Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2006, Blaðsíða 20
íMHHíMfi íwa
mmm mm 'Vw
IlF
m\m
i|ffl
mJJVWJuÍ fliW
iyi jyB I! MIM1
>18
JMIMI
„Þetta er það sem ég geri, ég leik músík fyrir
áhorfendur," segir José Gonzales aðspurður
hvers vegna hann ákvað að snúa aftur hingað
til lands og leika á tónleikum á Nasa. Hann
spilaði á Iceland airwaves i haust. „Þetta var á
litlum stað síðast en núna hafa fleiri mögu-
leika á að koma."
HORFIR HVORKIA O.C. NÉCSI
José Gonzales gaf út sína fyrstu og einu
breiðskífu í Svíþjóð árið 2003. Hann lifir enn
á þeirri plötu sem ber heitið Veneer og kom
út í Bretlandi fyrir skemmstu. Þar hefur hún
verið geysivinsæl sem og í Bandaríkjunum.
Lög af plötunni hafa verið leikin í þáttaröð-
inni O.C. og einnig hjá meistara Grissom í
CSI.
Horfirðu á O.C.?
„Nei," segir José og hlær. „Ég hef bara séð
nokkrar mínútur af þættinum. Það eru aðrir
þættir sem ég hef meira gaman af.“
En CSI?
„Nei. Var tónlistin mín þar? Ég vissi það
ekki."
MEIRISVÍI EN ARGENTÍNUMAÐUR
José er yfirleitt einn á sviði með gítarinn.
Hann á von á að þannig verði það einnig
þegar hann kemur fram á Nasa. „Kannski
verð ég með slagverk og bakraddir, annars
verð ég einn."
Þérlíður best einn á sviði með gítarinn.
„Já, þannig eru lögin samin. Mér finnst
gaman að hafa slagverk og bakraddir en ekki
fyrir öll lögin," segir José, sem þykir lipur
gítarleikari. „Ég var um 14 ára þegar ég byrj-
aði að spila. Ég lærði undirstöðuatriðin sjálf-
ur. Síðan fór ég að læra hjá einkakennara og
lærði þar að spila klassík. Var hjá honum í
þrjú til fjögur ár, einu sinni í viku. Við spil-
uðum aðallega spænska klassík en líka smá
Bach," segir José. Spænska klassíkin hefur
átt vel við José sem á argentíska foreldra, en
hann hefur alltaf búið í Gautaborg ásamt
foreldrum sínum. Faðir hans er farinn aftur
til Argentínu en móðir hans og systkini eru
enn í Gautaborg. José segist vera meiri Svíi
en Argentínumaður þó svo hann tali
spænsku við fjölskyldu sína.
Á LAUSU TIL ÍSLANDS
Eftir að José hefur leikið á tónleikunum hér
á landi þarf hann að bruna upp í flugvél sem
mun ferja hann til Bandaríkjanna. Hann
mun spila á hátíðinni South by Southwest í
Texas og eftir það ætlar að hann túra um
Bandaríkin.
Ekkert hræddur um að fá heimþrá?
„Jú, reyndar er ég það. Nú verð ég í burtu
í þrjár vikur. Svo kem ég heim og fer aftur og
verð í fjórar vikur. En ég verð með vinum
mínum þannig að þetta verður eitthvað
skárra," segir José. Hann viðurkennir að
hann muni sakna fjölskyldunnar, en enga á
hann kærustuna til þess að sakna.
Nú? Þannig að fslensku stelpurnar mega
gera sitt besta?
„Já, alveg eins, þær þurfa bara að senda
mér mynd á Myspace," segir José og hlær.
„Ég hitti engar stelpur þegar ég var hérna
síðast þannig að ég get ekki dæmt um ágæti
íslenskra kvenna. Þær eru flott klæddar. Það
er ótrúlegt hvað fslendingar eru með á nót-
unum í tísku og menningu."
Þannig að stelpurnar eru flott klæddar en
ekkert fallegar?
„Jú, mér líkaði útlitið líka," segir José og
hlær. Hann stoppar hér aðeins í einn dag
þannig að stelpurnar þurfa að hafa hraðann
á ef þær ætla að krækja sér í
sænsk/argentískan unað.
SHS
imnnarAhugabundraamu
siggi Armann hitar upp fyrir josé gonzales og mun heyra tónlist hans í fyrsta sinn sama kvöld.
„Jú, ég verð í banastuði á sviðinu," segir tónlistar-
maðurinn Siggi Ármann sem kemur til með að hita
upp fyrir José Gonzales á sviðinu á Nasa á tónleikun-
um á mánudagskvöldið. „Ég verð með lög af plötunni
Music for addicted sem ég gaf út fyrir skemmstu. Svo
verð ég með einhver ný lög," segir Siggi. Hann lumar á
tveimur nýjum gullmolum sem tónleikagestir fá að
heyra á mánudagskvöldið.
Hefurðu citthvað hlustað á José Gonzales?
„Nei ekki neitt ennþá en ég hlakka til að heyra í
honum. Ég var bara beðinn um að koma og spila og
auðvitað sló ég til," segir Siggi.
Annars er það að frétta af Sigga að hann hefur hald-
ið sig innan dyra og samið nýtt efni að undanförnu.
Þess á milli hefur hann verið að kanna áhuga erlendra
aðila á tónlist sinni, sem ku vera þó nokkur. Enda hef-
ur platan hlotið frábæra dóma hér á landi og fengið
heilan Karlsvagn af stjörnum í hverjum fjölmiðlinum
á fætur öðrum.
SHS