Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2006, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006
Fréttir DV
MeðBO
grömmaf
amfetamíni
Lögreglan í Kópavogi
stöðvaði í reglubundnu
eftirliti aðfaranótt fimmtu-
dagsins ökumann sem þótti
grunsamlegur og lögregl-
an taldi ástæðu til að kanna
betur. Farið var með mann-
inn heim til hans og gerð
húsleit þar sem fundust
30 grömm af amfetamíni.
Maðurinn var færður til
yfirheyrslu og játaði hann
að eiga fíkniefnin og telst
málið að fullu upplýst. Var
manninum sleppt að yfir-
heyrslum loknum.
Efitmálar
drykkju-
keppni
Enn eru eftirmál af
drykkjukeppni ungmenna á
kránni Barnum á Sauðár-
króki fyrir tveimur vikum.
Á þriðjudag mættu Gunnar
Sandholt, sviðsstjóri fjöl-
skyldu- og þjónustusviðs
Skagaíjarðar, og María Björk
Ingvadóttir, æskulýðs- og
tómstundafulltrúi, á fund
byggðaráðsins til að ræða
Barinn og skotkeppnina.
Það var tvítug stúlka sem
vann keppnina með því að
sporðrenna 34 snöpsum.
Þrír keppendur voru fluttir
á sjúkrahús.
Fundifrestað
fyrir boltann
Það má með sanni segja
að spenna hafi verið í Borg-
arnesi í gær fyrir oddaleik
Skallagríms og Keflavíkur
í undanúrslitum íslands-
mótsins í körfuknattleik
sem fram fór í gærkvöld.
Að því er sagði í gær á vef
fréttablaðsins Skessuhorns
var eftirvæntingin svo mikil
í Borgarnesi að fundi í bæj-
arstjórnni var flýtt svo bæj-
arfulltrúar gætu fylgt öðrum
spenntum íbúum sveitarfé-
lagsins til leiksins í Keflavík.
Farnar voru sætaferðir með
rútum til Keflavíkur.
Viö íbúðarhúsið að Leiðhömrum 25 í Grafarvogi hefur Kristján Karl Heiðberg húsasmiður
byggt sér stjörnuathugunarskúr. Fékk bráðabyrgðaleyfi til tveggja ára en eftir það ætlar
hann að flytja skúrinn á annan stað þar sem ljósmengun er ekki eins mikil og í Grafarvogi.
Kristján Karl Heiðberg húsasmiður kann sér ekki læti þegar stjömur
himinsins em annars vegar. Þess vegna sótti hann um leyfi byggingar-
yfirvalda til að byggja skúr fyrir stjömiikíkinn sinn í garðinum heima
í Grafarvogi. Þar situr Kristján Karl nú flestum stundum og nýtur
sín vel.
Borgaryfirvöld veittu leyfi fýr-
ir stjörnuskúrnum í Grafarvogi í tvö
ár. Enda ætlar Kristján Karl að flytja
hann eitthvert annað eftir það. Ljós-
mengunin í Grafarvogi er töluverð:
„Sérstaklega til suðurs en þángað
beini ég sjónaukanum helst," segir
Kristján Karl.
Stjörnuskúrinn er ekki stór og er
staðsettur í þriggja metra fjarlægð
frá suðurhorni hússins sem Kristján
Karl býr í við Leiðhamra 25.
Á tunglinu Bandaríski geimfarinn Neil
Armstrong sprangaöi þar um og Kristján Karl
hefði jafnvelgetaö fylgstmeðhonum efhann
hefði verið búinn að fá sér græjurnar i garðinn.
Átta tommur
„Þetta er átta tommu kíkir sem ég
keypti notaðan á netinu," segir Kristj -
án Karl sem lætur sér ekki nægja að
stara út í himinhvolfið hejdur tekur
líka myndir af stjörnum sem líða fýr-
ir augu hans á síðkvöldum í skúrn-
um góða í garðinum.
Sólin á sumrin
„Ég hef mest gaman af að skoða
Satúrnus, Júpíter og Mars og þá sér-
staklega í október þegar Satúrnus
var svo nálægur," segir Kristján Karl
sem með hækkandi sól verður að
beina sjónauka sínum annað. Þá er
bjart á kvöldin og jafiivel allan sólar-
hringinn. En það stöðvar ekki Kristj-
án Karl í að njóta þess að sitja úti í
störnuskúrunum: „Þá skoða ég sól-
ina," segir hann.
