Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1972, Qupperneq 20

Freyr - 01.01.1972, Qupperneq 20
FRIÐRIK PÁLMASON: ÁHRIF KÖLKUNAR Á TÚNRÆKT og nýjar leiðir í áburðarleiðbeiningum Friðrik Pálmason. Kalk, mangan, gróðurfar og spretta. Fjöldi kalktilrauna hefur aukist verulega síðustu árin, og flestar kalktilraunanna eru það nýjar, hafa aðeins staðið í nokkur ár, að vafasamt er að draga miklar álykt- anir af fyrirliggjandi niðurstöðum. Tvær tilraunir hafa þó staðið allt frá árinu 1956, önnur á Reykhólum, hin á Hvanneyri. Prófaðar eru mismunandi stórir kalk- skammtar á mýrarnýrækt, 0, 4, 8 og 12 tonn/ha. Niðurstöður þessara tilrauna hafa áður verið raktar að nokkru,1 en öllu ýtar- legra uppgjöri er fyrir nokkru lokið á Reykhólatilrauninni og bíður það birt- ingar. Kalktilraunum hefur lengi verið sýndur mikill áhugi, vegna þess, að kal í túnum hefur meðal annars verið sett í samband við einhæfa áburðarnotkun og þar af leið- andi hugsanlegan kalkskort. Kjarninn er eins og kunnugt er hreinn köfnunarefnis- áburður, og því er að sjálfsögðu hugsan- legt, að notkun Kjarna án kalks leiði til þess að gengið sé á auðnýttasta hlutann af kalsíumforða jarðvegsins. Líklegra er að jafnvægi haldist í kalsíumbúskapnum, ef kalkað er, eða þá notaður kalkammon- saltpétur eða kalksaltpétur. Hins vegar er jafnlíklegt og má benda á niðurstöður til- rauna því til stuðnings að kalsíumlosun sé nægileg úr meginforða jarðvegsins til þess að réttlæta notkun hreins köfnunarefnis- áburðar án kölkunar. Óþarft er að leiða fleiri getum að því, hverjar afleiðingarnar séu af notkun hreins köfnunarefnsáburðar án kalks. Tilraunirn- ar tala sínu máli, en niðurstöðurnar eru þó ekki meir en svo afgerandi, að ákvörðun um kalknotkun hlýtur að vera matsatriði háð aðstæðum. Áður en vikið er að niðurstöðum Reyk- hólatilraunarinnar, er rétt að sjá hvað niðurstöður umfangsmikilla og vandaðra rannsókna Bjarna Guðleifssonar2 á orsök- um kals, hafa að segja um kalsíum í jarð- vegi og önnur efni í kölnu og ókölnu landi. Bjarni kemst að þeirri niðurstöðu, að einu næringarefnin, sem lítið geti talizt af í þeim sýnishornum, sem rannsökuð voru, séu fosfór og molybden. Ekki er vitað að molybden takmarki grassprettu hérlendis, en fosfór er mikill áhrifavaldur um sprettu. Bjarni Guðleifsson telur að lítið fosfórmagn geti hafa dregið úr kalþoli gróðurs í rannsókninni, en leggur þó meiri áherzlu á aðra þætti svo sem loftrými jarð- vegs og fínnú drættina í legu landsins. Minna var af umskiptanlegu kalsíum í kal- blettum, en í ókölnu landi. Munurinn var eins og í fleiri efnisþáttum of veigalítill til þess að geta talizt meðal orsaka kal- skemmda. 14 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.