Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2006, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2006, Blaðsíða 32
r" / ^ í í íi JJ í 0 j Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar J^jnafnleyndar er gætt. JjJjQ f) 0 U (J SKAFTAHLÍÐ24, W5REYKJAVÍK [STOFNAÐ1910] SÍMI5S0S000 5 690710 TlTl17 lUýbÚBr á þorrahlóti • Þó SiMa Nótt hafi slegið í gegn svo um munar með leikrænum tilþrifum upp á síðkastið breytir það ekki því að sjálf komst hún ekki inn í Leiklistarskólann þegar hún reyndi fyrir nokkm. Er ekki að efa að stjóm- endur skólans verði nú að hugsa sinn gang þvf líflegri og sannari leikkonur en Silvía Nótt hafa ekki komið ffam á sjóríarsviðið í langan tíma... • Ríkisútvarpið hef- ur látið útbúa nýjar myndir af þátttak- endum í Eurovision þar sem engu er til sparað í gæðum. Jónatan Garðarsson, umsjónarmaður keppninnar, lætur þó þau boð með fylgja að ekki sé leyfi- legt að birta mynd- imar í fjölmiðlum nema þær séu kirfilega merktar VÍS en það er sem kunnugt er trygg- ingafyrirtæki. Velta menn því nú fyrir sér hvort keppendur séu tryggðir gegn óhamingju eftir allt bröltið eða ein- hverju öðm... „Við kennum þeim, þeir kenna okkur og við kennum hvert öðru," segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, sem efnir til þorra- blóts fyrir nýbúa í Keflavík á morg- un. Og lætur ekki þar við sitja. Á meðan snætt verður kynna starfs- menn bæjarins helstu merkisdaga i»*íslensku þjóðarinnar og hefðir sem tengjast þeim. „Við emm að sjóða hangikjötið og ilmurinn liggur hér yfir öllum bæjarskrifstofunum. Hangikjötið verður uppistaðan í þorrablótinu þó við látum allt hitt fljóta með,‘‘ segir bæjarstjórinn sem kann vel að meta nýbúana á Suðurnesjum og þá strauma sem þeim fylgja. „Þetta er ágætur hópur sem auðgar menning- arlífið hérna, kröftugt og duglegt fólk, “ segirhann. Alls em töluð ellefu tungumál meðal nýbúa í Reykjanesbæ en á þorrablótinu verður töluð íslenska: „fslenskan er tungumálið sem á að sameina okkur,“ segir bæjarstjórinn. Nýbúarnir í Reykjanesbæ starfa ' "^tíkki mest í frystihúsum líkt og víða annars staðar á landinu því þau em ekki til staðar í bænum. Þess í stað em nýbúarnir í byggingarvinnu og svo starfa margir við flugþjónustu sem er snar þáttur í atvinnulífinu á Suðurnesjum. „Það er ágætur kínverskur veit- ingastaður hér sem heitir Jia Jia og þangað fer ég stundum. Svo skilst mér að verið sé að stofna annan tæ- lenskan," segir Árni Sigfússon sem vonast til að nýbúarnir kunni jafn vel að meta þorramatinn og hann t ^gjBjálfur þann kínverska á Jia Jia. „Svo má ekki gleyma veitingastaðnum Langbest þar sem framreiddar eru amerískar steikur eins og þær gerast bestar. Þangað fer ég líka þó það séu íslendingar sem standi að þeim stað,‘‘ segir bæjarstjórinn í Reykja- nesbæ sem hlakkar til morgundags- ins þegar hann bíður nýbúunum og nágrönnum sínum upp á nýsoðið hangikjöt með öllu sem fylgir. Voru hrísgrjón með hrútspungunum? J? Liaác Dalvegi 4 • Sími 564 4700 Hamraborg 14 • Sími 554 4200 Opið: Mánud.-föstud. 06:00- 18:00, laug. 06:00 -17:00, sunn. 07:00-17:00 Opið: Mánud-laugard. 08:00- 18:00, laug. 08:00-16:00, sunn. 09:00-16:00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.