Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2006, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2006, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDACUR 17. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV Gefa peningaráð Akureyrarbær hefur ný- lega endurnýjað samning sinn við Ráðgjafarstofu heimilanna en þetta er þriðja árið sem slíkur samningur er gerður. Sámningurinn felur í sér að fjármálaráðgjafar Ráð- gjafarstofunnar koma til Akureyrar hálfsmánaðar- lega og hafa aðsetur sitt á Fjölskyldudeild Akureyrar- bæjar að Glerárgötu 26. Þar geta bæjarbúar í fjár- hagslegum vanda pantað viðtöl við ráð- gjafana sem vinna svo með viðkomandi úr málum þeirra. Margir hafa fengið aðstoð við að fá yfir- sýn yfir fjármál sín og raunhæfar tillögur til úrbóta. Ekki tryggt Ekki er víst að fólk sem varð fyrir eignatjóni í ofsa- veðrinu á Flateyri síðastiið- inn föstudag fái tjón sitt bætt að fullu. Samkvæmt upplýsingum frá Sjóvá-Al- mennum bætir fok- og óveðurstrygging fasteigna skemmdir á vátryggðri hús- eign af völdum ofsaveðurs hafi vindhraði þegar tjónið varð náð 28,5 metrum á sekúndu samkvæmt mæl- ingum Veðurstofu íslands. Frá þessu er greint á vef Bæjarins besta. Bflar þurfa hins vegar að vera kaskó- tryggðir til að fá tjón af völdum veðurs bætt, og í slíkri tryggingu er alltaf sjálfsábyrgð sem bfleigandi þarf að borga sjálfur. ______________ Kaka ársins Kaka ársins 2006 verður til sölu í bakaríum félags- manna í Landssambandi bakarameistara um helg- ina í tilefni af konudegin- um 19. febrúar. Kakan, sem er franskur súkkulaði- botn með villiberjablöndu og vanillurjómakremi, er hönnuð af markaðshópi félagsins í samstarfi við stjórn sambandsins. Kaka ársins hefur notið sívax- andi vinsælda frá því að bakarar hófu að kynna hana á konudaginn fyrir nokkrum árum og þess er vænst að hún hljóti sömu viðtökur í ár. Útskriftarnemum í viðskiptafræði við Viðskiptaháskólann á Bifröst var boðið í held- ur betur veglega veislu í gær. Stórfyrirtækið Baugur Group bauð upp á dýrindis hlaðborð og koníak. Iða Marsbil Jónsdóttir, einn af útskriftarnemunum, segir hug- myndina hafa kviknað í góðra vina hópi. Bifröst Verðandi við- skiptafræðingar borð- uðu og drukku í boði Baugs Group í gær. Það er gott að vera útskriftarnemi í viðskiptafræði í dag. Stórfyr- irtækin á íslandi sækja í sig veðrið um allan heim. Þar eru við- skiptafræðingar jafnan í fararbroddi við skipulagningu á yfirtök- um og kaupum á öðrum erlendum stórfyrirtækjum. Fyrirtæki eins og Baugur Group þarf til góðra kaupa góða viðskiptafræð- inga. Og hvernig á að tryggja bestu viðskiptafræðinga? Jú, bjóða þeim til galaveislu í boði fyrirtækisins. „Hugmyndin kom upp í góðra vina hópi um daginn og við ákváð- um að láta bara verða af þessu," seg- ir Iða Marsbil Jónsdóttir, einn út- skriftarnemanna sem borðuðu og drukku á sig gat í gær í boði Baugs í veislu í Viðskiptaháskólanum á Bif- röst. Nokkrir kennarar skólans létu einnig sjá sig enda erfitt að segja nei við veislu í boði Baugs. „Viðskiptafræðideildin, að mér vitandi, hefur ekki gert þetta áður. Við erum að reyna að byggja upp hefð fyrir þessu," segir Iða Marsbil. Koníak og skinka Matseðill gærkvöldsins var held- ur betur glæsilegur. Kvöldverðurinn hófst með fordrykk og þar á eftir fengu verðandi viðskiptafræðing- arnir forrétt. Hann