Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2006, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2006, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2006 Fréttir 33V Suðurnesja- loðna Nótaskipið Súlan EA-300 landaði í gær fyrstu loðnunni í Helguvík sem kemur á land á Suðurnesjum á þessari vertíð. Súlan var með íúllfermi, um 930-950 tonn, eftir að hafa verið að veiðum út af Vík í Mýrdal að því er fram kemur á vf.is. öll loðn- an sem Súlan færði á land fer í bræðslu í Helguvík en loðnan nálgast Reykjanesið nú hraðbyri og er gert ráð fyrir að hún verði komin um og eftir helgi. Súlan EA-300, sem á heimahöfn á Akur- eyri, heldur aftur út á miðin í kvöld. Lækkaflugið FL Group lækkaði í gær um fjögur pró- sent í Kauphöll- inni, annan daginn í röð. Dagana á und- an hafði fyrir- tækið hækkað gríðarlega í kjöl- far tilkynningar um að fcelandair yrði sett á mark- að. Tryggingamiðstöðin hækkaði mest félaga í Kaup- höllinni í gær eða um tæp tólf prósent. Dagsbrún hældcaði næstmest, eða um 3,5 prósent og HB-Grandi hækkaði um 2,27%. Mátti láta Laxárstöð Bæjarráð Akureyrar seg- ir að stjórn Landsvirkjunar hafi verið heimilt að ráð- stafa Laxárstöð til sameig- inlegs smásölufyrirtækis Landsvirkjunar og Norður- orku. Þetta bókaði bæjar- ráðið í gær í tilefni af bréfi frá Steinunni Vaidísi Ósk- arsdóttur, borgarstjóra í Reykjavík. „Er bæjarráð einnig þeirrar skoðunar að ekkert komi fram í greinar- gerð borgarstjórnar Reykja- víkur með erindinu sem gefi tilefni til að þessi ákvörðun stjórnarinnar gé borin sérstaídega undir eig- endur fyrirtækisins," sagði bæjarráðið enn fremur. Blanca Nuria Jovel Martinez, móðir Brendu Salinas Jovel sem var myrt á hrottalegan hátt ásamt Jóni Þór Ólafssyni í E1 Salvador, er harmi slegin. í við- tali við DV í gær sagði Blanca að tvær dætur sem Brenda lætur eftir sig væru nú munaðarlausar þar sem faðir þeirra hafi verið myrtur fyrir sex árum. Blanca segir Jón Þór og Brendu hafa verið yfir sig ástfangin. Þau geisluð af hamingj Brenda Salinas Jovel og Jdn Þór Ólafsson voru numin á brott aðfaranótt sunnudagsins 12. febrúar af miskunnarlausum morðingjum. Iik þeirra fundust í vegkanti að morgni sunnu- dagsins illa leikin og með fjölda skotsára á höfði og brjóst- kassa. Móðir Brendu óttast um líf sitt og dætra Brendu sem eru 6 og 10 ára og hefur fengið sér öryggisvörð til að gæta heimilis þeirra. DV tók viðtal við hana eftir að ræðismaðurinn í E1 Salvador lét blaðinu símanúmer hennar í té þar sem ástæða þótti til að gæta ýtrustu varkámi ef sími hennar væri hleraður. „Þau elskuðu hvort annað mjög mikið og höfðu ákveðið að gifta sig þann 14. maí,“ segir Blanca Nuria, móðir Brendu Sal- inas Jovel. Móðir Brendu segir dóttur sína hafa verið mjög ástfangna af Jóni Þór. Brenda hafi verið ekkja og misst mann sinn á hroðalegan hátt er hann var myrtur í starfi sínu sem leynilögreglumaður í E1 Salvador. „Þau geisluðu af hamingju og ég hef sjaldan séð dóttur mína svona ánægða. Ég kynntist Jóni þegar hann kom á heimili mitt nokkrum sinnum og hann var yndisleg manneskja með