Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2006, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 7. APRlL 2006
Fréttir DV
Fá 340 á
tímann
Unglingar í Vinnuskóla
Akureyrarbæjar næsta sum-
ar fá á bilinu 340 til 497
krónur á tímann að með-
reiknuðu orlofl. Þetta var
ákveðið í gær á fundi bæj-
arstjórnar sem miðaði við 3
prósenta hækkun sem varð
um áramótin með kjara-
samningi Einingar-Iðju.
Valgerður H. Bjarnadóttir
bæjarfulltrúi taldi eðlilegt
að hækka ætti laun ungling-
anna meira þar sem lægstu
taxtar hjá Akureyrarbæ
hefðu nýlega hækkað veru-
lega með heimild launa-
nefndar sveitarfélaga.
Borginstefnir
olíufélögunum
í gærmorgun var þing-
fest í Héraðsdómi Reykja-
víkur stefna Reykjavíkur-
borgar á hendur þremur
olíufélögum þar sem þau
eru krafin bóta vegna sam-
ráðs þeirra við tilboðsgerð
í viðskipti við borgina árið
1996. Alls nema kröfur
Reykjavíkurborgar tæplega
158 milljónum króna. Jafn-
framt var stefnan á hendur
Skeljungi, Keri og Olíuversl-
un íslands kynnt á fundi
borgarráðs í gær. Frá því
í september 2005, þegar
Reykjavíkurborg krafði fé-
lögin um bætur, hefur verið
leitað sátta um bótagreiðsl-
ur en ekki tekist.
Myndatökur í
dómshúsum
Bolli Thoroddsen,
heimdallur.Sjálfstæðisflokkurinn
iÞetta snýst að mlnu mati um
rétt fólk tilþess að fá að þess að
reka sln mál fyrir dómstólum án
þess að þurfa að verjast ágengni
fjölmiðlamanna. Myndatökur I
dómshúsum valda sakborning-
um óþarfa þjáningu. Þeir eiga
að fá sína refsingu I réttarkerf-
inu. Ekki i fjöimiðlum.i
Hann segir/Hún segir
iMér finnst núverandi
fyrirkomutag, það er að segja
að það megi mynda fyrir utan
dómssai og inn íhonumþar til
þinghald er sett aiveg prýðilegt.
Engin ástæða til þess að breyta
þvi. Að sjálfsögðu eiga vera
undantekningar, tildæmisf
viðkvæmum kynferðisbrota-
málum. En mér finnst mikilvægt
að fjölmiðlar fái að fylgjast með
gangi máti I sakamáium. Og
nái frumvarp BJörns
Margrét Gauja Magnúsdóttir
kennarl
Þórður H. Sveinsson, fyrrverandi fasteignasali Fasteignamiðlunar Hafnárfjarðar, lagði
rúmar 40 milljónir inn á eigin reikning af peningum viðskiptavina miðlunarinnar. Pening-
arnir voru á vörslufjárreikningi en bannað er með lögum að blanda því fé við einkareikn-
inga fasteignasala. Grétar Jónasson, formaður fasteignasala, segir málið afar undarlegt.
Fasteignamiölun
Hafnarfjarðar
Miðlunin er nú hætt en
var á Strandgötunni.
„Þetta var bara vitleysisgangur í mér," segir Þórður Heimir Sveins-
son, lögfræðingur hjá Fiskistofu og fyrrverandi fasteignasali Fast-
eignamiðlunar Hafnarfjarðar, en samkvæmt öruggum heimildum
lagði hann alls rúmar fjörutíu milljónir króna af vörslufjárreikningi
yfir á sinn eigin. Á vörsluíj árreikningi er fé viðskiptavina fasteigna-
sölunnar geymt en það er bannað me'ð lögum að taka fé af honum
og leggja á eigin reikning. Ekki er talið að um fjárdrátt sé að ræða.
„Það verður að gera
þær kröfur tíl fasteigna-
sala að þeir vití betur"
oft komið upp. Hann segir það mjög
gott að enginn hafi skaðast fjárhags-
lega því um er að ræða afar viðkvæm
viðskipti fyrir fólk og háar upphæðir.
