Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1957, Blaðsíða 8

Freyr - 01.09.1957, Blaðsíða 8
260 FREYR með breyttu búskaparlagi haft allt að eða kannske fyllilega helmingi meiri arð af búi sínu. Bóndi D. Þá förum við í fjórðu sveit- ina og tökum bónda D þaðan. Hann átti 24100 F.E. haustið 1955, þar af 800 kg síld- armjöl. Á þetta fóður setti hann 3 kýr, 1 vetrung, 2 hross og 304 kindur. Ær voru ekki vegnar um veturinn, svo ekki er hægt að segja hvernig þær voru fóðraðar. Bóndi D hafði þennan arð af búi sínu 1955—56: 6600 kg mjólk á 2.50 ......... kr. 16.500.00 180 lömb. Meðal sláturlamb lagði sig með 12.9 kg fall, og sé meðal líflamb eins, gera lömbin 2322 kg á 16.00 pr. kg — 37.152.00 190 kg ull (af 304 kindum) á 10.00 pr. kg ................. — 1.900.00 299 kg gærur á 10.00 pr. kg — 2.990 00 200 kg nautakjöt á 16.00 pr. kg ........................... — 3.200.00 Alls kr. 61.742.00 Ef við aðgætum þessa fjóra bændur nán- ar og gerum á þeim samanburð, þá lítur hann þannig út: A B C D Eiga fóður F.E. 26750 26710 42500 24100 Setja á það kýr 3 3 6 3 Vetrunga 0 15 1 Hross 2 3 7 2 Sauðfé 213 134 194 304 Brúttó arður kr. 123577 87998 68587 61742 A og C búa á jörðum, sem taldar eru góð- ar beitarjarðir. D á sæmilegri beitarjörð, en B á jörð, þar sem talin er léleg beit, og mun hann lítið beita nema eitthvað framan af vetri. A hefur góða afrétt, hinir sæmileg- ar og svipaðar allir þrír eftir því sem talið er. Munurinn á arði búanna stafar af mis- jöfnu búskaparlagi, að minnsta kosti að langmestu leyti. Ég vil biðja bændur að athuga þessi dæmi vel og hugleiða, hvort ekki sé ástæða til að breyta til um búskaparlagið. Þeir sem eru að breyta til. í einni sveit, þar sem menn eru að breyta til um fóðrun fjárins, hef ég aðgætt meðal fallþunga dilka eftir fóðrun ánna. Sveitin á góða afrétt: 759 ær léttust um 2—3 kg frá miðsvetrarvigt til vors. Meðalfall1) 14.01 401 — — — 1—2 207 — — — 0—1 1431 — þyngdust um 0—1 403 — — — 1—2 280 — — — 2—3 527 — — — 3—4 194 — — — 4—5 Þessar tölur tala sínu máli, og nægjanlega greinilega vegna þess að til muna fleiri tvílembingar eru hjá bændun- um, sem áttu œrnar sem þyngdust milli 2 og 5 kg en hinum, og alls enginn hjá þeim, sem œrnar léttust hjá um 2—3 kg. •k Tilgangur minn með þessari grein er sá að sýna bændunum, sem á eftir eru með 14.84 15.97 16.01 17.50 17.75 17.99 18.30 búskap sinn, sýnishorn á búskap þeirra, sem meiri arð hafa af búum dnum, í von um að þeir taki þá sér til fyrirmyndar og breyti til. í bændaferðunum, sem nú tíðk- ast að fara, ættu þeir að kynnast þessu, spyrja um búskaparhættina og læra hver af öðrum. i) Meðalfall — meðalfall lamba að hausti.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.