stórt hjarta," segir Blanca. Pyntuð áður en þau voru myrt „Ég er harmi slegin yfir því hvernig farið var með dóttur mína og Jón áður en þau voru myrt og ég á ekki orð til að lýsa því sem raunverulega gerðist,“ segir Blanca og brestur í grát. Það líður góð stund áður en Blanca treystir sér til að halda frásögninni áfram við blaðamann DV: „Ég get ekki skilið hvað fær fólk til að fremja slíkan voðaverknað. Þau voru pyntuð í fjóra tíma áður en þau voru myrt. Það eina sem ég get ímyndað mér er að morð- ingjarnir hafi einfaldlega öfundað Jón og Brendu. Þau voru svo ham- ingjusöm og ætluðu að opna veit- ingastað tveimur dögum eftir að þau voru myrt." Voru að opna veitingastað Móðir Brendu segir að Jón og Brenda hafi verið búin að stofna fyrirtæki sem heiti Olafsson. Þau hafi verið að vinna að undirbún- ingi fyrir opnun veitingastaðar sem þau hafi nefnt La Cantineta. „Þann fjórtánda febrúar á Vaf- entínusardeginum ætluðu þau að opna veitingastaðinn. Þeirra beið glæsileg ffamtíð og Jón sagði við dóttur mína að hann ætlaði að vera í E1 Salvador með henni næstu 30 árin," segir Blanca. Vili að Jón hvíli við hlið dóttur sinnar Brenda átti tvær dætur sem heita Andrea María 10 ára og Blanca Camila 6 ára. „Þær hafa „Þau voru pyntuð í fjóra tíma áður en þau voru myrt misst báða foreldra sína og sú eldri fæst ekki til að borða neitt. Þær eru lamaðar af sorg,“ segir Blanca. Móðir Brendu fylgdi dóttur sinni til grafar á þriðjudaginn síð- astliðinn. IE1 Salvador er venja að jarða ættingja einum til tveimur dögum eftir lát þeirra. „Ég er að reyna að fá fjölskyldu Jóns til að leyfa Brendu og Jóni að hvíla saman hér í E1 Salvador því kærleikurinn á milli þeirra var svo mikill að mér finnst af virðingu við þau og ást þeirra að þau ættu að vera jörðuð saman." Vill fá umfjöllun fjölmiðla Blanca segir að lögreglan sem rannsakar málið gefi henni ekki nægar upplýsing- ar um rannsókn þess og að fjölmiðlar hafi svo til ekkert Qallað um þennan hræðilega atburð. „Mér finnst það vera van- virðing við dóttur mína og Jón að fjalla ekki um málið í fjölmiðl- um hér. Það er eins og öllum sé sama um það sem gerð- ist. Ég skil ekki af hverju enginn er búinn að setja sig í samband við mig. Ég er bæði sár út í fjölmiðla hér fyrir að birta ekkert um þetta mál og einnig út í lögregluna sem lætur þetta mál ekki varða sig meira en raun ber vitni," segir Blanca sem kveðst þakklát fyrir þá athygli og umfjöllun sem íslenskir fjölmiðlar hafa verið með um morðin. Hún segist reiðubúin að veita viðtöl við þá sem vilja: „Ég vil að fólk viti sannleikann og að atburðirnir falli ekki í gleymskunnar dá því þá er von um að eitthvað gerist og að morð- ingjarnir hugsanlega náist." Gefst ekki upp Blanca segir að líf hennar muni breytast mikið við fráfall dóttur hennar. Hún mun hafa forræði yfir dætrum Brendu sem eru munaðarlausar. Blanca er lög- fræðingur og rekur fyrirtæki sem sér um öryggismál fýrir fyrirtæki og einstaklinga. Hún segist ætla að berjast fyrir því að morðin á Brendu og Jóni verði upplýst: „Ég mun ekki gefast upp því dóttir mfn og Jón eiga skilið að allt sé gert til að upplýsa þennan hrottalega glæp." jakobina@dv.is mm Jón Þór Ólafsson Móðir Brendu segir hann hafa ver- iðyndislega manneskju með stórt hjarta. mmmm—~ TEKIIIIIU SEM GISL ;0G MYRTIIR flF GLÆPAGEIUGf - FANNSTLATINN l'IÐ I SKOTHi Lkl A AiúR. •1 75, f*hrúar Opus Dei vill láta breyta Da Vinci lyklinum Ritstjórar DV kærðir vegna skopmynda „Jd, það er allt gott að frétta úr Vestmannaeyjum," segir Tryggvi Sigurðsson vél- stjóri.