Freyr - 01.01.1972, Blaðsíða 9
Ijósi. Mannleg viðhorf eru svo misjöfn og
áhugamálin að sama skapi.
En hvað um það. FREYR tjáir við þetta
tækifæri — í upphafi hins 68. árs aldurs
síns, — hlutverk sitt að vera framvegis
einskonar framhaldsskóli fyrir búendur,
fagblað bænda á Islandi, er geti rækt hlut-
verk sitt eitthvað í líkingu við það, er
gerist með menningarþjóðum á vettvangi
fagblaða bœndanna þar.
Að fátækt og fámenni gerir þetta torvelt
hjá okkur leiðir bara til þess, að sitthvað
það, er öðrum þykir eðlilegt er utan gátta
hér. Með öðrum þjóðum þykir það sjálf-
sagt, að litmyndir prýði fagblöð bœndanna.
Þetta er okkur með öllu ókleift kostnaðar
vegna. Norsk bændablöð, sem hafa upplag
16—20 þúsund, telja . hag sinn þröngan
vegna lítils kaupendahóps. Hvað þá með
okkur, sem höfum upplag ritsins aðeins
4000 eintök?
Erfiðleikar eru til svo að yfirstíga megi,
ef ekki þá til að láta bugazt. Ennþá hefur
tekizt að yfirstíga margan vanda. Við von-
um að svo verði framvegis, bæði í útgáfu
búnaðarblaðs bœndanna og í búskap þeirra
og dagfari öllu.
Með þá ósk í huga bjóðum við:
FARSÆLT NÝBYRJAÐ ÁR!
Til viðbótar framanskráðu er svo nokkuð,
sem nauðsynlega þarf að koma á vit áskrif-
enda FREYs.
Eins og allir sjálfsagt muna voru nokkr-
ar breytingar á kaupi og kjörum vissra
stétta og starfsmannahópa haustið 1970.
Það hafði m. a. þau áhrif, að við kaup-
hækkanir og styttan vinnutíma prentara
hækkaði prentunarkostnaður um sem næst
27%.
Skömmu þar á eftir var verðstöðvun á-
kveðin. Af því tilefni þótti útgáfustjórn
Freys ekki fært né viðeigandi að breyta í
neinu þeim töxtum, sem áður giltu og
stóðu á tekjulista FREYs.
Var þá ákveðið að draga heldur úr út-
gáfumagni ef þörf yrði á og breyta í engu
áskriftargjaldi. Með því að vinna ýmis störf
við útgáfu og útsendingu án reiknings hef-
ur tekizt að halda í horfi, svona nokkurn-
veginn, og var þó magn útgáfu 2 örkum
meira en lofað var fyrirfram.
Nú hefur öðru sinni gerzt launaskrið,
sem óhjákvæmilega hefur í för með sér
verðbreytingar. Pappír hefur hækkað á
heimsmarkaði og gjaldeyrismál snúizt
þannig, að íslenzk króna hefur lækkað í
hlutfalli við gjaldeyri þeirra landa, sem
pappír er keyptur. Óvíst er enn hve mikil
pappírshækkunin er frá því, sem var fyrir
tveimur árum. Hitt er víst, að samningar
þeir, sem gerðir voru í desember sl. í sam-
bandi við verkfall prentara, hafa í för með
sér eitthvað yfir 20% hækkun á prent-
smiðjuvinnu. Raunveruleg aukning á út-
gjöldum til prentunar, þessi tvö ár til sam-
ans, mun því vera nálægt 50%.
* * *
Með framtíðarviðhorfið í huga hafði út-
gáfustjórn FREYs, og um leið eigendur
hans, fund í árslok sl. til þess að taka af-
stöðu til fyrirkomulags um útgáfuna. Var
á þeim fundi ákveðið, að þrátt fyrir um-
ræddar hækkanir væri ekki fært að hækka
áskriftargjald tímaritsins um 50%. Við það
hefði áskriftargjaldið hlotið að verða kr.
450 árgangurinn.
Þess í stað ákvað útgáfustjórn að áskrift-
argjaldið verði á árinu 1972 aðeins 350
krónur. Verður því að móta magn upp-
lagsins með tilliti til þessa og sjá hver
framvinda verður.
Þessi ákvörðun gildir því árið 1972, en
um viðhorfið um næstu áramót skal engu
spáð að þessu sinni.
F R E Y R
3