Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 Helgin PV Wcll nn9: "Þetta er málni"9 sem ÍT upp IalkóhóH og þvlgetw leikan hoftþena á sérheilan vinnudag Ja ekki nema ef leikarinn er mikið fyrir sopann. Hún er tii dæmis notuð til aöqera freknur og skemmdar tennur." 9 Mótorhaus:„7/7að gera svona finan haus er byrjað á þvi að gera andlitsdrætti I leir. Þá ergert Vax: „Notað til að láta líta út fyrir að leikari sé með skurð. Þetta er borið á húðina og svo er skorið I yfirborðið." Intimate Warming gel: „Þetta fæstíöllum betri apótekum. Ibió erþetta hotaðsem slefá skrýmslum. Þegarþau svo opna munninn og öskra á kvikmyndatökuvélina sjáum við svona tægjur, það er sem sagtsvona gel." gRj* intlnw tímtUnu |gg^ Gerviblóð: „Ómissandi ÍISiíMmáM a^e9°g goman aðieika I sérmeð.Þaðerhægtað I panta þetta á netinu en ■ svoet lika hægt aðfinna uppskriftir á netinu og ’ hreinlega búa tilblóðið sjálfur steypumótaf ^ leirnum úrflnni steypu. Svo er latex sett yfir og þá líturþetta orðið raunveru- lega út. Inni I hausnum er svo hausnumersvo vélbúnaöur sem er .. stjórnaðmeð JkJ* stjórnaö með fjarstýringu og þá er hægt að hreyfa augu og munn." Daníel Svavarsson kom heim í maí frá Toronto í Kanada. Þar dvaldi hann í góðu yfirlæti í átta mánuði og kom heim með löggilt leyfi til að titía sig förðunarmeistara. „Ég lærði allt frá tískuförðun yfir í skrýmslaförð- un. Ég hef haft áhuga á þessu síðan ég man eftir mér. Ætíi áhuginn hafi ekki kviknað í öllu Starwars-æðinu. Ég æfði mig aðallega á sjálfum mér en svo hef líka alltaf teiknað og mál- að mikið." Daníel segir að það sé ekki mikið um tækifæri í hans fagi hér á landi og því sé hugurinn aftur farinn að reika til Toronto. „Það væri óvit- laust af mér að fara fljótlega og reyna að nýta þau sambönd sem ég byggði upp á meðan ég var þar. Þetta er svo mikill klíkuskapur." Daníel seg- ir kennarana sem kenna við Comp- lexions International-skólann vera í hæsta gæðaflokki og hafa flestir þeirra mikla reynslu af því að vinna í kvikmyndum. „Síðasti kennari sem kenndi mér er bróðir Bens Affleck og þeir eru nákvæmlega eins. Það var mjög fyndið." Draumur Daníels er að vinna að kvikmyndum en um sinn er hann að láta líða úr sér eftir hamaganginn í stórborginni. Hann er staddur á Akureyri þar sem hann vinnur á sambýli sem foreldrar hans reka. „Hér er yndislegt að vera. Við erum búin að hafa það gott í sumar og bralla ýmislegt. Við höfum meðal annars verið að gera skartgripi sem við seljum í ferðamannaverslun hér skammt frá," segir förðunarmeistar- inn að lokum. Kristín Björk Kristjánsdóttir er ein af þremur forstjórum Til- raunaeldhússins. Hún er tónlistarkona sem kallar sig Kiru Kiru þegar hún er í þeim ham. Kristín er nú aö taka upp bíómynd í samvinnu við Orra Jónsson ásamt því að vera að skipuleggja tón- leikaferð Tilraunaeldhússins til Bretlands, Frakklands og Japan. í kvöld heldur Tilraunaeldhúsið upphitunartónleika í Iðnó. Tilraunaeldhúsið býður upp í dans í kvöld Tilraunaeldhúsið var stofnað árið 1999 af Kristínu Björk Kristjánsdótt- ur, Jóhanni Jóhannssyni og Hilm- ari Jenssyni. „Eftir fjölmarga nörda- funda á götuhornum bæjarins um draumsýnir okkar þriggja ákváðum við að láta verkin tala. Tilraunaeld- húsið byrjaði sem tónleikasería þar sem ólíkt tónlistarfólk leiddi saman hesta sína og skapaði eitthvað nýtt í sameiningu." Nú sjö