Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2006, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2006, Blaðsíða 16
sssgSSsHSSSS erhesiumöminnur „Við frumsýndum núna á laugardaginn og það gekk alveg rosalega vel, við fengum frábærar viðtökur og glimrandi dóma í öllum blööum," segir Tinna Hrafns- dóttir leikkona sem leikur í Viðtalinu. Viðtalið er svo- kailað döff-leikhús. f döff-leikhúsi er það skilyrði að minnst einn leikaranna sé heymarlaus. Annað skilyrði fyrir því að geta kallað sýningu döff-leikhús er að hún sé aðgengileg heymarlausum áhorfendum til jafiis við heyrandi áhorfendur. Döff-leikhús hefur einnig þá sérstöðu að vera afar sjónrænt Góð líkamstjáning er afar mikilvæg og góð lýsing þar sem áhorfendur verða að geta séð hvað sagt er. „Þú þarft ekki að vera tengd- ur einhveijum sem er döff til að eiga erindi á þessa sýningu. Ég get lofað því að þessi sýning kemur á óvart og vil ég hvetja fólk til að gera sér ferö til Hafnarfjarðar til aö sjá öðmvísi leik," segir Tinna. IVÆR SEM LEIKUM DÓTHIRINA Þetta er saga um brengluð samskipti eins og þau vilja oft verða milli fólks, hvort sem það heyrir eður ei. Verkið segir frá sambandi móður og dóttur. „Við erum tvær sem leikum dótturina, ég og Elsa Guðbjörg, ég er talandi heimurinn en hún er táknmálsheimurinn," segir Tinna sem lauk námi við Leiklistarskóla íslands vorið 2002. „Þetta var skemmtileg reynsla, að fá að verða vitni að stofnun Listaháskólans í miðju námi og upplifa allar þær breytingar sem því fylgdu. í dag er ég, meðfram leiklistinni, í MBA námi við Háskólann í Reykjavík. Það er annars konar reynsla en mér afar kærkomin og hagnýt einmitt innan listageirans," seg- ir Tinna Hrafiisdóttir aðspurð um námið. DEILUM SÖMU T1LFINNINGUM „Það er brýn nauðsyn að vekja athygli á þessu mál- efiú og því fannst mér virkilega spennandi að takast á við það. Heimur heymarlausra er flestum algjörlega óþekktur og fyrir mig að fá að kynnast lífi og aðstæð- um þessa fólks á þennan hátt í gegnum leikhúsformið em forréttindi og dýrmæt reynsla. Það er hreint ótrú- legt hvað þetta fólk hefur þurft að þola mikla einangr- un f samfélaginu og tfini til kominn að saga þess sé sögð," segir Tiima ákveðin. FALLEGT TUNGUMÁL SEM GAMAN ER AÐ LÆRA „Einu kynni mín í raun af heymarlausu fólki em Elsa og Bettý sem em með mér í sýningunni. En sam- býlismaður minn á litla dóttur sem er heymarskert og í dag læra öll heymarskert böm táknmál," segir Tinna sem sjálf er farin að læra táknmál. „Við höfum því bæði tekið okkar fyrsta námskeið, Táknmál 1, sem er aðeins byijunin á því ferli. Mér finnst þetta Megt tungumál og giíðarlega gaman að læra það," segir Tinna. „Ég fékk mikið af upplýsingum um heim heymarlausra frá handritshöfundinum, Lailu Mar- gréti Amþórsdóttur, og leikstjóranum, Margréti Pét- ursdóttur." NÝ fSLENSK BÍÓMYND Annars er nóg að gera hjá Tinnu þessa dag- ana en hún landaði á dögunum aðalhlutverki í bíómynd sem verður tekin upp í haust. „Myndin heitir Veðramót og er í leik- sljóm Guðrúnar Halldórsdóttur. Ég hlakka mikið til að takast á við það stóra verkefni," segir Tinna kampakát að lokum. SEJ KRON KRON OPNAR Á NÝJUM STAÐ „Þetta mun gerast á laugardaginn," segir Stefán Svan PR maður og fatahönnuður um verslunina Kron kron sem opnar á nýjum stað á laugardaginn. í búðinni verður Bjarni Ein- arsson með ljósmyndasýninguna „Tmst me I’m a part of you“. „Síðan ætla strákarnir í hljómsveitinni Ta! ta! að sjá um tónlistina. Þetta em þrír strákar og þeir hafa spilað á Sirkus og víðar," segir Stefán Svan sem er að vonum spenntur. „Við ætlum að vera með Vivienne Westwood sem er alveg glænýtt merki hjá okkur en svo verðum við að sjálf- sögðu með nýtt frá Wood Wood, Henrik Vibskov, KTZ, Marjan Pejoski, Roksanda II- incic, Aganovich and Yung og margt fleira." Búðin er í mun stærra húsnæði núna og er á Laugavegi 63b og nær niður eftir Vitastíg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.