Freyr - 01.01.1972, Blaðsíða 6
Fullkomin
tryggingavernd
veitir öryggi
pii U0 !;;í i
111
1
>
<✓>
IHEIMILISTRYGGING
i henni er innbúsbrunatrygging, skemmd-
ir á innbúi af völdum vatns, innbrota,
sótfalls o. fl. Húsmóðirin og börnin eru slysa-
tryggð gegn varanlegri örorku og ábyrgðar-
trygging fyrir alla fjölskylduna er innifalin.
HÚSEIGENDATRYGGING
Húseigendatrygging er fyrir einbýlishús,
fjölbýlishús eða einstakar ibúðir, þ. e.
vatnstjónstrygging, glertrygging, foktrygging,
brottflutnings- og húsaleigutrygging, innbrots-
trygging, sótfallstrygging og ábyrgðartrygging.
VERÐTRYGGÐ LÍFTRYGGING
er hagkvæm og ódýr liftrygging. Trygg-
ingarupphæðin og iðgjaldið hækkar ár-
lega eftir visitölu framfærslukostnaðar. Iðgjaldið
er mjög lágt, t. d. greiðir 25 ára gamall maður
aðeins kr. 2.000,00 á ári fyrir liftryggingu að
upphæð kr. 588.000,00.
SJÚKRA- OG SLYSATRYGGING
Hlutverk hennar er að bæta tekjumissi
af völdum sjúkdóma og slysa. Hún greið-
ir á þann hátt veikindadaga í allt að þrjú ár,
örorkubætur, ef slys eða sjúkdómar valda varan-
legum starfsorkumissi og dánarbætur af völdum
slyss. Tryggingin er hagkvæm fyrir fólk i öllum
starfsgreinum.
ÁBYRGÐAR- OG KASKOTRYGGING
Samvinnutryggingar hafa beitt sér fyrir
margvislegum nýjungum og breytingum
á bifreiðatryggingum. Má þar m. a. nefna bónus-
kerfið, þar sem gætnir ökumenn fá allt að 60%
afslátt af iðgjaldi. Ennfremur Hálf-Kaskótrygg-
ingu, ÖF-tryggingu og verðlaun fyrir tjónlausan
akstur i 5 og 10 ár.
FULLKOMIN TRYGGINGAVERND
Samvinnutryggingar hafa kappkostað að
minna fólk á nauðsyn þess, að tryggja
bæði eigur sinar og sjálft sig Þrátt fyrir hækk-
andi bætur frá hinu almenna tryggingakerfi,
lifeyrissjóðum o. fl. eru frjálsar tryggingar ein-
staklinga höfuðnauðsyn i nútímaþjóðfélagi.
SAMVINNUTRYGGINGAR
ÁRMÚLA 3 - SlMI 38500