árum seinna er hægt að tala um Tilraunaeldhús- ið sem hugmyndabanka sem hefur komið að útgáfumálum, kvikmynd- um, myndlist, tónlist og útvarps- þáttum. Hugmyndafræðin er alltaf sú sama: samvinna sem felst í leit að nýjum listformum og að brjóta niður múra milli þeirra listforma sem við- urkennd eru í dag. Best þegar margir kollar mætast Þó svo að Kristín, Jóhann og Hilmar séu hinn eiginlegi kjarni Tilraunaeldhússins eru mun fleiri sem hlúa reglulega að hugmynda- fræðinni. „Við reynum að vera svo- lítið fjörug í að hóa í hina og þessa listamenn með einstök verkefrii og stundum leiðum við fólk saman. Það er mikið af drífandi og duglegu fólki í kringum okkur sem tekur reglulega þátt í verkefnum Tilraunaeldhússins. Verkin verða áhrifamest þegar marg- ir kollar mætast. Þau gerast gjarnan þannig að við þrenningin fáum ein- hverja grunnhugmynd og skorum svo á fólk tif að taka hana alla leið með okkur. Stundum spilum við með og stundum ekki. En það er óhætt að segja að við kveikjum elda," seg- ir Kristín. „Við erum kveikjarar." Tif- raunaeldhúsið hefur ferðast víða og hefur tekið þátt á mörgum tónlistar- hátíðum. Kristín segirþað því heppi- legt að margir komi að verkefninu hverju sinni því mikil vinna liggur á bak við alla skipulagningu. „Það er töff að vera stórhuga og mikilfengleg verk komast best á legg þegar margir hughraustir taka höndum saman." Safnplata á flakki I kvöld eru svo upphitunartón- leikar Tilraunaeldhússins í Iðnó. Þar koma fram Benni Hemm Hemm, Apparat Organ Quartet, Paul Ly- don og Kira Kira. Tilraunaeldhúsið er ekki á ókunnum slóðum því þau héldu útgáfutónleika safnplötunnar Kitchen Motors Family Album ein- mitt í Iðnó í sumar. Nú stendur til að kynna plötuna á erlendri grundu. „Við förum til Frakklands þar sem við spilum á hátíð sem heitir Northern Impact. Þetta er svona samstarfs- „Þaö er töff að vera stórhuga og mikilfengleg verk komast best á legg þegar margir hughraustir taka höndum saman." verkefni milli íslands og Frakklands. Þessi hátíð er dálítið spennt fyrir að kynda upp í samkrulli milli franskra og íslenskra listamanna og við lent- um í því. í kjölfarið verður svo sams konar húllumhæ hér á landi í mars, apríl og maí á næsta ári. En fýrst för- um við til Bretíands þar sem við spil- um á sex tónleikum. Ég hlakka mikið til enda skemmtilegur ferðaselskap- ur. Mér þykir mjög vænt um Fjöl- skyldualbúmið og það verður gott að hafa það í pokanum á flakkinu. Það var mjög gaman að búa til einn þétt- an böggul með gullum frá öllum sem eru að bauka í kringum okkur. Það voru að sjálfsögðu snillingar sem ég hefði gjarnan viljað hafa með en það eru víst takmörk fyrir því hvað kemst á einn geisladisk," segir Krist- ín. Á safnplötunni má finna lög eftir marga spennandi listamenn á borð við múm, Mugison, Aminu, Jónsa í Sigur Rós og Benna Hemm Hemm. Lög sem flest voru sérstaklega samin fyrir þetta tilefni. Tilraunaeldhúsið og Benni Hemm Hemm fara til Japan Safnplata Tilraunaeldhússins kom út í Japan í apríl og til stend- ur að herja enn frekar á þann mark- að með tónleikaferð í desember. „Ég frétti af því að Benni Hemm Hemm væri að plotta túr til Japans svo ég hóaði í hann og við ákváðum að gera þetta í sameiningu. Það var búið að vera draumur hjá mér lengi að fara með Tilraunaeldhúsið til Japans en ég dvaldi þar í þrjá mánuði 1999. Það er