Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2006, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006
Fréttir DV
Fpiðþór Eydal
Friðþór þykir þægilegur maður,
úrræðgóður, traustur og góður
fararstjóri í safaríferðum um
Keflavíkurflugvöll.
Hann erof tryggur fyrirtæk-
inu sínu og gefur ekki færi á
sér.
„Hann er sérfræðingur um
varnarliðið sem er nágranni
okkar Suðurnesjamanna. Hann
er mjög þægileg manneskja og
fróður maður. Svo erhann
sérlega góður fararstjóri í
safaríferðum um
Keflavikurflugvöll. Friðþór
er það mikill starfsmaður
síns fyrirtækis sem er
ókostur fyrir okkur þvi að
Víkurréttir vissi fyrst afstóru
fréttinni að varnarliðið væri á
förum en helv... hann Friðþór
vildi ekki staðfesta það við
okkurlÉg er ekki búinn að
fyrirgefa honum það!"
Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta.
„Hann hefur griðarlega reynslu
eftirmargra ára vinnu við
upplýsingagjöfhjá
varnarliðinu. Hann sýnir
jafnaðargeð útá við og
vinnurvel meðólíkum
einstaklingum og hópum.
Nafn Friðþórs Eydal er
fallegt og vel við hæfi, manni
með slikt nafn hefur tekist vel að
halda frið á meðal vikinga á
okkar litlu eyju."
Arni Sigfússon, bæjarstjóriReykjanes-
bæjar.
„Hann er afskaplega frétta-
glöggurmaður, úrræðagóður og
þægilegur. Mérfinnst hann
hafa náð að halda haus
afskaplega vel í öllu sem
hann gerir og hefurgert.
Hann ermjög ballanserað-
ur maður. Hann hefur enga
galla."
Friðrik Haraldsson, tæknistjóri hjá
sjónvarpinu á Keflavíkurflugvelli.
Friðþór Eydal er fæddur 23. september 1952.
Hann hefurstarfað sem upplýsingafulltrúi
varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli I á þriðja
áratug. Friðþór mun láta afstörfum þegar
varnarliðið er að fullu farið á brott en
Friðþór hefur unnið mikið og gott starfsem
upplýsingafulltrúi I gegnum árin. Friðþór er
mikill áhugamaður um sagnfræði og hefur
skrifað um hina ýmsu atburði
íslandssögunnar.
Gistinóttum
fjölgar
Gistinætur á hótelum í
febrúar síðastliðnum voru
56.000 en voru 53.000 í
sama mánuði árið 2005 sem
er 5,5 prósenta aukning.
Gistinóttum fjölgáði hlut-
fallslega mest á Suðurnesj-
um, Vesturlandi og Vest-
fjörðum þar sem gistinætur
fóru úr 3.300 í 5.600 milli
ára sem er 68 prósent aukn-
ing. Á höfuðborgarsvæðinu
nam aukningin 1,5 prósent-
um.úr 41.200 í 41.800.
Ragnar Már Ómarsson streittist harkalega gegn handtöku í fyrrasumar. Hann segir
að lögreglan hefði ekki átt að skipta sér af honum og vinkonu hans sem lágu saman á
bekk á Austurvelli. Slagsmál brutust út milli Ragnars og lögreglumanns og var réttað
í málinu í gær. Ragnar kveðst saklaus og segir að sá eini seki í málinu sé lögreglan,
hún hafi gerst sek um léleg vinnubrögð.
„Ég lá bara þarna á bekk með stúlku þegar þeir komu og fóru að
skipta sér af okkur." Svona lýsir Ragnar Már Ömarsson upphafinu
að átökum sem hann lenti í síðastu sumar við tvo lögreglumenn
á Austurvelli. Átökin leiddu til þess að Ragnar var ákærður og fór
aðalmeðferð málsins fram í gær.
Ragnar Már var ákærður fyrir
brot gegn .valdstjóminni með því
að hafa ráðist á opinberan emb-
ættismann þegar hann var að sinna
skyldustörfum sínum. Ragnar neit-
ar sök. Segir afskipti lögreglumann-
anna af sér og vinkonu sinni hafa
verið með öllu tilefnislaus. Hann
hafi eingöngu verið að verjast órétt-
mætri handtöku.