samanstóð af parmaskinku með melónukúlum, lime og parmesan. í aðaírétt var boðið upp á svína- lundir með kartöflubátum og sérlag- aðri sósu að hætti hússins. í eftir- drykk gátu verðandi viðskiptafræð- ingar fengið sér koníak eða jafnvel Grand Marnier. Kynntu Baug Þetta er í annað skiptið á stuttum tíma sem Baugur Group tekur þátt í atburðum á Bifröst en fyrir um það bil þremur vikum var Skarphéðinn Berg Steinarsson, framkvæmda- stjóri hjá Baugi Group, staddur á málstofu hjá háskólanum. Þar kynnti Skarphéðinn fyrirtæk- ið í máli og myndum og kynnti nem- endum íjárfestingar fyrirtækisins. Bifröst í Baug Nokkrir viðskiptafræðingar sem hafa útskrifast frá Bifröst starfa hjá Baugi Group. Þeir hafa staðið sig vel í starfi ef marka má veisluna og því talið lfldegt að frekari ráðningar Baugsmanna á Bifrestingum haldi áfram. Samkvæmt upplýsingum frá Baugi Group eru forsvarsmenn fyrir- atii@dv.is -v ■ Forstjóri Baugs Jón Ásgeir Jóhannesson varekki viðstaddur eigin veislu en borgaði samt fyrir koniakið. tækisins stoltir af því að hafa boðið Bifrestingunum í mat. Þrátt fyrir að Baugur Group hafi boðið til veislunnar voru starfsmenn fyr-1 irtækisins fjarri f góðu gamni þegar nemendurnir skemmtu sér í gær- j kvöldi. ,í eftirdrykk gátu verð- andi viðskipta- fræðingar fengið sér koníak eða jafnvel Grand Marnier.“ Stórar ávísanir Svarthöfði er alltaf að sjá myndir í blöðunum af fólki sem er að af- henda stórar ávísanir og þá alltaf í góðgerðaskyni. Um daginn taldi Svarthöfði sex slíkar myndir í Mogg- anum einum. Þetta er táknrænt og um leið mjög myndrænt. Stórar ávísanir svínvirka. Nú er það bara þannig að fólk er hætt að nota ávísanir. Debetkortið gekk af þeim dauðum. Svarthöfði reynir ekki einu sinni að skrifa ávísun opinberlega því það þýðir ekki neitt. Fyrir tveimur árum reyndi hann að borga fyrir tvær rauðvíns- flöskur með ávísun í Ríkinu og var vægast sagt litinn hornauga. Bæði af afgreiðslufólki og viðskiptavinum. Þótti ekki alveg í lagi. Og úti í sjoppu um daginn fékk hann ekki afgreiðslu þegar hann dró upp tékkheftið til að greiða fyrir vídeóspólu, poka af Maarud og Pepsi Max. Ástæðan er líklega sú að ávísanir fengu á sig slæmt orð því ekki var alltaf innistæða fyrir því sem skrifað var. Gúmmítékki varð landsfrægt hugtak og eiginlega botninn í öllum viðskiptum. Þess vegna leggur Svarthöfði til að þeir sem vinna góðverk og vilja Hvernig hefur þú það? „Ég hefþað ágætt," segir Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir.„Maður er bara að taka þátti daglegu lífi og njóta vetrarins. “ láta aðra njóta með peningagjöfum afhendi risastór debetkort með nafni viðtakanda. Gallinn er bara sá að þá kæmi upphæðin hvergi fram. Ekki er hægt að skrifa hana á kortið og ekki nægir að geta hennar svona í framhjáhlaupi. En það væri meira í takt við tímann að nota kortið. Kannski mætti leysa þetta með krítarkorti og þá væri það gildis- tíminn sem gilti. Þiggjendur gætu þá tekið út að vild þar til tíminn rynni út. Safnanir yrðu þá að fara fram eftir á og alltaf að ná þeirri upphæð sem búið væri að taka út á gildistím- anum. Þetta myndi einnig gera alls kyns safnanir markvissari því aldrei færi á milli mála hvaða upphæð þyrfti að ná. Eða... kannski er bara best að nota ávísanir. Þær virka sjónrænt séð í blöðunum. Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.