Freyr - 01.01.1972, Blaðsíða 15
um 35 aura á lítra. Var þessi síðasttalda
hækkun á niðurgreiðslunni gerð í sam-
bandi við úrskurðaða hækkun á verðlags-
grundvellinum um 2,42%, sem síðar verður
að vikið.
Þá var enn aukin niðurgreiðslan á mjólk-
inni þann 1. júní 1971 um kr. 1,70 pr. lítra.
Eftir 1. júní er niðurgreiðslan á mjólk í
lausu máli því orðin kr. 11,00 pr. lítra, en
útsöluverðið kr. 11,40.
Auk þess kemur svo niðurgreiðsla á
verði umbúða þeirrar mjólkur sem ekki er
seld í lausu máli, er sú niðurgreiðsla 5 eða
10 aurar á lítra eftir tegundum.
Rjómi.
Þann 1. nóvember 1970 tók ríkisstjórnin
upp niðurgreiðslu á rjóma, en rjómi hefur
ekki verið greiddur niður síðan árið 1959.
Niðurgreiðsla sú, sem nú var ákveðin, varð
kr. 37,70 pr. seldan lítra, en hækkaði svo
þann 1. maí í kr. 40,10.
Skyr.
Þann 1. desember 1970 hóf ríkisstjórnin
einnig að greiða niður verð á skyri, en það
hefur ekki verið greitt niður síðan 1959.
Niðurgreiðsla sú, sem nú var ákveðin, var
kr. 10,50 pr. selt kg., en var síðan hækkuð
í kr. 11,00 frá 1. maí 1971.
Smjör.
Niðurgreiðsla á smjöri hefur um nokkurt
skeið staðið óbreytt, kr. 99,60 pr. selt kg.
Þann 17. nóvember 1970 hækkaði niður-
greiðslan í kr. 204,60 pr. kg. og þann 1. maí
hækkaði hún svo aftur í kr. 209,90.
Ostur, 45%.
Þann 1. desember 1970 var hafin niður-
greiðsla á 45% feitum osti. Frá þeim degi
var niðurgreiðslan ákveðin kr. 69,20 pr. kg.
seldrar vöru. Þann 1. maí hækkaði sú nið-
urgreiðsla í kr. 72,20.
Ostur, 30%.
Þann 1. desember var tekin upp niður-
greiðsla á 30% feitum ostum. Nam sú nið-
urgreiðsla kr. 36,40 pr. kg. seldrar vöru, en
var síðan hækkuð 1. maí í kr. 38,60.
Dilka- og geldfjárkjöt.
Þann 1. desember var einnig aukin niður-
greiðsla á kindakjöti. Niðurgreiðsla á
dilka- og geldfjárkjöti var þó hækkuð úr
kr. 23,70 pr. kg. í kr. 45,70 og síðan þann
1. maí 1971 í kr. 48,67. Auk þess kemur
svo mánaðarleg hækkun á niðurgreiðsl-
unni, vegna vaxta- og geymslukostnaðar
kjötsins.
Ær- og hrútakjöt.
Á þeirri vörutegund var niðurgreiðslan
einnig aukin frá og með 1. desember 1970,
úr kr. 8,90 pr. kg. seldrar vöru í kr. 17,20
og síðan, þann 1. maí 1971 í kr. 18,38.
Kartöflur.
Þá var einnig tekin upp niðurgreiðsla á
kartöflum. Hófst sú niðurgreiðsla þann 1.
desember 1970 og var kr. 11,80 pr. kg. 1.
og 2. flokks kartöflur, en 3. fl. var greiddur
niður með kr. 7,50 pr. kg. Þessar niður-
greiðslur á kartöflum eiga fyrst og fremst
við kartöflur af íslenzkri framleiðslu, en
ún entist að mestu út febrúar mánuð. Eftir
það voru eingöngu seldar erlendar kartöfl-
ur og var niðurgreiðslan á þær eitthvað
lægri, en breytileg eftir innkaupsverði
þeirra, en stefnt var að því að halda verði
erlendu kartaflanna sama og niðurgreiddra
kartaflna í 2. fl.
Nokkur uggur var í mönnum út af svo
miklum niðurgreiðslum á kartöflum og
óttuðust stjórnvöld að misferli gæti átt sér
stað, þegar svo miklar niðurgreiðslur væri
að ræða á kartöflum. Því voru settar
strangar reglur um móttöku hinna niður-
greiddu kartaflna og sölu þeirra til ein-
staklinga, einnig um allar skýrslur varð-
andi birgðir, sölu og móttöku. Var um þess-
ar reglur algjör samstaða milli Fram-
F R E Y R
9