Valhoppaði um bæinn
Forsaga málsins er sú að í fyrra-
sumar kynntist Ragnar ungri stúlku
í miðbæ Reykjavíkur. Þau deildu
kvöldinu saman og skemmtu sér vel
að sögn Ragnars. „Það hefur sjaldan
legið jafn vel á mér og þessa nótt,"
sagði hann í vitnastúkunni í gær.
„Við valhoppuðum niður Laugaveg-
inn og í kringum Tjömina"
Þaðan lá leiðin niður á Austur-
völl. Sólin var fyrir löngu komin
upp og flestir farnir heim úr bæn-
um enda kominn morgunn. Tveir
lögregluþjónar röltu niður á Aust-
urvöll til að kanna ástand bæjar-
ins eftir skemmtun næturinnar. Þar
komu þeir auga á Ragnar og vin-
konu hans.
Reiddist lögreglumönnunum
„Ég fann allt í einu að það var
einhver sem skyggði á sólina," sagði
Ragnar í gær. „Eg muldraði eitthvað
á þá leið að sá sem væri að skyggja á
sólina ætti að drulla sér í burtu."
Skyndilega áttaði Ragnar sig á því
að sá sem hann hafði hreytt þessum
ónotum í var lögreglumaður. Af skilj-
anlegum ástæðum var Ragnari nokkuð
bmgðið. En þegar lögreglumennimir
báðu hami um skilríki og persónuupp-
lýsingar varð hann fljótt reiður.
„Þeir áttu ekkert að vera áð skipta
sér af okkur," segir hann. Hann seg-
ir að lögreglumennirnir hafi verið
ógnandi í sinn garð. Mundað kylfur
sínar og setta á sig hanska með ögr-
andi hætti. Þetta fór illa í Ragnar sem
brást ókvæða við. ,,Ég svaraði bara
fyrir mig," segir hann.
Átök urðu að slagsmálum
Lögreglumennirnir tveir brugð-
ust ekki vel við „stælum" Ragnars.
Annar þeirra tók í öxl hans og til-
kynnti að hann væri handtekinn. Þá
fýrst fór allt úr böndunum. Ragnar
reyndi að rykkja sig lausan en lög-
reglumaðurinn reyndi að koma hon-
um í járn.
Átökin þróuðust út í slagsmál og
þar náði Ragnar yfirhöndinni. Hann
tók lögreglumanninn hálstaki og
saman féllu þeir út í runna. „Á þess-
um tímapunkti var ég orðinn það
hræddur við þessa löggu að ég þorði
ekki að sleppa," segir hann.
Lögreglumaðurinn kærði
Innan skamms var Ragnar yfir-
bugaður. Hann var færður á lögreglu-
stöð og honum haldið þar til klukkan
fimm daginn eftir. Blóðprufa var tek-
in sem sýndi að Ragnar var ekki ölv-
aður. Eftir að skýrsla var tekin af hon-
um var Ragnari svo sleppt.
Málinu var þó langt í frá lokið.
Annar lögreglumannanna kærði og
Ragnars bíður hundruð þúsunda
króna málskostnaður auk allt að sex
ára fangelsisvist, verði hann fúndinn
sekur.
Segir lögregluna seka
Ragnar er afar ósáttur við hvem-
ig máhð allt hefur þróast. „Ef ein-
hver er sekur í þessi máli er það lög-
reglan - fyrir slök vinnubrögð," segir
hann. Undir þetta tekur faðir Ragn-
ars, Ómar Rafhsson: „Ég hugsa að ef
reyndari lögreglumenn hefðu ver-
ið þarna á ferð hefði þetta ekki far-
ið svona." Feðgarnir benda á að það
sé eins og geðvonska lögreglumann-
anna tveggja hafi orsakað að mál-
in þróuðust á þann hátt sem þau
gerðu.
Þurfa að afla sér virðingar
eins og aðrir
Ákæmvaldið er ekki á sömu
skoðun og feðgamir. Kolbrún
Sævarsdóttir saksóknari
sagði í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær að lögreglu-
mennirnir hefðu verið í
fullum rétti þegar þeir
handtóku Ragnar. Hún
vitnaði í lögreglusam-
þykkt sem segir að leyfi-
legt sé að vísa hverjum þeim frá sem
ógni öryggi eða valdi ónæði. Ragnar
segir hæpið að hann hafi valdið ein-
hverjum ónæði þar sem hann lá á
bekknum með vinkonu sinni.
