Landssímans fvrir tilstilJi Félags íslenzkra símamanna, og hefur fé- lagið átt fulltrúa í ráðinu frá upphafi. Þannig gerði félagið hugmyndina um lýð- ræði í atvinnulífinu að veruleika fyrir fé- lagsmenn sína, löngu áður en bað mál komst alvarlega á dagskrá hjá öðrum stétt- arfélögum og heildarsamtökum þeirra hér á landi. — Hvað viltu síðan segja að lokum, Helgi? — Ég er staðráðinn í að leggja mig all- an fram um. að leysa sem bezt af hendi þau verkefni, sem þetta nýja starf færir mér á herðar. En mér er ljóst, að góður árangur byggist fyrst og fremst á bví, að trúnaður cg gott samstarf ríki milli mín annars vegar og stjórnar félagsins cg svo allra félagsmanna hins vegar. Ég hef ekki trú. á öðru en ég megi vera bjartsýnn um, að vel takist í þessu efni. Auk þess vænti ég góðs samstarfs við forstöðumenn stofn- unarinnar, er ég þarf að reka við þá erindi félagsins. Símablaðið þakkar Helga viðtalið og ósk- ar honum góðs gengis í hinu nýja starfi hans í þágu Félags íslenzkra símamanna. V. B. V. S I MAB LAÐIÐ 13

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.