Ástæða þess að Kristján Karl
greip til þess ráðs að byggja stjörnu-
skúrinn í garðinum heima hjá sér í
Grafarvoginum var ósköp einföld:
Punt í bíómyndum
„Það er ekki hægt að vera með
Kristján Karl við stjörnukíkinn sinn Vill ekki gefa upp kostnaöinn. Konan má ekki vita.
stjörnukíkja í stofuhita. Þeir verða að
vera í sama hitastigi og er úti annars
rennur allt til innan í þeim. Stjörnu-
kíkjar sem fólk sér í fínum stofum í
kvikmyndum eru bara upp á punt,"
segir hann.
- ***' -■ -
Konan má ekki vita
Ekki vill Kristján Karl ræða
kostnaðinn við stjörnuathuganir
sínar í Grafarvoginum en ljóst er að
þær hlaupa á umtalsverðum upp-
hæðum: „Konan má ekki vita hvað
þetta kostar," segir hann sáttur við
sig og alheiminn sem hann hefur
fyrir augunum í öðru ljósi en við
flest þegar skyggja tekur og venju-
legum vinndegi hans við húsams-
míðar lýkur.
Burt í myrkrið
„En ég ætla bara að vera með
skúrinn hér í garðinum í tvö ár eða
svo. Eftir það stefni ég að því að fara
með hann eitthvert annað þar sem
betri aðstæður eru til stjörnuskoð-
unar. Hér í Grafarvoginum er það
ljósmengunin sem er verst," segir
Kristján Karl Heiðberg sem byggði
sér stjörnuathugunarskúr í garðin-
um við Leiðhamra 25 í Grafarvogi
þar sem hann býr.
Kvabbað og kveinað á þinginu
Svarthöfði furðar sig á því að
stjórnarandstaðan í utanríkismála-
nefnd Alþingis kvabbar og kveinar
undan því að Geir Haarde utanrík-
isráðherra geri nefndinni ekki grein
fýrir stöðu mála í þessum samninga-
viðræðum um framtíð varnarmála
landsins. Hvað á Geir greyið svo sem
að segja nefndinni? Að hann geti ekki
breytt neinu um brottför hersins?
Það geta allir sagt sjálfum sér. Að al-
veg sama hvað hann jarmar og vælir
í Kananum heyrir herstöðin sögunni
a
til. Það geta allir sagt sjálfum sér.
Stjómvöld hafa fundið upp hug-
takið „nauðsynlegur varnarviðbún-
aður" eða eitthvað í þá áttina og skil-
greint hann sem íjórar
þotur á Kefla-
víkurflug-
velli. Svarthöfði
sér enga ástæðu til að
hafa „varnarviðbúnað" neins staðar á
landinu þar sem við höfnm nákvæm-
lega ekkert að verjast gegn. Varla fara
Grænlendingar í stríð við okkur, hvað
þá Norðmenn. Og hver er hættan ffá
Jan Mayen-svæðinu eða Hatton Rock-
all-svæðinu? Spyr sá serjr ekki veit.
Og komi til einhvers konar ófrið-
ar leggur Svarthöfði til að farin verði
Mogens Glistrup-leiðin í
’J il vamarmálum. Glistrup
lagði eittsinntil
þinginu að útgjöld til varnarmála
landsins yrðu skorin niður í einn 25
eyring. Ef einhver réðist á Danmörku
ætti að setja peninginn í næsta síma-
sjálfsala til að hringja í árásaraðilann
og tjá honum að landið gæfist upp.
Við ættum sennilega að biðja Kan-
ann um að setja upp símasjálfsala
fýrir okkur úti á Keflavíkurflugvelli.
Það er varnarviðbúnaður sem snið-
inn er að okkar þörfum.
Svartliöföi
#1
Hvernig hefur þú það
„Ég hefþað fínt," segirJojo götulistamaður hress l bragði. „Ég tók þáttí
rokkkeppninni á Gauki á Stöng um daginn, ætlaði að reyna að húkka mér far á
ströndina í Bandaríkjunum. Annars er ég allur að koma til eftir árásina sem ég
varð fyrir en er ennþá slæmur íauganu. Maðurverður nú samt að halda áfram.'