Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2006, Page 21
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 2006 21
Lesendur
Úr bloggheimum
Hjónaband samkynhneigðra
„Mér finnst eitthvað rangt við það að sam-
kynhneigðir giftist, ég veit ekki. Kannski
vegna þess að ég hefaldrei heyrt
um slíkt áður, eða það hefur
aldrei verið gert. Það er
eitthvað rangt við það.
Hvað er næst? Leyfa körl-
um að giftast mörgum
konum í einu1 Leyfa
börnum að giftast? Hvað
er næst? Ég veit það ekki, en
ég er á móti þessu. Ekki að
samkynhneigðir giftist heldur að þeir fái að
giftast undir sama nafni og við gagnkyn-
hneigðu. Þeir mega giftast undir öðru
nafni, öðrum pappírum og öðruvísi athöfn.
Ég segi Nei.“
Boði Logason - bodi.mis.is
Ég og Eiður
„Fótboltasíðan I vefút-
gáfu The Guardian er
sú besta I bransan-
um. Einn skemmti-
legasti liðurinn á
henni er„The Know-
legde" - sem er kjúrl-
osítets-dálkur. Fólk sendir
inn spurningar og umsjónarmennirnir
reyna að svara. Ég notaöist mikið við þenn-
an dálk til að fá innblástur fyrir fót-
boltapistlana mlna IDVá sinum tíma og
nokkrar spurningar I Spark-spilinu eru
fengnar þaðan. Um daginn var fjallað um
•yináttu tónlistarmannsins Morrissey og
framherja QPR -1 framhaldinu var kallað
eftir ábendingum um knattspyrnumenn
sem ættu vini í tónlistarbrasanum. Innblás-
inn afþjóðerniskennd sendi ég linu um að
Eiður Smári væri I góðu vinfengi við hljóm-
sveitina Ég - og að hann hefði m.a.s. fengið
lag í höfuðið á sér. Viti menn. Umsjónar-
mennirnir hentu þetta á lofti og nú má lesa
um hina innmúruðu vináttu I boltanör-
disma-horni The Guardian."
Stefán Pálsson - kaninka.net/stefan
íslendingum mun fækka
„Þegar framkvæmdunum
við hina skelfilegu Kára-
hnjúkavirkjun lýkur
mun fslendingum að
sjálfsögðu fækka.
Margir starfsmann-
anna þar hafa enda
engan áhuga á því að
verða Islendingar til
frambúðar en vilja bara
vinna sér inn pening - sem
þrátt fyrir að teljast heldur lítill hérá Islandi
þykir vist álitlegur í þeirra heimalöndum."
Þórður Sveinsson - thorfredur.blog-
spot.com
Cookfinnur Hawaii-eyjar
Þennan dag árið 1778 varð enski
landkönnuðurinn James Cook fyrsti
Evrópubúinn til að sigla að Hawaii-
eyjum. Tveimur dögum síðar tók
hann land við Waimea á Kauai-eyju
og kallaði eyjurnar „Sandwich Is-
lands" til heiðurs John Montague,
Sandwich-jarli. Tveimur árum áður
hafði Cook verið skipaður sjóliðsfor-
ingi á skipinu Endeavor og leiddi
leiðangur sem færði vísindamenn til
Tahítí til að kortleggja gang plánet-
unnar Venusar.
Árið 1771 kom hann aftur heim
til Englands eftir að hafa siglt með
ströndum Nýja-Sjálands og Ástralíu
og hringinn í kringum hnöttinn. Ár-
ið eftir fór hann til Suðurskauts-
landsins til að kortleggja það. í þeirri
ferð fann hann Nýju-Kaledóníu.
1776 sigldi hann enn á ný frá
Englandi sem skipstjóri skipanna
Resolution og Discovery.
