Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Síða 27
SÖDÓMA REYKJAVfK ER PRÓGRAM SIRHISS RVK FYRIR NÆSTU DAGA. FYLGDU ÞVf k LEWINNITIL BÆTTRAR HEILSU. SENDU OKKUR PÖST MED ABENDINGUM UM BRADNAUDSYNLEGA ATBURBINÆSTU HELGAR k S0D0MA@36S.IS r> > | > oadama BAR11 Það er alltaf almennileg dagskrá á Bar 11 og að þessu sinni verða tónleikar með Hostile, Morðingjunum & Thing Tak. Haldið ykkur fast því gleðin stendur frá kl 22 til 24 og endar með snilld ff á Dj Ola Dóra í Weapons. CAFEOLIVER Swingið er þar sem það á að vera og mun koma blóðinu á hreyflngu frá 21-23.30. Eftir að fólk er búið að borða og kom- ið í dansgírinn tekur Dj Daði við og heldur uppi fjöri frá 23.30 þar til sólin fer að skína. PRAVDA Laugardagurinn stendur fyrir sínu og mun ekki klikka á stemningunni, húsið opnar kl. 22 og Dj Áki Pain verður heitur á efri hæðinni og Dj Maggi á neðri eftir miðnætti. GRANDROKK Eins og ávallt þá klikkar dagskráin ekki á Grand Rokk og er það Pub Quiz sem byrjar helgina. Spyrill í kvöld er Haraldur Ólafsson og hefur hann ákveðið að gefa upp yfirskriftina Stríð og Friður. Hvað sem það svo merkir... KRINGLUKRÁIN Hinn einni sanni Geirmundur Valtýsson og hljómsveit tek- ur sveifluna og syngur fyrir gesti og gangandi langt fram eftir nóttu um helgina á Kringlukránni. CAFEVIKTOR Dj Þröstur 3000 villimannast á græjunum næstum fram á mánudag. Vertu maður með mönnum og mættu eldsprækur eins og bullandi lækur á Victor í kvöld. IDOL partí kvöldverð- ur á sínum stað eins og alltaf og munið að fleiri og fleiri mæta til að fylgjast með og því er gott að mæta snemma og ná sæt- um. VEGAMÓT Á Vegamótum er hægt að dansa, daðra og að sjálfsögðu drekka þar til yflr lýkur. Dj Jói mun hefja helgina á dúndrandi tónlistfýrir alla sem vilja dansa eins og alvöru manneskjur en ekki fólk á hækjum. FÖSTUDAGUR 24. MARS PRIHÐ Prikið klikkar ekki hvað varðar góða stemningu og góða tónlist og þessi dagur er ekkert frábrugðinn öðrum. Þeir Franz og Kristó spila frá 22, þegar húsið er farið að skjálfa tekur síð- an Dj Kári við þar til húsið lokar. KLÚBBURINN Það er alltaf fjör á Klúbbnum og aðþessu sinni er það trú- badorarnir Halli og Kalli sem munu skemmta gestum af sinni alkunnu snilld eins og þeim einum er lagið. Þetta er ekki það eina sem um er að vera heldur verður hjónaball í Klúbbnum og mun hljómsveitin Stuðbandalagið leika fyrir dansi. LAUGARPAGUR18. MARS NASA Síðustu tónleikar hljómsveitarinnar Gus Gus í heila 6 mán- uði verða haldnir á Nasa í kvöld. Gus Gus hljómsveitin sam- anstendur af fjórum meðlimum, þeim Earth, Bigga Veiru, Buckmaster de la Cruz og President Bongo. Það er einstakt tækifæri að verða vitni að tónleikum þeirra og mun plötsnúð- urinn Dj Margeir hitar upp fyrir Gus Gus í þetta skipti. Á eftir mun skífuþeytirinn Exos sjá um að halda fjörinu áfram langt fram eftir nóttu. BAR11 Enginn annar en Gulli í Ósóma mun halda uppi fjörinu eins og honum er einum lagið frá kl. 24 - 6. Þrífið rykið af dansskónum og skellið upp svitabandi því þetta kvöld hefst á dansgólfinu og endar vonandi í lóðréttum trylltum dansi. VEGAMÓT Enginn annar en Dj Hermigervill er að þeyta skífum fyrir brjálaðan lýðinn. Ertu maður eða mús, það verður þessi líka dúndrandi stemning sem endar bara á einn veg, allir í sveittu svitabaði á dansgólfinu langt fram eftir morgni. CAFEOUVER Eins og oftast þá hitar mannskapurinn sig upp með smó swing frá 21- 23.30. Góð stemning á meðan fólk gæðir sér á mat og með því. Addi trommari og Dj B.B.K trylla svo lýðinn þar til yfir lýkur. PRIHB Prikið kemur fólkinu í rétta skapið og dansgírinn eins og hann gerist bestur. Það er De la Rosa sem mun þeyta skífum og halda uppi mögnuðum krafti á homstaðnum góða frá mið- nætti og sem allra lengst. CAFEV1KT0R Dj Þröstur 3000 villimannast á græjunum næstum ffam á mánudag. Vertu maður með mönnum og mættu eldsprækur eins og bullandi lækur á Victor í kvöld. Dj Þröstur 3000 kemur þér í rétta skapið og mun spila eins og enginn sé morgundag- urinn. HRESSð Það er allt að gerast hér í kvöld. Dúettinn Ari og Gunni spila frá 22 til 01. Þeir munu hita upp og koma fólkinu í gírinn. síðan tekur Dj Johnny Nasty við og hann mun þeyta skífum það sem eftir er kvöldsins. KLÚBBURINN Hvorki meira né minna en Stuðbandalagið ætlar að halda uppi fjöri og dansandi sveiflu langt fram eftir morgni. Ekki klikka á dansskónum því það verða fáir ef einvherjir sem munu sitja þegar þeir hljóma. IANDSBYGGDIN SJALLINN Það vantar ekki fjörið á Sjallann um helgina því dagskráin er skínandi góð. Fjörið hefst á föstudaginn á Luggage and Handbag og að sjálfsögðu er frítt inn allt kvöldið þar til morg- unsólin rís. Dj Páll Óskar mun svo halda uppi stemningunni á laugardagskvöldið, það verður stanslaust stuð með flottasta plötusnúð, söngvara og Idol-dómara íslandssögunnar. DJ Páll Óskar blandar saman partíslögurum þannig að úr verði eitt Stanslaust Stuð og tekur auðvitað létt show þegar leikar standa sem hæst. YELL0W Atli skemmtanalögga klikkar aldrei og ekki er neitt annað að segja um helgina. Atíi heldur uppi massa fjöri fyrir dans- andi draumaprinsa og hina einu sönnu. Atli heldur uppi fjör- inu bæði föstudags- og laugardagskvöld. Með Atía á laugar- dagskvöldið verður hinn eldhressi og sjóðandi heiti Dj Andri. Dj Andri ætíar að koma fólkinu á óvart svo setjið ykkur í við- bragðstöðu og spennið beltin. DÁTINN Það vantar aldrei fjörið í fólkið né staðinn hér á bæ, það verður hinn eini sanni Pétur sem heldur uppi stemningu og dansinn mun duna fram á rauða nótt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.