Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2006, Blaðsíða 18
4
HALALEIKHÓPURINN SAMANSTEND-
URAF FÖTLUÐUM EINSTAKLINGUM
OG FÉLÖGUM ÞEIRRA. UM HELGINA
FRUMSÝNIR LEIKHÓPURINN VERKIÐ
PÓKÓK SEM ER FYRSTA VERK OKKAR
ÁSTSÆLASTA LEIKSKÁLDS.
ÁSVW
„Þetta er gamanleikur og í]allar um glæpa-
mann sem var að losna út af Hrauninu og
kunningja hans sem er fyrrverandi efnafræð-
ingur,“ segir Vilhjálmur Hjálmarsson leikstjóri
verksins Pókók sem Halaleikhópurinn frum-
sýnir á morgun í leikhúsi Halaleikhópsins að
Hátúni 12. Verkið er skrifað árið 1961 af Jökli
Jakobssyni og var þetta fyrsta verkið sem hann
skrifaði.
BÓNUS, BJÖRGÓLFUR OG EITURLYF
„Það er skondið að þetta var skrifað 1961
því þetta gæti alveg hafa verið skrifað núna á
síðustu tveimur árum. Þetta er bara Bónus,
Björgólfur og eiturlyf, allt saman í einu," seg-
ir Vilhjálmur um verkið. „Þeir vinirnir ætla að
gerast heiðarlegir bissnissmenn eða glæpa-
menn öllu heldur. Óli sprengur ætlar að
markaðssetja það sem efnafræðingurinn
Emanúel hefur verið að þróa. Þetta er sæl-
gæti sem heitir Pókók og er unnið úr mýr-
grasi. Þá vantar fjármagn og fá það hjá þess-
um ríka sem á bróður á þingi," segir Vil-
hjálmur um söguþráðinn í verkinu. „Þeir fara
svo að framleiða þetta í skúr í vesturbænum
og gengur svo vel að fjármagnarinn sér sér
leik á borði og stelur frá fyrirtækinu. Þá kem-
ur í ljós að þeir sem éta Pókók, sérstaklega
börn, fara yfir á frumstig og enda á því að
jarma og verða grænir í framan."
HALALEIKHÓPURINN ER DÚNDURLIÐ
Halaleikhópurinn er leikhópur, leiklist
fyrir alla, uppistaðan eru fatlaðir einstakling-
ar og fólk því tengt. Halaleikhópurinn hefur
opnað nýja „vídd" í starfi leikhópa, þar sem
fengist er við leiklist á forsendum hvers og
eins. Fötlun er eitthvað sem gleymist í þessu
áhugaleikfélagi. „Skortur á hefðbundinni
fötlun er engin fyrirstaða fyrir þátttöku, þetta
er alltaf mjög blandaður hópur. Þetta er
dúndurlið bæði úr gamla genginu sem og
fólk út í bæ," segir Vilhjálmur sem er að von-
um spenntur fyrir frumsýningunni. Það er
mikill kraftur í þessum hóp svo það borgar
sig að kíkja og njóta vel.
r
lAra rúnarsdöttir opnar kistuna fyrir SIRKUS
PLOIUSPILARINN OG
Rll GEBUUNSKARNIR
„Geisladiskar og plötur eru mitt líf
og yndi," segir Lára Rúnarsdóttir
tónlistarkona sem leyfir Sirkus að
skoða nokkra af hennar uppáhalds-
munum. „Plötur og diskar urðu fyrir
valinu hjá mér af því það er það eina
sem ég eyði peningum í fýrir utan
einstaka föt. Ég vinn í plötubúð og
flest sem ég geri tengist tónlist. Ég er
tiltölulega nýbúin að fá mér plötu-
spilara svo ég á meira af geisladisk-
um en plötum," segir Lára. Tónlist-
arsmekkur Láru hefur tekið talsverð-
ISOBEL CAMPBELL ER
IMIKLU UPPÁHALDI
HJÁLÁRU.
um breytingum frá því hún var á ung-
lingsárunum. „Þegar ég var 15 ára
hlustaði ég á WuTang og Celiné Dion
til skiptist, ágætisblanda," segir Lára
og hlær. „En núna er ég að Jilusta á
nýja diskinn með Belle & Sebastian,
hann er sæmilegur. Svo er ég líka að
hlusta á Bonny Prince Billy og líka
plötu með Mark Lanigan. Á henni er
Isobel Campbell sem var í Bella
Sebastian að syngja, ég mæli með
henni," segir Lára kampakát með sitt
tónlistarkonfekt.