Cook og áliöfn hans var tekið
opnum örmum af innfæddum sem
voru frá sér numdir af tæknikunn-
áttu Evrópubúa, sérstaklega notkun
þeirra á járni. Cook keypti vistir til
í dag
árið 1930 tók Hótel Borg
til starfa þegar
veitingasalir þess voru
opnaðir. Það var
glæsilegasta hótel
landsins á þeim tíma.
handa skipsmönnum með járni og
skipsmennirnir skiptu á járnnöglum
og kynlífi. Talið er að innfæddir hafi
tengt komu skipa Cooks við trúarhá-
tíð sem fram fór þegar þeir komu.
Eftir að snurða hljóp á þráðinn í
samskiptum mannanna og inn-
fæddra var Cook drepinn í mildum
múgæsingi innfæddra.
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar.
Passið ykkur á grýlukertunum
Þór Jóhannessson
segirþjóðina hafa
skotið sendiboða vá-
legra tíðinda.
Vesturbæingurinn segir
Guörún hríngdi:
Ég vil bara vara vegfarendur við
risastórum grýlukertum sem hanga
fram af flestum húsum þessa dag-
ana. Ég var á gangi niðri í bæ í dag og
sá hvar eitt risastórt féll niður í göt-
una fyrir framan konu, sem var á
gangi hinum megin við götuna.
Þá varð mér litið upp í þakskegg-
in og sá að öll hús skarta hnífbeitt-
um grýlukertum, sem eru allt að því
Lesendur
mannshæðarhá. Það er aldrei að vita
hvenær þau detta niður. Ég vil síðan
ekki einu sinni hugsa um hvernig
það yrði ef illa færi.
Grýlukerti
Stórhættuleg
fyrirþásem
I ganga undir
þau.
Frábært framtak Reykjavíkurborgar
Ari Huynh Hefur með
dugnaði og alúð byggt
upp Indókína ásamt eig-
inkonu sinni, Margréti.
Sveinn skrífar:
Það gladdi mig óhemjumikið að
sjá forsíðufrétt DV í gær um hversu
vel Reykjavíkurborg hefur látið að
tilveru og viðveru nýbúans Ara Hu-
ynh. Honum hefur aldeilis verið tek-
ið opnum örmum á höfuðstöðvum
Skipulagssjóðs, sem er að sjálfsögðu
í eigu og undir óbeinni stjórn okkar
sem búum í borginni fögru við
sundin bláu. Með dugnaði og alúð
hafa þau hjón, Ari og Margrét, byggt
Indókína við
Laugaveg Reykja-
víkurborg keyptihús-
iðá 175 milljónir.
Lesendur
l upp alúðlega og alþjóðlega veit-
lingamenningu í miðbæ borgarinn-
*ar. Nú hafa þau uppskorið laun erf-
y iðis síns, á silfurfati frá okkur sem
höfum tekið þeim svo vel og jafnvel
gætt okkur á svínakjöti í súrsætri
sósu hjá Ara og co. Það var kominn
tími til að stjórnendur skattpening-
anna gerðu eitthvað af viti og laun-
. uðu þeim vel sem gott hafa gjört.
Byrgjum
bmnninn áður
en barnið •••
Hingað til og héðan í frá hafa
menn deilt og munu deila, um
ágæti þeirrar agressívu blaða-
mennsku sem DV, eitt blaða, stend-
ur fyrir og oftar en ekki eru skoðan-
ir manna byggðar á persónulegum
og tilfinningalegum rökum, sem
jafiian eru verstu tegundir fyrir
góðum rökum. Hingað til hafa þó
raddir manna verið á þá leið að
þótt þeir viðurkenni ekki allan
fréttaflutning DV, og finnist hann
oft á tíðum ganga of langt í hinu og
þessu, að þá hafa menn verið á eitt
sáttir við fréttir um handrukkara,
dópsala, nauðgara, raðnauðgara,
morðingja og bamaníðinga, og það
hvort heldur dæmt hefur verið í
málum slíkra hrotta eða ekki.
