Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Qupperneq 9
ir Það er enginn okkar með lykil," segir Elli, bassaleik- ari hljómsveitarinnar Jeff Who?. Þeir Elli og Baddi söngvari hafa mælt sér mót við blaðamann í æf- ingahúsnæði þeirra. Þeir em hins vegar ekki með lykil. „Ég þarf að fara og sækja Badda. Eigum við ekki bara að spjaila á KafBbamum?" spyr Elli. Það er samþykkt. Kaffibarinn skal það vera. Drengimir mæta þangað glaðir í bragði. „Ég steinsofnaði," segir Baddi og strákamir panta sér báðir latte til að friska upp á sig. Við setjumst niður á efri hæð staðarins. SPILAÁCBGB'S Ástæða þess að við mælum okkur mót við Jeff Who? er ekki einungis sú að þeir em fallegustu rokkarar landins, og með eindæmum virisælir hjá kvenþjóðinni, heldur em þeir á leiðinni til New York næsta mánudag. „Við erum að fara að spila á þrennum tónleikum. Það má í raun segja að við séum að fara þama og kynna okkur, „showcase" eins og það er kallað," segir Elli. Strákamir koma til með að spila á þremur stöðum. Meðal annars hinum goðsagna- kennda CBGB’S. „Þar gerðu Ramones og Blondie garðinn frægan," segir Elli. „Alltafþegar þú segir þetta þá minnism aldrei á Talking Heads," segir Baddi vonsvikinn með fé- laga sinn. Sem reynir að halda því fram að ekki hafi verið minnst á þá ágætu hljómsveit á heimasíðu staðarins. Er ekki heiöur aö fá að spila þar? „Allavega finnst okkur það. Kannski er þetta bara eitt- hyað voða casual," segir Baddi. Bara eins og Gaukurirm? „Já, svona bandaríski Gaukurinn." „Mér skilst að þetta sé skítugasta búllan með dýrasta bjórinn í New York, getur það út af orðsporinu," segir EUi. Nú em teikn á lofti þess efriis að staðnum verði lokað og hefur verið herferð í gangi ytra undir yfirskriftinni. „Save CBJB’S". EINAR BÁRÐAR NÝJU JÓRVÍKUR Það er kona að nafiii Rachel sem sér um að bóka strák- ana á tónleikana úti en þeir kynntust henni á Airwaves- hátíðinni. Strákamir ferðast með Loftbrúnni sívinsælu og fá því að taka með sér 100 kg á mann í yfirvigt. Þeir þurfa ekki að taka með sér neinar græjur aðrar en hljóðfærin. „Trommarinn fer með sneril og diska, bara eins og tíðkast hér heima á Gauknum," segir Elli. En hverjir koma aö horfa á ykkur? „Það er mjög margþætt. Það er erfitt að segja hverjir nákvæmlega em að koma að sjá okkur því þama em hlut- verk umboðsmannanna svo skipt. Einn sér um að bóka hljómsveitir á staði, annar sér um að bóka tónlist í kvik- myndir og auglýsingar, svo er einn sem kemur mönnum í samband við plötufyrirtæki og svo framvegis,” segir Elli. Það er enginn Eihar Bárðar sem sér bara um allt sam- an? „Nei, það er enginn Don King. Nema þá kannski Rachel. Hún er Einar Bárðar New York. Þannig áð við erum að fara að spila á þremur Gauksgiggum sem em skipulögð af Einari Bárðar í New York,” segir Baddi og hlær. RÁNDÝRT MYNDBAND KOMIÐ í SPILUN Strákamir gáfu út sína fyrstu breiðskífu á síðasta ári en hún ber heitið Death Before Disco. Síðan þá hafa strák- amir varla numið staðar í spilamennsku og á dögunum gáfu þeir sér tfrna til að taka upp myndband við lagið Bar- fly. „Þetta er mjög flott myndband, skotið á 35 millimetra filmu," segir Elli. Rándýrt? Elli: „Já við erum orðnir alveg staurblankir." Öll hýran afplötusölunni horfín? Baddi: „Já. En Gunni Palli, sem gerði myndbandið og átti hugmyndina að þessu öllu saman, gerði þetta allt frítt og félagar hans sem allir em miklir fagmenn." EUi: „Þetta var allt gert á mörgum vinargreiðum og er rosalega flott budgetmyndband ef svo má að orði kom- ast." ALLTAF f STUÐI Piltamir segjast ekkert hafa komist almennilega til þess að semja að undanförnu enda uppteknir við spila- mennsku. Þeir hafa þó komist til þess að gera demó að einu lagi. Þó skyldi engan undra hve uppteknir drengfrnir em við spilamennsku því þeir em annálaðir fyrir góða stemningu á tónleikum. Baddi: „Já, ég meina, þetta er gaman. Við emm nátt- úrlega allir félagar í hljómsveitinni, við hittumst bara og fáum okkur öl og höfum gaman." HUi: „Ef það er ekki gaman að spila live þá missir þetta marks. Líka þegar við erum að semja, þá erum við að koma okkur sjálfum í stuð. Þá komum við saman með nokkra öllara uppi í húsnæði. Bara með autt blað og svo reynum við að koma okkur í stuð." Og það heppnast? Elli: „Vonandi, við emm allavega í stuði." Boybandið Jeff Who? Það ætti ekki að fara framhjá nokkrum manni sem fer á tónleika með Jeff who? að konur virðast með eindæm- um spenntar fýrir þeim félögum og sjást gjaman dillandi sér framarlega. „Já við fáum ansi oft þetta komment. Maður veit ekki alveg hvað skal segja. Við erum kannski svona miklar kell- ingar sjálfir að við semjum eitthvað sem stelpur em ánægðar með," segir Elli. Það má segja að þið séuð nokkurskonar boyband? Elli: „Þarna ertu kominn út á hálan ís.