Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1972, Síða 14

Freyr - 01.01.1972, Síða 14
um 655 lestir dilkakjöt. Til viðbótar þess- um samdrætti á sjálfri framleiðslunni kemur svo, að allar kjötbirgðir frá fyrri árum voru uppseldar í ágústmánuði 1970. Það var því allt annað viðhorf í kjötsölu- málunum haustið 1970, en verið hefur und- anfarin ár, þar sem saman fór minnkandi framleiðsla og engar birgðir. Þessi tvö atriði urðu því valdandi að út- flutningur á kjöti drógst mjög saman frá því sem var haustið 1969 og frá því sem verið hefur nokkur undanfarin ár. Þannig varð útflutningurinn af dilkakjöti af fram- leiðslu 1970 um 2.800 smálestir, en af fram- leiðslu 1969 var flutt út um 5,400 smálestir. Það er því gert ráð fyrir að selt verði inn- anlands tæplega 900 smálestum meira af dilkakjöti, en kom til innanlandssölu á fyrra verðlagsári. Útlit er fyrir að það takist og að allt kjöt af framleiðslu hausts- ins 1970 verði uppselt þegar sláturtíðin hefst á komandi hausti. Útflutningur á dilkakjöti hefur að mestu farið til sömu landa og oftast áður. Til Bretlands voru fluttar um 853 smálestir af dilkakjöti. Til Noregs voru fluttar um 600 lestir, til Svíþjóðar um 500 lestir, til Dan- merkur 93 lestir, til Færeyja um 450 lestir og afgangurinn til ýmissa landa, s. s. Þýskalands, Sviss, Finnlands og örlitlar prufur til Bandaríkjanna og Frakklands. Nokkrar vonir stóðu til að hægt væri að flytja nokkurt magn, um 20 smálestir, af kældu dilkakjöti til Frakklands. Talsvert var gert til þess að kynna sér allar aðstæð- ur við flutning á kjöti þessu með flug- vélum, en úr þessu varð þó ekki sökum þess að ekki fékkst innflutningsleyfi í Frakklandi, þrátt fyrir mikla eftirgangs- muni. Urðu þetta talsverð vonbrigði þeim sem að þessu máli unnu, en náin samvinna var með Búvörudeild S. í. S. og Fram- leiðsluráði landbúnaðarins um það. Af framleiðslu verðlagsársins 1970/1971 var, auk dilkakjötsins, flutt út smávægi- legt magn, um 4 smálestir af ærkjöti til Noregs. Þá var flutt út um 110 lestir af lifur, 10 smálestir af nýrum og hjörtum, um 20 lestir af sviðum, er fóru til Færeyja. Ctflutningsbætur. Á verðlagsárinu 1969/1970 varð heildar- verðmæti landbúnaðarframleiðslunnar kr. 3.321,463 millj. Samkvæmt þessu máttu út- flutningsbæturnar vera krónur 332.146.300, 00 á framleiðslu þess verðlagsárs. Sú fjár- hæð var notuð að fullu og auk þess greiddi Framleiðsluráðið úr verðjöfnunarsjóðum þeim, sem það hefur yfir að ráða kr. 5.491 þúsund krónur. Á kjötvörur var alls greitt um 250 milljónir króna og á mjólkurvörur um 84 milljónir. Á sl. vori gerði Framleiðsluráðið áætlun um útflutning landbúnaðarafurða á yfir- standandi verðlagsári. Var þar gert ráð fyrir að útflutningsbæturnar gætu orðið fast að 400 milljónum króna, þar af um 167 milljónir á sauðfjárafurðir og 233 mill- jónir króna á mjólkurvörur. Ekki er enn vitað hvert verður hið endanlega verðmæti allrar landbúnaðarframleiðslunnar á þessu verðlagsári, en þó eru ekki líkur fyrir því að framleiðslan verði metin minna en sem nemur áðurgreindri tölu í útflutningsbæt- ur. Niðurgreiðslur á búvörum. Á sl. hausti tók ríkisstjórnin ákvörðun um að halda niðri kaupgjaldsvísitölunni með auknum niðurgreiðslum úr ríkissjóði. Stéttarsambandsstjórnin og framleiðsluráð höfðu margsinnis farið fram á auknar nið- urgreiðslur á smjör og raunar fleiri land- búnaðarvörur, þannig að niðurgreiðslur- nar fylgdu í hlutfalli við verðhækkanir. Neyzlumjólk. Niðurgreiðsla mjólkur hefur um langt skeið verið fastur aurafjöldi á lítra seldrar mjólkur, kr. 5,23. Þann 1. nóvember 1970 jók ríkisstjórnin niðurgreiðsluna í kr. 7,95 og síðan þann 1. des. í kr. 8,95 pr. ltr. Frá 1. maí var niðurgreiðslan svo enn hækkuð 8 F R E Y R

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.