Freyr - 01.09.1957, Qupperneq 26
278
FREYR
Úr Reykjadal
!| Tryggvi bóndi Sigtryggsson á
jj Laugabóli segir lesendum
M af starfi Jarðrœktarsam-
!! bandsins Smára.
Jarðræktarsambandið Smári var stofnað
árið 1948 af búnaðarfélögunum í Reykdæla
og Skútustaðahreppum. Á þeim árum var
erfitt að fá innfluttar beltisdráttarvélar.
Hafði stjórn sambandsins sótt um kaup á
vél af International-gerð, en vegna þess,
hve erfiðlega gekk að fá slíka vél, var horf-
ið af því að kaupa Cletrac beltisvél, og kom
hún hingað haustið 1949. Gekk rekstur
þessarar vélar sæmilega 2 fyrstu árin, en
eftir það gekk reksturinn illa. Var það hvor-
tveggja að viðgerðarkostnaður varð mjög
mikill og afköst lítil, sem stafaði af því að
vélin var oft í lamasessi.
Árið 1954 var svo ráðist í að kaupa aðra
beltisdráttarvél, T.D. 14. Jafnframt réði
sambandið til sín sem framkvæmdarstjóra
Björn Guðmundsson á Stöng. Var samið
þannig við hann, að hann tæki þátt í
rekstri vélanna þannig, að hann legði fram
nokkurn hlut (%) af stofnfé sambandsins,
og bæði ábyrgð á rekstri vélanna í hlutfalli
við það, og fengi í sama hlutfalli arð af
rekstrinum, ef um arð væri að ræða.
Nú hefur verið unnið í full 2 sumur með
þessari nýju vél, og má segja að reksturinn
hafði gengið ágætlega. Tímakaup vélarinn-
ar til bænda hefir verið 150 krónur. Þegar
reikningar sambandsins 1955 voru sam-
þykktir var ákveðið að endurgreiða bænd-
um 10% af því kaupi. Hafði þá verið lagt
i sjóð af rekstri vélarinnar þetta ár alls
um 110 þúsund krónur. Ekki liggja enn fyr-
ir samþykktir reikningar vélarinnar fyrir
árið 1956, en fljótt á litið virðist útkoman
svipuð bæði árin.
Þessi góði árangur af rekstri vélarinnar
hefir meðal annars náðst vegna þess, að
hún hefir unnið mikið að vegagerð, og þó
kaup vélarinnar sé þar ekki hærra en við
jarðabætur, og í sumum tilfellum lægra,
gefur sú vinna þó drýgri tekjur vegna þess
hve hún er samfelld. En þetta getur í viss-
um tilfellum orðið bagalegt fyrir bændur,
þegar vélin er látin fara í vegavinnu á þeim
tíma, sem hentugastur er til jarðabóta-
vinnu.
Rekstur gömlu vélarinnar hefir gengið
sæmilega síðan Björn Guðmundsson tók
við yfirstjórn vinnunnar. Hefir tímakaup
hennar verið 90—-100 krónur, og af því voru
bændum endurgreidd 10% árið 1955, eins
og af kaupi hinnar vélarinnar. Hvað rekst-
urinn gengur mikið betur nú síðustu árin,
stafar að miklu leyti af því, að hvenær
sem vélin bilar, er Björn Guðmundsson
kominn á staðinn, en hann er mjög hagur
viðgerðarmaður, og gerir sjálfur við það,
sem bilað hefir, ef hann getur.
T. S.