Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Page 38
58 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 Sakamál DV Morðin í Manchester Rahan Arsliad var hand- tekinn af landamœralögreglu í Taílandi í síðustu viku þegar hann reyndi að komast yfir til Malasíu. Breska og tæl- enska lögreglan voru viðbunar að hann reyndi að kornast frá Taílandi en þar hef- ur hann dvaliö í fjórar vikur. Arshad var eftirlýstur og óttast um öryggi sitt eftir að kona hans og þrjú börn fund- ust látin á heimili þeirra ná- lægt Manchester. Höfðu líkin verið í húsi þeirra hjóna í nær fjórar vikur. Bíll hans fannst á I ieathrow og var talið að hann hefði flúið land. Arshad er 36 ára. Fjölskyld- an var vel þokkuð í þorpinu þar sem þau höfðu búið um nokk- urt skeið. Arshad var handtek- inn við komuna til Bretlands á föstudag og er í haldi lögreglu grunaður um morðin. Morðingi reynirað kála sér Ian I iuntley sem myrti tvær ungar stúlkur, I Iolly VVells og Jessicu Chapman, reyndi að stytta sér líf á þriðjudagsmorg- un. Hann var í haldi í fang- elsinu íWakefield. Ilann var meðvitundarlaus og fluttur á sjúkrahús til meöferðar. hetta er önnur tilraun hans til sjálfsvígs. Fyrri tilrattnin í júní 2003 vakti mikla gagnrýni á eftirlit með hættulegustu glæpamönnun- um í breskum fangelsum. Krimmi vann fyrir lögguna 1 htnn var þekktur sem Boom Boont í glæpaheimi Skotlands og Norður-Englands og öllum var léti þegar Stephen McColl var dæmdur í vikttlok fyrir tvö morð. Verra þótti aö hann vann fyrir lögregluna sem uppljóstr- ari frá vori 2001. Áður haföi hunn verið dæmdttr fyrir rnorð á slökkvi- liðsmanni sem hann skaut í hnakkann. 1 lann var þá á kali í vopnuðum ránum. Annað fórn- arlamb var ungur strákur sem líka lak í lögguna en það þriðja smákrimmi sem baföi vanvirt Boom Boom og galt fyrir meö lífinu. lengsl morðingjans viö lög- reglu eru rannsóknareíni og hafa fjóriryfirmenn fengið viö- vörun vegna tengslanna viö þennan ofbeldisfulla krimma. Fanginn til átta ára hefur talaö í Austurríki: blöð og tímarit birtu viðtöl við hana á mið- vikudag og þá um kvöldið sat hinn þýskumælandi heimur agndofa yfir viðtali sem birt- ist við hana í austurríska sjónvarpinu. Gat hugsað sér að drepa ræningjann Unga stúlkan sem tók stökkið til frelsisins þann 23. ágúst síðastliðinn, meðan maðurinn sem hafði haldið henni fanginni í átta og hálft ár var upptekinn í gemsanum sínum, held- ur nú Evrópubúum föngnum. Tvö stór viðtöl hafa birst við hana síðustu dægrin. Austurríska sjónvarpið seg- ist ekki hafa greitt henni fyrir viðtal en áður en það fór í loftið var aukaupp- lag prentað af tímaritinu News. Þar segir Natascha að allan tímann hafi hún hugsað um það eitt hvernig hún gæti sloppið úr sinni löngu prísund. Fugl í kró Natascha Kampusch segir þá hugsun stöðugt hafa dunið í huga sér: „Hvers vegna henti þetta mig af öllum? Ekki fæddist ég til þess eins að vera læst inni og líf mitt yrði eyði- lagt um alla framtíð. Mér leið alltaf eins og hænu í kró. Fólk hefur séð í sjónvarpi hversu lítill klefi minn var." Hana haft oft dreymt um að höggva hausinn af haldara sínum. Stressað hjarta Viðtalið var tekið við hana á sjúkrahúsi en hún hefur áttvið hjarta- truflanir að stríða og var skoðuð af hjartasérfræðingum. Hún kvaðst hafa þjáðst af hjartslætti og hafi oft fengið svima og minni hennar sé skert. Þá hafl henni oft verið gefið