Það komst upp um Þórð þeg-
ar Fasteignamiðlun Hafnarfjarðar
var seld en þá þurfti eftirlitsnefnd
fasteignasala að yfirfara alla reikn-
inga. í ljós kom að Þórður hafði lagt
rúmar 40 milljónir inn á eigin reikn-
ing. Einnig lagði Þórður sex og hálfa
milljón inn.á reikninginn aftur síðar.
Ekki virðist vera að Þórður hafl dreg-
ið að sér fé
Reikningur stemmdi
„Ég þurfti að borga gjöld hjá
sýslumanni," segir Þórður en hann
vill ekki kannast við allar færslurnar.
Þegar eftirlitsnefnd fasteignasala fór
yfir vörslufjárreikninginn kom hins
vegar í ljós að hann stemmdi þrátt
fyrir flakkið á fénu.
Aðspurður afhverju hann hafi
farið þessa leið við að borga reikn-
inga segir hann: „Þetta er sú leið sem
við notuðum til þess að borga reikn-
inga."
Hugsanlega kærður
Grétar Jónasson, formaður Fé-
lags fasteignasala, segir málið und-
arlegt og að svona mál verði hugsan-
lega kærð til lögreglu ef hann getur
ekld gert grein fýrir og útskýrt hverja
einustu færslu.
„Það verður að gera þær kröfur til
fasteignasala að þeir viti bemr," seg-
ir Grétar aðspurður hvort millifærsl-
unar séu hugsanlega óvitaskapur hjá
Þórði.
Afar sérstakt
„Ein meginregla fasteignasala er
að blanda ekki eigin fé við peninga
viðskiptavina," segir Grétar um mál-
ið og bætir við að þetta mál sé mjög
sérstakt og að svona lagað hafi ekki
Dró ekki að sér fé
Elddvirðistveraað
Þórður hafi dregið
að sér fé en hann
sldlaði inn fast-
eignasölurétt-
indum sínum
í síðustu viku
og samlcvæmt
heimildum
að beiðni eft-
irlitsnefnd-
ar fasteigna-
sala. Sjálfur
segir Þórður
að hann hafi
skilað því inn
sjálfviljugur.
Með því að skila
leyfinu inn getur
hann sótt um að fá
það aftur hvenær
sem er.
valur@dv.is
Þórður H. Sveinsson
MiUifærði fjörutiu miHjónir
affé viðskiptavina á eigin
reikning.
■■afiaaa
SilIlSl
Grétar Jónasson,
formaður Félags
fasteignasala Segir
málið mjög sérstakt.
Sjálfstæöisflokkurinn eykur fylgi sitt í Hafn-
arfirði samkvæmt könnun Fjarðarpóstsins
Fær 44 prósent
Samkvæmt skoðanakönnun á vef-
síðu Fjarðarpóstsins þar sem gestir
vefsíðunnar eru spurðir hvaða flokk
þeir myndu kjósa í komandi bæjar-
stjórnarkosningum var staðan
þannig í gær að Sjálfstæð-
isflokkurinn fengi 44 pró-
sent fylgi, Samfylkingin
27 prósent, Vinstri græn-
ir 16 prósent og Fram-
sóknarflokkurinn 12 pró-
sent.
„Ég er ánægður
með þessa stöðu ef
hún er svona en þessi
skoðanakönnun er
ekki þess eðlis
að hægt sé að
taka hana mjög
alvarlega," seg-
ir Haraldur þór
Lúðvík Geirsson bæjarstjóri
Hafnarfjarðar og oddviti Samfylking-
arinnar „Við höfum mikið og gott fylgi."
Ólafsson oddviti Sjálfstæðisflokksins
í Hafnarfirði. „Við erum með góð-
an meðbyr og ég er bjartsýnn mað-
ur að eðlisfari. Ég fer alltaf fram til að
vinna," segir Haraldur.
„Samfýlldngin stendur mjög
traustum fótum í Hafnarfirði og
það mun koma í ljós í komandi
kosningum," segir Lúðvík Geirs-
son bæjarstjóri í Hafnarfirði og
oddviti Samfylldngarinn-
ar. „Við höfum mikið
og gott fylgi og það
eru kosningarnar
27. maí sem segja
til um úrslitin. Það
er almenn ánægja
með störf Samfylk-
ingarinnar í Hafn-
arfirði," segir Lúð-
vik.