Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Page 28
1
28 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006
Helgin DV
Guðrún Bjarnadóttir var valin alheims-
fegurðardrottning árið 1963 fyrst allra ís-
lenskra stúlkna. í 15 ár starfaði Guðrún
sem ofurfyrirsæta um allan heim og er í
dag í hópi allra ríkustu íslendinga. Dýrðar-
ljómi hefur legið yfir lífshlaupi Guðrúnar
en þeir sem þekkja til hennar segja vel-
gengnina ekki hafa breytt henni, hún sé
enn stúlkan frá Njarðvík sem dreymdi um
að slá i gegn í tískuheiminum.
Guðrún Bjarnadóttir, einn rik-
asti íslendingurinn og fyrsta íslenska
alheimsfegurðardrottningin, fæddist
þann 11. desember 1942 í Ytri-Njarð-
vík. Foreldrar hennar voru Bjami Ein-
arsson skipasmíðameistari og Sigríð-
ur Stefánsdóttir en þau létust bæði
árið 2001. Bjarni og Sigríður áttu þrjú
böm en systkini Guðrúnar eru Stefán
sem búsettur er á Sigluflrði og Mar-
grét Rósa, búsett í Reykjavík, og er
Guðrún í miðið. Stefán bróðir Guð-
rúnar er giftur Guðrúnu Sigríði Geirs-
dóttur sem kosin var fegurðardrottn-
ing íslands árið 1959.
Súrsætur sigur
Guðrún tók þátt í keppninni Ung-
frú fsland árið 1962 þá m'tján ára. Eft-
ir að hafa hlotið titilinn starfaði hún
sem fyrirsæta hér heima og hélt síð-
an til Parísar til að elta uppi framann
og komst fljótt að hjá einni þekktustu
módelskrifstofunni í París og fékk
fjölda spennandi verkefna í kjölfarið.
Stóra keppnin, Ungfrú alheim-
ur, var því fjarri huga hennar á þeim
tíma. Aðstandendur keppninnar hér
heima vildu hins vegar að Guðrún
tæki þátt sem hún gerði og meira
en það. Guðrún kom, sá og sigraði
87 aðrar stúlkur og var kjörin ungfrú
alheimur. Verðlaunaféð var 10 þús-
und dalir og titlinum fylgdi talsverð
frægð, mun meiri en þekkist í dag.
í dómnefndinni sátu ýmsar þekktar
amerískar stjörnur, einn Bonanza-
feðga og Zsa Zsa Gabor.
Guðrún hafði fyrir keppnina ver-
ið fullvissuð um að hún myndi ekki
vinna enda var þá frami hennar á
fyrirsætusviðinu í hættu, fjöldi verk-
efna beið hennar mánuðina sem í
hönd fóru og sigursætinu fylgdu ýms-
ar skyldur. Hún tók þó þátt og var af-
slöppuð og sjálfri sér lík í keppninni -
ekki kærulaus en laus við alla spennu.
Það hefur líklega tryggt henni sigur-
inn fyrir utan glæsilegan burð henn-
ar, alúðlegt fas og einstakan fríðleik.
Sigur hennar var súrsætur en með
kænsku tókst Guðrúnu að komast
undan þeim verkefnum sem fylgdu
titlinum og koma sér aftur til París-
ar til að starfa áfram sem fyrirsæta
en kom þó og krýndi arftaka sinn ári
síðar. Heiðar Jónsson snyrtir og vin-
ur Guðrúnar segir hana hafa grátið
þegar í ljós kom að hún hefði sigrað.
„Allir töldu að hún væri að gráta af
gleði eins og gengur og gerist í þess-
um bransa en Guðrún var hins vegar
í sjokki," segir Heiðar.
Ástir og sorgir
Guðrún varð fljótlega ein þekkt-
„Allir töldu að hún væri
að gráta afgleði eins og
gengur og gerist í þess-
um bransa en Guðrún
var hins vegar í sjokki"
asta ljósmyndafyrirsæta heims og
sat fyrir í mörgum virtustu og þekkt-
ustu tískublöðunum. Hún var þó
ekki eina íslenska ofurfyrirsætan á
þessum tíma. Vinkonur hennar og
fegurðardrottningarnar María Guð-
mundsdóttir og Thelma Ingvarsdótt-
ir voru einnig í bransanum og voru
þessar þrjár á meðal þeirra stærstu.