„Veðrið er fint núna og hentar vel til veiða. Við erum I skjóli fyrir norðan- áttinni. Nú er lika loðnuver- tföin mffy i—i r r ~ ~ Landsíminn fullu. Það hefur fiskast ágætlega, bara verst hvað það er lítið afhenni.Auðvitað vonumst við Vestmannaeyingar eftir því aö bætt verði við kvót- ann, en þá verður lika að koma ný loðnuganga." Móðgun við kaþólikka Kaþólska reglan Opus Dei krefst þess að tilvitnanir sem særi menn kaþólskrar trúar verði numdar burt úr kvikmynd Rons Howard sem gerð er eftir Da Vinci lyklinum eftir Dan Brown. í yfirlýsingu frá Opus Dei, sem gefin var út í Róm í gær, er sag- an sögð draga fram skakka mynd af kaþólsku kirkjunni. Ekki mun regl- an þó ætla sér að hvetja til að áhugamenn um myndina hundsi hana. Ekki var tiltekið í Ron Howard leikstjóri Tekstávið móðgaða kaþólikka vegna myndar sem ekki er búið að frumsýna. yfirlýsingunni hvaða atriði reglan vildi úr kvikmyndinni. Jim Kennedy hjá Sony, sem framleiðir myndina, gaf út þá yfirlýsingu í gær að hún væri tilbúningur og efni hennar ekki ætlað að meiða trúartilfinningu neins. Opus Dei vísar í yfirlýsingu sinni til deilunnar um skopmyndir Mú- hameðs og óskar eftir að trúarskoð- anir verði virtar. Eins og lesendum sögunnar er kunnugt gerir höfund- urinn sér mat úr kenningum um dauða Krists. Rómversk-kaþólska kirkjan segir hana skáidskap. Opus Deil var stofnsett í Madríd 1928 og leggur áherslu í starfi sínu á að trúariðkun verði að gegnsýra líf hins kristna en ekki að trúarlíf hans takmarkist við messusókn og bænir. Da Vinci lykillinn verður opnun- armynd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor og verður frumsýnd víða um heim í framhaldinu. Kallaðirtil yfirheyrslu Lögreglan hefur kallað rit- stjóra DV, Björgvin Guð- mundsson og Pál Baldvin Baldvinsson, til yfirheyrslu í dag. Samkvæmt lögreglunni eru þeir Björgvin og Páll Bald- vin kærðir fyrir birtingu DV á skopmyndum danska blaðsins Jótlandspóstsins af Bjorgvin og Páll Baldvin Ritstjórar DV hafa verið kærðir fyrir birtingu skop- myndanna af Múhameð. Múhameð spá- manni. Mynd- birting blaðsins á bls. 15 þann 31. janúar síðastlið- inn hefur verið kasrð en þess ber að geta að DV birti myndirnar fyrst 11. janúar. DV er jafnframt eini prentmiðillinn á íslandi sem hefur birt myndirnar en fjölmörg önnur blöð í Evrópu hafa birt þær til stuðnings Jótlands- póstinum og tjáningarfrelsinu. Það hefur varla farið framhjá neinum að birting Jótlandspóstsins á skopmyndunum hefur vakið mikla reiði á meðal múslima og sér ekki fyrir endann á mótmælum þeirra gegn birtingu myndanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.