Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Page 6
:
i
I
ÞAÐ MUNA ALUR EFTIR TÓMASILEMARQUIS SEM SLÓ SVO EFTIRMINNILEGA f GEGN í MYNDINNINÖI ALBfNÖI. EN HVAÐ HEFUR TÓMAS VERIÐ Afi
GERA SfÐAN ÞA? SIRKUS RVK LÉK FORVITNIA AÐ VITA ÞAÐ OG ÞVÍ MÆLTIBLAÐAMAÐUR SÉR MÓT VIÐ TÓMAS A SKÓLAVÖRÐUSTfGNUM.
frönsk mynd sem ég var að leika í,“ segir Tómas sem var með
meðalstórt hlutverk í þeirri mynd. „Myndin gerist rétt eftir stríð.
Það er svona hús fyrir gyðingaböm og ég leik þýskan kommún-
ista," segir Tómas. „Svo hef ég leikið í tveimur stuttmyndum,
annarri í London og hinni í Frakklandi um daginn," segir Tómas
sem er staddur hér á landi til þess að leika í kvikmyndinni Köld
slóð. Tómas vill segja sem minnst um það hlútverk því fólk má
ekki vita neitt um framvindu sögunnar. „Fólk á líklega ekki eftir
að þekkja mig, ég verð í gervi."
LEIKUR EKKIÁSVIÐI
Tómas hefúr í nógu að snúast en tekur hann við hvaða hlut-
verki sem er? „Nei, ég tek alls ekki að mér hvað sem er. Og mig
langar ekkert að gera hvað sem er því ég er líka í myndlist og
svona. Ég er heldur ekkert að gera þetta fyrir peningana þótt það
sé áuðvitað nauðsynlegt að lifa af. Eg hef ekki heldur tekið að mér
leikhúshlutverk."
Afhverjuekki?
„Það er form sem hentar mér ekki nógu vel. Ég er bara ekki
spenntur fyrir því. Mér finnst betra að vera að vinna í myndlist og
svo leika í bíómyndum með. Svo er líka erfitt að ef maður er
bundinn við eitthvað verk getur maður ekki hoppað í prufu eða
farið í bíómyndir hvenær sem er. Þetta er bara val. Ég valdi að
vera iaus."
MEÐ AÐALHLUTVERK í ÞÝSKRIMYND
Framundan hjá Tómasi eru nokkur kvikmyndaverkefni.
Hins vegar er það þannig í kvikmyndabransanum að þótt það sé
búið að velja í hlutverk þarf það ekki að þýða að myndin verði að
veruleika. Fyrst þarf að fjármagna allt heila klabbið. „Það er eitt
verkefni í Þýskaiandi sem ég hef trú á að verði að veruleika," seg-
ir Tómas. Hann á að leika þýskumælandi mann í þeirri mynd og
fara með aðalhlutverk. Hann talar hins vegar enga þýsku en
hyggst halda utan í næsta mánuði og reyna að bæta úr því. „Ég
má samt halda smá hreim," segir Tómas.
HEIMILDAMYND UM KETIL LARSEN
Tómas er sem fyrr segir myndlistarmaður og útskrifaðist
hann úr Listaháskóla íslands árið 2003. Hann segist aðeins vera
að byrja að sýna erlendis. „Það sem ég er að vinna í akkúrat núna
er plötuumslag fyrir ffanskan vin minn sem heitir Joseph. Hann
er að fara að sýna í Gallery hjá Agnesi B sem er einnig með búð-
ir undir sama merki. Svó hefur okkur verið boðið að taka þátt í
verkefninu Franska vorið 2007, sem er menningarhátíð. Af því
tilefni erum við að gera stuttmynd um Ketil Larsen sem er leikin
heimiidamynd."
„NEI, ÉG TEKALLS EKKl AÐ MÉR HVAB
SEMER.0G MIG LANGAR EKKERT AÐ
GERA HVAÐ SEM ER ÞVf ÉG ER LlKA f .
MYNDLIST 0G SVONA. ÉGER HELDIIR EKK-
ERT AÐ GERA ÞETTA FYRIR PENINGANA
Þón ÞAÐ SÉ AUÐVITAÐ NAUDSYNLEGT
AÐLIFAAF.ÉGHEF EKKIHELDUR TEK»
AÐ MÉR LEIKHðSHLUTVERK."
Afhverju Ketill Larsen?
„Hann er ótrúlega heiflandi karakter. Jóseph sá hann alltaf á
Mokka og fannst hann spennandi. Svo loksins fékk hann kjark til
að tala við hann og þá kom í ljós að ég þekkú hann líka. Ég var á
reiðnámskeiði í Aðaldal þegar ég var KtiII og hann var að segja
okkur sögur á leiðinni þangað," segir Tómas sem vinnur nú að
heimildamynd um þennan roskna lífskúnstner sem meðal ann-
ars er afkomandi Josephs Bonaparte, bróður Napóleons. Þá er
hann einnig að þróa hugmynd að gerð grínþátta ásamt Hugleiki
Dagssyni og fleiri góðum mönnum.
KLÍGJAR VIÐ HÁRI
Tómas er sérstakur útfits að því leyti að hann hefur ekkert hár.
Hann missú hárið þegar hann var þrettán ára sökum sjálfsof-
næmissjúkdóms sem veldur því að fólk missir allt hár á líkaman-
um. „Þetta er ekkert hættulegt eða neitt svoleiðis," segir Tómas
sem getur ekki hugsað sér að vera öðruvísi en hárlaus. „Ég er með
kh'gju fyrir hári," segir hann. Hann er þó ekki eini hárlausi einstak-
lingurinn í sviðsljósinu því hinn hárlausi Ólafur Egilsson hefur
farið mikinn á leiksviðum landsins undanfarin ár. Hann og
Tómas eru vinir en þeir kynntust þegar þeir voru saman í Götu-
leikhúsinu. Þeir hafa brallað margt saman. Meðal annars komu
þeir fram á Halló Akureyri á sínum tíma þar sem þeir voru með
töffabrögð, báðir klæddir bleikum krumpugöllum. „Annar hvarf
og hinn birúst upp úr kistu. Við spiluðum á það að fólk tæki feil á
okkur. Við emm ekkert líkir en emm báðir hárlausir," segirTómas
og bæúr við að oft sé ruglast á þeim félögum. „Mér er oft hrósað
fyrir frábæran leik í Þjóðleikhúsinu og-hann fær oft klapp á bakið
fýrir Nóa albínóa," segir Tómas léttur í bragði. Við skiljum við
Tómas í kjallaranum hjá móður sinni. Hann heldur áfram lestri á
bókinni Aferð efúr Ófeig Sigurðsson. „Ég er loksins að lesa hana
núna og mæli eindregið með henni."
SHS
„Ég fór á ýmis fesúvöl hér og þar til að fylgja Nóa albínóa eft-
ir,“ segir Tómas Lemarquis sem sló svo eftirminnilega í gegn í
myndinni Nóa albínóa eftir Dag Kára. Síðan þá vita fæstir hvað
þessi ungi leikari hefur verið að fást við. Þegar blaðamaður
Sirkuss rakst á Tómas á knæpu í Reykjavík um síðustu helgi var
ekki annað hægt en að fá hjá honum símanúmer og fá að vita
hvað hefur drifið á daga hans undanfarna mánuði.
f PRUFUM í FRAKKLANDI0G L0ND0N
„Ég bý í Frakklandi og hef verið að fara mikið í prufur. Ég er
með umboðsmann þar og í London. Svo kom út um daginn
I