Heiðar Jónsson segir þær hafa gert
það að verkum að í gegnum árin hafi
íslenskum fyrirsætum verið gert hátt
undir höfði. „Eldra fólk í bransanum
man eftír þessum þremur sem kunnu
að vinna en voru ekld þeir vælukjóar
sem margar þessara stelpna eru. Þær
komu góðu spori á nafn íslenskra fyr-
irsæta því þær voru ekki með neitt
rugl. Þær voru ekld að djamma og
mættu ferskar og gátu starfað allan
sólarhringinn án þess að væla."
I bókirmi Islenskir milljarðamær-
ingar eftir Pálma Jónasson kemur
fram að Guðrún hafi auðgast mik-
ið sem fyrirsæta en að hún hafl erft
mestu auðæfin frá eiginmanni sín-
um sem hún kynntíst eftir að fyrir-
sætuferli hennar lauk. Hinn aldraði
ítalski milljarðamæringur Basiano
Bergese féll fyrir fegurð Guðrún-
ar en hún kynntíst Bergese sem var
lyfjaframleiðandi eftir að hafa setíð
í 15 ár á toppnum í tískuheiminum.
Bjuggu Guðrún og Bergese saman í
Sviss þar til hann lést eftir baráttu við
krabbamein árið 1990.
Bergese hafði auðgast á lyfjasölu
en einbeitti sér síðustu árin að hluta-
bréfaviðskiptum. I viðtali við Heims-
mynd árið 1992 sagði Guðrún að
Bergese hefði arfleitt hana að fleiru
en peningum. Hann hefði einnig
skilið hana eftir með talsverða þekk-
ingu á hlutabréfamarkaðnum.
Bergese var ekki fyrstí eiginmað-
ur Guðrúnar. Áður hafði hún kynnst
frönskum þingmanni, Massoubre
að nafni, en með honum á hún eina
barn sitt, Sigmar Aimery Massoubre,
sem ólst að mestu upp hjá foreldrum
Guðrúnar á meðan móðir hans starf-
aði sem fyrirsæta. Sigmar fæddist árið
1970 og er búsettur í Frakklandi og
starfar hjá Evrópusambandinu.
Ekki viðurkennd
alheimsfegurðardrottning
f bókinni íslenskir auðmenn eft-
ir þá Pálma Jónasson og Jónas Sig-
urgeirsson kemur fram að Guðrún
sé á meðal allra ríkustu íslendinga.
Hún eigi meðal annars glæsiíbúðir í
helstu stórborgum heimsins þótt að-
alaðsetur hennar sé í Genf í Sviss.
Guðrún hefur haldið einkalífi
sínu út af fýrir sig og veittí engin við-
töl fyrr en árið 1992 þegar Herdís Þor-
geirsdóttir þáverandi ritstjóri Heims-
myndar heimsóttí hana tÚ Parísar og
tók við hana ítarlegt viðtal.
Þá kom hún ffarn í þáttaröð
um sögu fegurðarsamkeppninnar
árið 2000 þar sem Jón Karl Helga-
son ræddi við hana. Viðtalið við Jón
veitti Guðrún með því skilyrði að
hann hefði upp á kvikmyndatöku af
keppninni á Langasandi í Kaliforníu
sem hún var fullviss að væri tíl. Jón
fór á stúfana og hafði upp á mynd-
bút frá krýningunni. I kaupbæti fékk
hann að heyra söguna um sigurinn
og flótta Guðrúnar frá titlinum og
skyldunum sem honum fýlgdi. Eftir
krýninguna hafði Guðrún verið þess
staðráðin að láta skyldur alheimsfeg-
urðardrottningar ekki stöðva frama
sinn á fýrirsætuferlinum. Hún pakk-
aði því saman með hraði og stakk af.
Um þriggja mánaða skeið lét hún
forráðamenn keppninnar ekki hafa
uppi á sér en sinntí störfum sínum
áfram. Þessu var illa tekið í höfuð-
stöðvum Ungfrúr alheims og henni
var fyrir vildð neitað um viðurkenn-
ingarskjal fýrir sigrinum.
Lítíð er vitað um lífshlaup Guð-
rúnar eftir að viðtalið var tekið en þó
segja þeir sem til hennar þekkja að
hún hafi helgað líf sitt því að rækta
útlit sitt og heilbrigði. Þrátt fyrir að
vera þekkt á meðal hinna rílcu hef-
ur Guðrún farið leynt með auð sinn
sem er umtalsverður, líklega í kring-
um sex milljarðar króna.
