Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1972, Blaðsíða 10

Freyr - 01.01.1972, Blaðsíða 10
Vr skýrslu formanns Stéttarsambands bænda á aðalfundi 1971 Skýrsla stjórnar Stéttarsambandsins er œtíð flutt á aðalfundi. í fundargerð aðalfundarins er í stuttu máli drepið á viss atriði skýrslunnar, svo sem sjá má af fundargerðinni frá síðasta aðalfundi, er birtist í FREY nr. 19 sl. ár. Er ekki óviðeigandi að birta nú viss atriði skýrslunnar, og skal þá fyrst og fremst fjalla um verðlags- og framleiðslumálin, en afgreiðsla stjórnarinnar á samþykktum fyrri aðalfundar að mestu höfð utanveltu. Ritstj. Stjórnin vann að því að fá leiðréttingar á skattalögum skv. fyrri ályktunum Stéttar- sambandsfunda. 1. Aukinn frádrátt vegna vinnu húsmæðra við búrekstur. 2. Skattfrelsi stofnsjóða og framlag til þeirra eins og annars sparifjár. 3. Fasta framkvæmanlega reglu um fyrn- ingarfrádrátt vegna útihúsa. Árangur varð sá, að frádráttarheimild vegna vinnu eiginkonu var aukinn í 1/4 persónufrádráttar hjóna. Á þessu ári er því hámarkið 47.000,00 í stað 15 þús. kr. áður. Enginn árangur fékkst varðandi skatt- frelsi stofnsjóðsinnstæðna hjá samvinnu- félögum, en vextir af þeim eru undanþegn- ir tekjuskatti, þó ekki yfir 30 þús. kr. á ári hjá einstakling og 60 þús. hjá hjónum. Fyrningarheimild er veitt miðað við hið nýja fasteignamat sem hámark, en sú heimild kemur ekki til framkvæmda fyrr en á næsta ári. Þá hefur stjórnin fjallað allmikið um heyverkunarmál og hugsanlega aukningu á framleiðslu grasköggla. Talið er að bænd- ur hafi keypt erlent kjarnfóður á síðasta verðlagsári fyrir um eða yfir 700 millj. kr. Þetta er að nokkru leyti afleiðing erfiðs árferðis og vegna grasbrests, en að nokkru vegna þess, að tiltölulega hagstætt hlutfall er á milli verðs kjarnfóðurs annarsvegar og afurðaverðs hinsvegar einkanlega varð- andi mjólk og er keppt að því að ná sem mestum afurðum með mikilli kjarnfóður- notkun. En vissulega er óeðlilegt að framleiða í eðlilegu árferði búvörur til útflutnings að verulegu leyti á erlendu korni, því er á- stæða til að leita leiða til öruggari og betri heyverkunar og graskögglagerðar og efla þannig innlenda fóðurframleiðslu. En reynzla í tilraunum tveggja síðustu ára, sýnir, að hægt er að ná sömu afurðum með því að gefa mjólkurkúm grasköggla og hey eins og að gefa kjarnfóður og hey, ef sama fóðurgildi er notað af hvorutveggja. Því er ástæða til að leggja aukna á- herzlu á þessa framleiðslu og dreifingu verksmiðjanna um landið. Einnig kunna að skapast útflutningsmöguleikar á þessari vöru og í sumum landshlutum gæti það orðið hagkvæm viðbótarframleiðsla. Framleiðsla landbúnaðarafurða. A Mjólkurframleiðslan. Hér á eftir fer skýrsla um innvigtun mjólk- ursamlaganna á árinu 1970 og til saman- burðar tölur frá árinu 1969. Hún sýnir, að heildaraukning varð á innvegnu magni mjólkur á sl. ári, sem nemur 5,7%. Hjá tveimur mjólkursamlög- um varð samdráttur á innvegnu magni mjólkur. Voru þetta samlagið í Ólafsfirði, þar sem mjólkurmagnið minnkaði um 4 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.