Nú hefur þjóðinni, með stóran
hluta fréttamanna NFS í farar-
broddi, hins vegar tekist að skjóta
sendiboða válegra tíðinda. Hvers
vegna? Jú, það er auðveldara að
finna til samúðar með fómar-
lambi sem fram hefur komið und-
ir naftti og mynd og svo ættfólki
þess sem harmar örlögin. Það er
mtm auðveldara en að finna til
með öllum tilvonandi fórna-
lömbum bamaníðings, enda eru
þau ekki til (ennþá).
Sem sagt tilfinningarök tengd
perónulegri skoðun sem fæst ekki
staðist í raunverulegri rökfræði.
Ég fyrir mína parta vona að
DV haldi áfram að greina frá
mönnum og sýna myndir af þeim
sem geta valdið mér og öðrum
skaða með meintri hegðan sinni.
Burt séð frá því sem búið er og
verður ekki aftur tekið.
Munum bara að það er of
seint að byrgja bmnninn þegar
barnið er dottið ofan í hann.
‘
Oi U.
? -J
-c
Flugmaður sem rekur flugfélag
„I uppeldinu var mest áhersla
lögð á heiðarleika og það er það sem
hefur leitt mann áfram," segir Jó-
hannes Georgsson um það hvaða
stefnuvaldar hafa haft áhrif á hann.
Hann starfar sem framkvæmdastjóri
sænska flugfélagsins FlyMe sem er
að nokkrum hluta í eigu Straums-
Burðaráss og Fons. Hann var einn
stofnenda Iceland Express og var þar
framkvæmdastjóri áður en Fons
keypti fyrirtækið fyrir rúmu ári síð-
an. Nú hefur Jóhannes fundið sig í
fyrirtæki þeirra Fons-félaga í Gauta-
borg, enda kemur hann að rekstri
FlyMe sem fagmaður með reynslu í
uppbyggingu flugfélaga og nýtir til
fulls þá reynslu að hafa gert það
áður.
„Það skyldi enginn vakna svo á
morgnana að hann þykist hafa vissu
gefið f þessum málum og heimurinn
breytist rosalega hratt. Maður sér
það best á vettvangi sem þessum þar
sem uppgangurinn er vonum fr amar
og sér ekki fyrir endann á.“
Hann er ekki blautur bak við eyr-
un í fluginu, því samhliða því að
hann stundaði nám í viðskiptafræði
við Háskóla íslands vann hann sem
flugmaður hjá Flugstöðinni og hefur
nokkur þúsund flugtíma að baki.
„Svo stóð ég ffammi fyrir þeirri
ákvörðun hvort ég ætti að halda
áfram sem flugmaður eða bisness-
maður. Ég ákvað bara að sameina
þetta hvomtveggja," segir Jóhannes
en segir jafnframt að það sé nokkuð
langt síðan hann hafi flogið sjálfur:
„Það stendur þó til bóta."
„Ég legg upp með það að mark-
„Það skyldi enginn
vakna svo á morgn-
ana að hann þykist
hafa vissu um hvar
hann hefur nætur-
stað."
miði að lifa eins og flestir, fullur lffs-
ánægju oghamingju," segir Jóhann-
es. „Hluta af því markmiði nær mað-
ur með því að ná árangri í starfi og
eins samveru með fjölskyldu og vin-
um auðvitað. Starfið er auðvitað frá-
bært og maður gerir sitt besta ásamt
góðum hópi starfsfólks til að ná
þeim árangri sem maður vill."
heimsins. „Það er hreinlega ekkert
sonar og r
j Margrétar Jóhannesdóttur. Hann er menntaður v.ðsk.ptaíræðmgur og at
vinnuflugmaður og starfaði áður sem framkvæmdastjori SAS á Island, *
95 Hann stofnaði fceland Express ásamt ððrum en seld, Fons það, lok ars.ns 2004.