Á sundbol niður Laugaveginn
í bókinni Brosað í gegnum tár-
in eftir Sæunni Ólafsdóttur er stóri
dagurinn, þegar Guðrún var valin
ungfrú ísland, rifjaður upp. Keppn-
in fór fram í Austurbæjarbíói þar
sem stúlkumar spókuðu sig á kjól-
um og sundfötum á milli skemmtiat-
riða. Úrshtin voru hins vegar tilkynnt
síðar um kvöldið á skemmtistaðnum
Glaumbæ en þangað voru stúllcurn-
ar keyrðar á flugvélatröppum sem
dregnar voru á eftír vörubíl niður
Laugaveginn á sundbolunum ein-
um fata. Þegar stúlkurnar komu
kaldar í Glaumbæ fengu þær tíma
tíl að hlýja sér eftir ferðina á meðan
nokkrir myndarlegir drengir sýndu
karlatískuna undir stjórn Jóns Múla
Árnasonar sem var kynnir kvöldsins.
Guðrún þótti vel að títlinum komin
og var það Guðrún Sigríður Geirs-
dóttir, eða Sirrý Geirs eins og hún er
jafnan kölluð, ungfrú Island 1959,
sem krýndi arftaka sinn. Sirrý áttí
síðar eftir að giftast Stefáni bróður
Guðrúnar og hitti þarna væntanleg-
an eiginmann sinn í fýrsta skiptíð er
hún krýndi systur hans.
Anna systir Sirrýar lentí svo í öðru
sætí og tryggði sér í leiðinni títilinn
ungfrú Reykjavík en á þessum tíma
var venjan sú að stúlkan sem náði
öðru sæti fengi þann títíl. í Brosað í
gegnum tárin kemur fram að Guð-
rún hafi verið í öllum íslensku fjöl-
miðlunum eftir sigurinn og að mál
hennar hafi verið birt eins og til-
hlýðilegt þóttí en Guðrún var 173 sm
á hæð og hafði brjóstmál 90, mitti 60
og mjaðmir 91 sm.
Falleg blindum sem sjáandi
Heiðar Jónsson snyrtír er einn af
bestu vinum Guðrúnar. í ævisögu
Heiðars skrifaði Guðrún fallegan
inngang um vin sinn. Sjálfur segir
Heiðar að Guðrún sé fallegasta feg-
urðardrottning sem ísland hafi alið
af sér og þótt víðar væri leitað. „Guð-
rún er fullkomin heimskona. Hún
hefur að bera gífurlega visku um
lífið og tilveruna og hún er afskap-
lega heil og spennandi kona," segir
Heiðar og bætír aðspurður við að öll
velgengnin og ríkidæmið hafi ekki
breytt henni. „Hún er svo falleg en
gerir sér alls ekki grein fyrir því sjálf.
Ég hef orðið vitni að því að karlmenn
gangi á húsvegg þegar þeir stara á
hana en hún trúir aldrei að hún hafi
þessi áhrif og eitt skiptíð hélt hún
því fram að maðurinn hlyti að vera
spastískur, hún gæti ekki hafa haft
þessi áhrif á hann. Þetta er hennar
jarðbinding."
Sú fegursta
„Að mínu mati er hún enn feg-
urri í dag en þegar hún var ung-
frú alheimur en ég veit ekki hvað
þeim sem þekkja hana ekki finnst
um hana. Hún er svo einstaklega
ljúf, þægileg og heillandi mann-
eskja burtséð frá því að vera Guðrún
Bjarnadóttir. Hún hefur afskaplega
fáar rúnir í andlitínu miðað við aldur
og fýrri störf en hver rún gerir hana
fallegri. Hún hefur einstakan per-
sónuleika og töfra og ég hef stund-
um velt fýrir mér hvernig áhrif hún
hefði ef hún væri ekki svona falleg.
Ég veit elcki hvað fegurð hennar er
mildð af þessu en ég hef grun um að
manneskjan sjálf sé svona falleg þótt
ytri fegurðin hafi ekki skemmt fýr-
ir henni. Ætli hún sé ekld alveg jafn
spennandi blindum og þeim sjáandi
því Guðrún er bara ein af þessum
manneskjum sem eru dálítíð stærri
en h'fið sjálf."
Gerir það sem þarf að gera
Heiðar lflct og aðrir vinir Guð-
rúnar virðir álcvörðun hennar um líf
fjarri kastljósi fjölmiðlanna. Hann
er hins vegar til í að deila einni sögu
með lesendum enda hefur Guð-
rún sjálf sagt söguna í viðtali. „Þeg-