Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Síða 57
DV Sjónvarp
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 77
Á dagskrá næstu daga
Robbie Williams er kominn í gírinn aftur og er að ljúka
löngu og ströngu tónleikaferðalagi í heimalandinu góða,
Bretlandi. Kappinn er aftur kominn í sviðsljósið eftir um 3
ára fjarveru og er ekki af verri endanum. Tónleikarnir eru
víst stórkostlegir, sjarmatröllið stórfenglegt og að sjálfsögðu
mun þjóðin geta fylgst með á sjónvarpsstöðinni Sirkus og
útvarpstöðinni FM 957 á laugardagskvöldið klukkan 20.
Robbie Williams
er karl íkrapinu
Fyrsti túrinn í 3 ár
Robbie Williams hinn hálffer-
tugi kappi hefur haft nóg að gera
undanfarna daga ef ekki mánuði.
Kappinn hefur látið lítið fyrir sér
fara undanfarin ár og hefur ekki
túrað í um 3 ár. Þrátt fyrir hvíldina
er hann kominn á fulft aftur og er
núna búinn að túra í 44 löndum án
þess að blása úr nös. Tónleikarn-
ir eru haldnir í Leeds í Bretlandi
og er þetta lokaáfangastaðurinn í
túmum en Robbie Williams mun
að sjálfsögðu halda fleiri en eina
tónleika í heimalandinu góða.
Sviðið í laginu eins og
geimskip
Sjarmurinn syngur eins og
hann elskar ef fara má eftir slúð-
urblöðunum sem hafa sagt frá
kynlífsfíkn stráksins. Robbie
Williams gerir þetta með trompi
og tekur hvert landið af öðru og
hefur haft gaman af. Tónleikarn-
ir eru gríðarlega stórir og munu
fáir ef einhverjir verða fyrir von-
brigðum. „Þetta eru náttúrulega
engir smávegis tónleikar, sviðið er
gríðarlega stórt og í laginu eins og
geimskip. Það kemur aðallega út
af því að tónleikaferðalagið heit-
ir Closing Counters eins og gamla
geimmyndin. Hann er að vinna
að nýrri plötu en í fyrradag kom
út smáskífa með honum og mun
hann spila eitt af nýju lögunum
af plötunni á tónfeikunum sem
við munum sýna. Það er bara um
að gera að leggja við hlustir og
njóta," segir Daníel Trausta sem
mun svo sannarlega fylgjast með
tónleikunum.
44tónleikarí 14löndum
Af þessu tilefni gefst aðdá-
endum og forvitnum kostur á að
hlusta á Robbie Williams „live" á
laugardaginn. Það verður útsend-
ing á Sirkus og ekki nóg með það
heldur geta þeir sem vilja hlusta
en ekki horfa stillt á FM 957.
„Við verðum sem sagt með
beina útsendingu á laugardaginn
klukkan 20," segir Daníel Trausta
útvarpsmaður. Þetta verður bæði
á sjónvarpsstöðinni Sirkus og á
útvarpsstöðinni FM957 en Robbie
Williams er búinn að vera að túra
á 44 tónleikum í um fjórtán lönd-
um. Þetta er fyrsti túrinn hans í 3
ár en hann er núna búinn að spUa
fyrir meira en 3 milljónir manna
og það telst ekki amalegt. Þetta er
bein útsending frá Bretlandi og
er send út um aUan heim," segir
Daníel Trausta að vonum ánægð-
ur með kappann.
Þriðjudagur
Stöð 2 - Hustle - kl. 20.50
Ofursvalir breskir glæpaþættir með gamansömu ívafi um svikahrappa
sem svífast einskis. í þáttunum, sem svipað hefur tíl Ocean's Eleven-mynd-
anna, mæta bragðarefurinn Mickey Stone og glæpafélagamir hans á ný
og hafa sem fyrr nóg á prjónunum; hvert fullkomna ránið á fætur öðru -
það er að segja fullkomin á pappírunum. Enn og aftur er dagskipunin að
blekkja forrík fómarlömb, sem kunna ekki aura sinna tal, og hafa af þeim
fúlgur fjár. En jafnvel þótt fáir standist þessum flotta flokki snúning er kem-
ur að svikum og prettum þá gerist það ítrekað að eitthvað fer úrskeiðis og
þá eru góð ráð dýr. Með aðalhlutverk í þáttunum fer meðal annarra Robert
Vaughn sem gerði garðinn frægan hér á 7. áratug síðasta aldar í sjónvarps-
þáttunum vinsælu The Man From U.N.C.L.E.
Miðvikudagur
Sýn - Ensku mörkin 2006-2007 - kl. 17.30
Frábær þáttur þar sem farið er yflr allt það helsta á hverjum tíma í ensku
úrvalsdeildinni í knattspymu. Mörg félaganna í þessari deild eru með ís-
lenska leikmenn á sínum snæmm og því kærkomið að fá tækifæri til þess
að fylgjast með tilþrifum þeirra í hverri einustu umferð.
Skjárinn - America's NextTop Model
-kl. 21.30
Leitin að næstu ofurfyrirsætu Banda-
ríkjanna hefur vakið mikla og verðskuld-
aða athygli á íslandi og er þátturinn
meðal vinsælustu raunveruleikaþátta í
heiminum. Sigurvegurum þáttanna hef-
ur jafiian vegnað vel í fyrirsætuheimin-
um og hefur stór hluti íslensku þjóðar-
innar setið límdur við skjáinn þegar nær
dregur úrslitum. Nú er komið að fimmtu þáttaröðinni og er óhætt að búast
við jafn mikilli spennu og áður, ef ekki meiri. Til baka.
Fimmtudagur
Stöð 2 - Big Love - kl. 20.30
Nýir bandarískir framhaldsþættir úr smiðju HBO sem hlotið hafa ein-
róma lof gagnrýnenda og vakið fádæma mikið umtal enda er sögusvið
þeirra í meira lagi viðkvæmt og ögrandi. Þættimir gerast í samfélagi morm-
óna í Salt Lake City í Utah-ríki þar sem fjölkvæni er viðurkennt og leyfilegt.
Bill Heckerlick, leildnn af Bill Paxton, er sómaborgari, heittrúaður morm-
óni og farsæll í starfi sínu sem verslunareigandi. Hann er líka einlægur
fjölskyldumaður og fyrirmyndarfyrirvinna. Ekki veitir heldur af því hann
á þrjár eiginkonur og sjö böm. Þessir athyglisverðu þættir, sem svipar til
þátta á borð við Sbc Feet Under, fjalla um daglegt líf þessarar allsérstæðu
fjölskyldu og eftir því sem fram vindur fáum við betur að kynnast eigin-
konunum þremur og öðlumst betri innsýn í hvað á sér stað undir sléttu og
felldu yfirborðinu.
BYLTING í SVEFNLAUSNUM OG FAGLEG RÁÐGJÖF
OG MEIRI VELLÍÐAN
www.rumqott.is
svæðaskiptar heilsudýnur
sniðnar að viðkomandi.
Verslunin Rúmgott • Smiðjuvegi 2 • Kópavogi • Sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16
BETRI HVÍLD, DÝPRI SVEFN
Rúmgott er leiðandi í þróun
og framleiðslu á heilsudýnum
og rúmbotnum undir vöru-
merkinu EZ-sleep á íslandi.
Við höfum yfir að ráða
fullkomnum tækjabúnaði til
að mæla þrýstijöfnun á líkama
hvers einstaklings sem gerir
okkur kleift að framleiða