“ Nei hægan hægan. Ég ermeð kenningu. Bítiamir voru fyrsta boybandið. Þeirsömdu alltsjálfirogstelpumarvom trylltaríþá. Svo kemurþetta niðurlægingatímabilþar sem Backstreet boys og Westlife vom upp á sitt besta. Nú er komið að ykkur ogþið semjið ykkar tónlist sjálfír. EIli: „Boyband í dag hefur þann stimpil á sér að það sé búið til með það eina að markmiði að heilla stelpur. Það er ekki málið hjá okkur. En ef þú segir að Bítlamir hafi ver- ið fyrsta boybandið þá má að kannski segja að við séum einhverskonar afturhvarf til þess tíma." Þar höfum við fengið það staðfest. Jeff who? er boy- band. SKAPA STUÐIÐ í SAMEININGU Þegar Elli og Baddi mæta sem fulltrúar sveitarinnar í viðtal hljóta margir að velta fyrir sér hvort þeir séu vítamínsprauta Jeff who? „Já þú meinar John og Paul?" segir Elli kíminn. „Við semjum aldrei einir heima. Við komum með kafla en annars gerum við þetta allt saman," bætir Baddi við. Strákarnir em allir skráðir fyrir lögunum. „Við ákváðum að hafa þetta þannig að við deilum öllu, 1/5 á mann. í fyrsta lagi því það er góður mórall hjá okkur og við emm allir góðir vinir. Það em allir að mæta á æfingar og leggja sitt af mörkum," segir Elli og Baddi tekur upp þráðinn. „Líka ef við væmm ekki allir saman í hljómsveit- inni, þá væri þetta ömgglega eitthvað öðmvísi. Kannskl ekki jafn skemmtilegt." EKKERT GÁFUMANNAROKK Strákamir hafa flestir þekkst í nokkum tíma. Elli og Baddi kynntust til að mynda fyrst þegar þeir vom sex ára en urðu ekld almennilegir vinir fyrr en í menntaskóla en allir meðlimir sveitarinnar gengu í MR. Gáfumanna tónlist? Baddi: „í guðanna bænum ekki blanda MR inn í þetta." Elli: „Við erum orðnir það gamlir að allur mennta- skólahroki er búinn að skolast af okkur." Baddi: „Það var aldrei neinn menntaskólahroki í mér. Þetta var ömurlegur skóli. Þetta var hverfisskólinn minn og ég gat farið í hann. Flóknara var það ekki." Efli: „Þetta var ekkert ömurlegur skóli." Baddi: „Nei það vom fínir krakkar." Efli: „Það fara bara allir í einhvem menntaskóla. Ég get ekki séð það sem einhverja breytu sem hefur áhrif á ein- staklingana." Þá hefur umræðan um gáfiunannatónlist gjörsamlega verið kæfð og óþárfi að reyna að halda áfram með hana. RIFIST UM KVEIKJARA Elli kveikir sér í sígarettu og býr sig undir að setja kveikjarann aftur í buxnavasann. Baddi bregst hinn versti við og sakar Ella um að ætla að stela kveikjaranum sínum. Segist hafa keypt þennan kveikjara um helgina. Hann ákveður svo að róta í vasa sínum og finnur þar sinn eigin kveikjara sem er hvítur. |ík®addi: Þefr em dáldið VAR ALDREI NEINN Elli: „Þetta er grænn MENNTASKÓLAHROKI f MÉR. b£ je heid ö ÞETTA VAR ÖMURLEGUR S Ln “ E”,6 SKÓLI. ÞETTAVAR HVERFIS- þessum mistökum sínum. |>||| uium AAT Á tímabili var útlit fyrir MULINN MlllN Ull Ell llAI fyrstu brestina í sambandi rinijl f ||M||y E| ÁVUADA hljómsveitarmeðlima. rnlllll I ViHllll* ■ LwlVI»Hll#t LEIKSTJÓRNANDINN Á MIÐJ- ^AR ÞAÐ EKKI* UNNI Baddi er mikið sviðsdýr en það sem færri vita er að hann er ekki einungis hrókur á sviði heldur hefur hann einnig verið einvaldur á miðjunni hjá Víkingum í knatt- spymu. Hættur? „Ég er í fríi eiginlega en ég sný kannski aftur einhvem tímann," segir Baddi. „Mig langar alveg en það er bara svo mikið að gera. Ég er í hundrað prósent vinnu og hundrað prósent námi. Svo var ég líka alltaf meiddur hvort eð er og það var svo leiðinlegt að vera alltaf meiddur að spila fót- bolta." Bjami er þó heill núna. „Já af því að ég er ekki að spila fótbolta. Kannski að maður geri eitthvað í sumar, þá í lægri deild." Hann er að læra heimspeki og fjármálafræði við háskóla íslands. Þó umræðan um gáfumannarokk hafi farið út um þúfur em flestir meðlima sveitarinnar með há- skólapróf. EKKIÁ BARMIHEIMSFRÆGÐAR Hljómsveitin fer utan á mánudaginn en í kvöld verður hún með tónleika á Gauknum góða ásamt Jan Mayen og Tony the Pony. Þetta em nokkurskonar stuðningstónleik- ar fyrir strákana áður en þeir fara út í stóra eplið. Við ósk- um þeim góðrar ferðar en þeir vilja koma því á framfæri að þeir em EKKI á barmi heimsfrægðar. „Þetta getur verið að það sé langt í næstu tónleika því hugsanlega ætlum við að draga okkur aðeins í hlé eftir bandaríkjaferðina," segir Elli að lokum. Sólmundur Hólm Sólmundarson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.