Brynjar Níelsson, verjandi Ragn-
ars, benti einnig á að hæpið væri að
ákæra Ragnar fýrir árás á embættis-
mann. Lögreglumaðurinn hefði hafið
átökin. Ragnar hafi vissulega streist á
móti, veitt mótþróa við handtöku, en
það sé ekki það sama og að ráðast á
lögregluþjón.
„Þó að það sé vissulega pirrandi
þegar ungmenni sýna manni ekki
tilhlýðilega virðingu er ekki þar með
sagt að Ragnar hafi brotið lög. Það er
ekkert í lögunum sem segir að maður
verði að bera virðingu fýrir lögreglu-
mönnum. Þeir afla sér virðmgar með
gjörðum sínum eins og aðrir," sagði
Brynjar við lok réttarhaldanna í gær.
Símon Sigvaldason
dæmir málið og ætl-
ar hann að skila
niðurstöðu sinni
eftir páska.
Dómur Hæstaréttar í dóplistamáli opnar möguleika á nýju fordæmi
Gæti gerbreytt starfsumhverfi lögreglunnar
Frávísun Hæstaréttar á máli Ríkis-
saksóknara í síðustu viku gegn Birni
Sigurðssyni, sem á heimasíðu sinni
dopsalar.tk ásakaði nafngreinda lög-
reglumenn um að starfa með glæpa-
mönnum, er strax farin að hafa
áhrif. Frávísun Hæstaréttar byggði
á því að Lögreglan í Reykjavík hefði
ekki átt að rannsaka mál Björns,
því kærendur voru lögreglumenn í
Reykjavík. Það var því mat Hæsta-
réttar að annað lögregluembætti
hefði átt að fara með rannsóknina.
Sigmundur Hannesson var verj-
andi Björns Sigurðssonar. Við þing-
festingu máls ákæruvaldsins í gær
gegn öðrum skjólstæðingi Sigmund-
ar, Sigurbirni Inga Sigurðssyni, sem
gefið er að sök að hafa sparkað í tvo
lögreglumenn, krafðist Sigmundur
frávísunar. Ástæðan - lögreglan í
Reykjavík fór með rannsókn málsins.
Og miðað við nýfallinn dóm Hæsta-
réttar því mögulega óhæf til að fara
með rannsóknina.
Sigmundur Hannesson benti
dómara á að nýfallinn dómur
Hæstaréttar gæfi tilefni til að kanna
hvort fordæmi hefði verið sett fyr-
ir því að mál sem þessi færu rak-
leiðis til Ríkissaksóknara sem síð-
an myndi ákveða hvaða embætti
færi með rannsókn. Hvort það for-
dæmi hefði verið sett að lögreglu-
embætti væru óhæf til að rannsaka
mál sem snerta eigin starfsmenn.
Aukaþinghald fer fr am í málinu í dag
þar sem frávísunarkrafa Sigmund-
ar verður reifuð nánar. Ákæruvald-
ið mun mótmæla kröfunni enda
myndi fordæmi af þessu tagi ger-
breyta starfsumhverfi lögreglu-
manna. Á ári hverju rannsakar til
dæmis Lögreglan í Reykjkavík fjöld-
ann allan af málum þar sem brota-
þolar eru lögreglumenn. Möguleiki
er nú fyrir hendi að hvert einasta mál
verði fýrst að fara til Ríkissaksóknara
sem svo myndi ákveða framhaldið.
Mál dóplistamannsins Bjöms Sig-
urðssonar er nú á borðum Ríkis-
saksóknara eftir frávísun Hæstarétt-
ar sem verður að taka ákvörðun um
wm
hvort gefln verði út ný ákæra. Kunn-
ugir telja að til að það geti orðið verði
að fara fram ný rannsókn og miðað
við niðurstöðu Hæstaréttar í síðustu
viku getur Lögreglan í Reykjavík ekki
framkvæmt þá rannsókn.
andri@dv.is