Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1972, Síða 12

Freyr - 01.01.1972, Síða 12
gegn mjólkurneyzlu og ótti fólks við fitu- söfnun er sjálfsagt veigamesta og áhrifa- mesta atriðið í þessu sambandi. Sama er uppi á teningnum þegar kemur að sölu osta. Aukning á sölu magurra osta er nærri tvöföld á við aukningu 45% feits osts. Þó ber þess að geta, að ostasalan hefur yfirleitt aukizt, eins og skýrslan ber með sér. Álíta verður að sú aukning sé mest að þakka miklum áróðri Osta- og Smjör- sölunnar fyrir aukinni ostaneyzlu. Það er alþjóð kunnugt að smjörsalan hefur verið að dragast saman undanfarin ár. Á árinu 1970 varð smjörsalan um 86% af því sem hún var á árinu 1969 og þó hafði smjör- salan á árinu 1969 verið 10% minni en hún var árið 1968. Rjómasalan minnkaði miðað við 1969, en það ár hafði hún minnkað um rösk 16%. Af þessu mætti draga þann lær- dóm, að til álita komi að minnka fitumagn mjólkur frá því sem verið hefur. Er slíkt algjör stefnubreyting frá því sem ríkt hef- ur um aldaraðir. Sú breyting verður ekki auðveld, því allt kynbótastarfið, útborgun- arfyrirkomulag mjólkursamlaganna og hugsunarháttur þeirra manna, sem með þessi mál fara, þarf að breytast. Varla leik- ur samt vafi á því að breyting í þessum efnum er mjög æskileg og frá markaðs- legu sjónarmiði bráðnauðsynleg. Þetta er samt veigameira mál en svo að því verði gerð skil í þessari skýrslu, en það skal tekið fram að Framleiðsluráðið hefur oft á fundum sínum rætt þessi mál, þó engar ráðstafanir hafi enn verið gerðar í þeim efnum. Með þessari skýrslu, um sölu mjólkur- afurða, er einnig skýrsla um útflutning þeirra á sl. ári og einnig er þar fært út hlutfall það, sem er á milli útflutningsár- anna 1970 og 1969. Þetta sýnir að útflutn- ingurinn hefur aukizt og er sú aukning afleiðing af minnkandi sölu heimafyrir og aukningu þeirri, sem varð á innvegnu mjólkurmagni á árinu 1970. SKÝRSLA um sölu mjólkurafurða innanlands og útflutning árið 1970. Sala 1970 % af sölu 1969 Nýmjólk ltr. 40.496.213 97,8 Súrmjólk 1.969.703 100,2 Ávaxtamjólk 59.975 112,4 Rjómi ltr. 912.430 96,1 Skyr kg. 1.804.262 99,1 Undanr. til neyt. ltr. 1.035.352 131,6 Nndanr. til fóðurs 2.722.759 105,7 Smjör kg. 1.164.819 86,4 Gauda F-45 sk. laus kg. 145.856 112,9 Gauda H-30 sk. laus kg. 520.532 120,9 Brauðostur F-45 kg. 107.537 82,5 Kúmenostur F-45 kg. 99 38,2 Sveitserostur kg. 386 56,5 Tilsitterostur kg. 11.884 150,2 Ambassador kg. 7.790 183,6 Camanbert kg. 3.823 135,5 Gráðaostur kg. 9.326 109,5 Bræddir ostar kg. 25.222 181,0 Rjómamysuostur kg. 17.266 98,7 Mysuostur kg. 2.504 71,6 Mysingur kg. 49.259 102,6 Nýmjólkurmjöl kg. 31.193 184,6 Undanrennumjöl kg. 327.039 76,5 Dósamjólk ds. 44.544 99,1 títflutningur % af útflutn. 1970 1969 Ostur 45% 681.009 187,3 Ostur 52% 20.003 Ostur 30% 5.933 Bræddur ostur 11.604 70,4 Nýmjólkurmjöl 410.810 241,1 Undanrennumjöl 225.000 Súrmjólk 40.356 203,4 Kasein 344.845 92,9 Þegar niðurgreiðslurnar voru auknar haustið 1970, bjuggust menn við því að sala afurðanna ykist mjög mikið. Að nokkru leyti hafa þessar vonir manna 6 F R E Y R

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.