lít- ið að borða en staðhæft er í austur- rískum fjölmiðlum að hún hafi verið aðeins 42 kíló þegar hún slapp, álíka þung og þegar henni var rænt rúm- um átta árum fyrr. Hún vonast nú til að ná áttum utan múranna. Æðrulaus ung kona í viðtali í ORF á miðvikudags- kvöld lýsti hún hvernig hún reyndi áð ná augnsambandi við fólk þeg- ar haldari hennar fór með hana út að versla. Hún lýsti þar átakanlega þögninni sem ríkti í klefanum þar sem hún dvaldi lengst. Saga hennar birtist í lengri út- gáfu í blaðinu Kronen Zei- tung næstu daga en þeir hófu einnig að rekja harma- sögu stúlk- unnar á mið- vikudag. í síðustu viku sendi hún frá sér yfirlýsingu sem lýsir að nokkru hug- arástandi stúlkunn- ar en hún harmar þar örlög hald- . ara síns, Wolfgangs Priktopil, sem stökk fyrir lest fáum klukkustundum eftir flótta hennar. Segist hún þar harma örlög hans. Hrein mey Natascha kemur fram fyrir augu al- þjóðar og rýfur þar með þá leynd sem höfð var um persónu hennar, bæði í myndum í blöðum og í viðtali mið- vikudagsins. Þetta er brosmild stúlka sem felur vel dapurlega reynslu sína og virðist staðráðin í að ná fótfestu í mannlegu samfélagi á ný. 1 viðtalinu við ORF var ímynd hennar sú sama og í blaðaviðtölum: hún var ekki mik- ið förðuð og svipurinn hófstilltur. At- hyglisvert þótti að hún var með slæðu um höfuðið en slæðan hefur bæði í samfélagi kristinna og múslima verið tákn um hrein- leika og tryggð. Þannig er öll ímynd stúlkunn- ar þessi fyrstu dægur sem hún kemur fram stillt inn á að milda ímynd hennar og hlaða jákvæðum krafti. Ræninginn Woifgang I viötölum vikunnar hefur Natascha lýst áhyggjum sínum afmóöur hans sem ekki þekkti þessa hliö sonarslns. Utgefandi vikublaðsins NEWS Alfred Worm kynnir fyrsta langa viötalið sem birtist á miðvikudag við Natöschu. Þegar dagurinn var allur voru þau oröin þrjú. Reuter/ Heinz-Peter Bader t # Faðirinn sem stökk með börn sín fram af svölum ber við stundarbrjálæði Man ekki eftir atvikinu sem kostaði son hans lífið Hér á síðunni var fyrir skömmu skýrt frá ógæfu enskrar fjölskyldu í fríi á Krít: faðirinn, John Hog- an, henti sér ásamt tveimur ungum börnum fram af svölum á fjórðu hæð og lést annað þeirra, sonurinn Liam, af höfuðáverkum við fallið, en dótt- irn Mia handleggsbrotnaði. Hogan, sem er 32 ára athafnamaður, hefur átt við geðræn vandamál að stríða. Vakti nokkra athygli þegar að útför sonarins kom að eiginkona Hog- ans tók upp hanskann fyrir bónda sinn og sagði hann fýrirmyndarföð- ur. Hogan er enn í haldi í Korydalos- fangelsinu og undir ströngu eftirliti, en hann er sagður þjást af háskalegu þunglyndi. Þrátt fyrir stöðugt eftir- lit tókst honum að komast yflr gler- brot í síðustu viku og skera sig á púls á báðum höndum. Höfðu geðlæknar varað yfirvöld við alvarlegu ástandi mannsins en það dugði ekki til. Eftir þessa tilraun til sjálfsvígs hefur gæsla hans verið bætt en hann mun vera úr allri hættu. Samkvæmt frásögn blaðsins Gu- ardian mun Hogan ekki muna neitt til atvikanna sem urðu syni hans að bana fyrir þremur vikum. Hann hef- ur sent frá sér yflrlýsingu þar sem til- drög slyssins eru rakin en kona hans hafði hótað að slíta samvistum þeirra hjóna. Að auki var flísafyrirtæki hans á fallanda fæti og kennir hann þessu tvennu um stundarbrjálæði sitt. Réttarhöld hefjast í máli hans á næsta ári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.