í raun algjört kraftaverk að þessi Kristín Björk tilraunakona ferð skuli brátt verða að veruleika. Að skipuleggja ferð fyrir 23 til Japan er ekkert grín." Kvikmynd um fallegan karakter Ásamt allri þessari skipulagn- ingu, hugmyndasmíði og tónsmíði er Kristín um þessar mundir að taka upp kvikmynd með Orra Jónssyni úr hljómsveitinni Slowblow. „Við erum að gera bíómynd um Sigríði Níels- dóttur, tónlistarkonu. Þetta verður bræðingur af klippimyndum, hreyfi- myndum og teiknimyndum þar sem við brúkum aðallega súper 8 og 16 mm vélar. Inga Birgisdóttir og Magn- ús Helgason eru að bauka í skrípó- inu á meðan við Orri vöppum um með hetjunni okkar. Sumir gætu litið á þetta sem heimildarmynd en þetta gæti hæglega endað sem tveggja tíma stór mynd. Sigríður er einhver magnaðasta kona sem ég hef kynnst á ævinni og sögurnar sem búa und- ir silfruðu lokkunum eru jafn heill- andi og þær eru merkilegar. Við vilj- um fanga þennan fallega karakter sem best, kíkja inn í sjarmerandi til- veru hennar á hinum ýmsu árstíðum og fylgjast með hversdagslegu bauki hennar. Þetta er svo merkileg kona." berglind@dv.is Forráðamennirnir gáfu út til- kynningu í síðustu viku þar sem þeir sögðu að í lok þessa árs yrði tónlistarmönnuin gert kleift að selja rnúsík á síðum sínum. Líklegt er að þetta verði að veruleika í lok þessa árs og gert í samstarfi við fýr- irtækið Snocap sem sérhæflr sig í stefgjaldamálum. í sömu tilkynn- ingu eru aðrir sem fást við sölu á tónlist í netheimum beðnir um að vara sig. Ljóst er að þarna er átt við fyrirtæki á borð við Apple, Napster og Real Network. Fleiri vinir - meira töff Fyrir þá sem ekki til þekkja þá er myspace.com vefsvæði þar sem hægt er að flakka á milli síða í leit að vin- um. Því fleiri vini sem þú átt því meira töff ertu. Tónlistarmenn hafa notfært sér þennan heim óspart til að kynna efni sitt því síðan er ókeypis og engra forritunarktmnáttu krafist. Þetta er líka kjörin leiö fyrir aðdáendur til að nálgast tónlistannennina og fólk al- mennt til að kynna sér nýjar stefnur og strauma í múskíkheimum. Það eru samt ekki aðeins óþekktir tónlistar- menn sem notfæra sér þennan heim heldur einnig stórstjömur á borð við Madonnu og Björk. íslendingar meika það á MySpace Heyrst hefur að fullt af íslenskum tónlistarmönnum sé að gera það gott í þessum vinalteimi. Iíljómsveitin Seabear hefur fengið gríðarlega góðar undirtektir og haldið nokkrum sirrn- um í víking fýrir tilstuðlan MySpace. Hljómsveitin FM Belfast er annað gott dæmi en það eru örugglega ekki margir sem hafa heyrt í þessu fanta- góða dúói. Þeim hefur engu að síð- ur tekist að landa samningi við þýskt úgáfufyrirtæki. Það hafa mörg mun . þekktari bönd reynt en án árangurs. Hver kaupir? Spumingin er hins vegar sú hvort fólk hali yfirhöfuð áhuga á að kaupa lög á MySpace. Er ekki einmitt snilld- in við þessa hugmyndafræði sú að hægt er að kynna sér alls kyns tón- list frítt? Ef skoðaðar eru síður skær- ustu stjama hýsilsins má fylgjast með hversu margir hafa kikt í heimsókn þann daginn og hlustað á músíkina. Þá er líka boðið upp á ókeypis niður- Hijómsveitin Seabear Meikar það á myspace.com. hal á mörgum síðum en ótrúlega fáir notfæra sér það - samt er það ókeypis. Það er því ólíklegt að fólk eigi eftir að standa í því að kaupa eitt og eitt lag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.