Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1972, Síða 22

Freyr - 01.01.1972, Síða 22
FOSfbfc % P c þ£ o.ifo o,Zo r is r v/i-rfwwf / 7VZ K/)U/v'U*l Pg/ha P <— < •/3 2f> -75 ✓3 0,0 0 Zo zo 30 /jp’APPbTE//v % / p£ Fylgni hrápróteins og fosfórs í grasi í 9 ár á þremur tilraunastööv- um og við mismundandi fosfórgjöf. ÞE = þurrefni. ferðum má beita við kalíum og köfnunar- efni. Kjörmagn af fosfór hefur að meðaltali mælzt 0,32—0,34% í þurrefni, sem svarar til 12,1—14,8% af hrápróteini í þurrefni að meðaltali samkvæmt mælingum. Kjör- magnið sveiflaðist eftir árferði á tímabil- inu 1961—1969 frá 0,30—0,43% í þurrefni og hráprótein frá 9,6—18,5% í þurrefni. Tilraunir sem stuðst var við voru á Akur- eyri nr. 2—50 og 16—56 og á Sámsstöðum nr. 9—50. Kjörmagn af kalsíum hefur að meðaltali mælzt 2,0—2,2% í þurrefni með árssveiflu 1,6—3,0% í þurrefni. Samsvarandi hrápró- tein mældist að meðaltali 12,8—14,8% og árssveifla 9,7—17,7% í þurrefni. Úrvinnsla úr kalítilraununum er einnig frá 1961— 1969. Þær eru á Sámsstöðum nr. 8—50, Skriðuklaustri nr. 18—54, Reykhólum nr. 7—51 og á Akureyri nr. 3—50 og 10—58. Teknar voru til meðferðar þær tilraunir, þar sem nægilegar upplýsingar lágu fyrir. Tilraunir, þar sem önnur áburðarefni virt- ist skorta en það áburðarefni sem til at- hugunar var, eru ekki tekin með í yfirlit- inu um kjörmagn. Á Skriðuklaustri var nr. 17—54 ekki tekin með vegna kalískorts í tilrauninni. Fosfór og kalítilraunir á sandi nr. 11—59 og 3—59 á Sámsstöðum eru ekki með vegna þess að efnagreiningar benda til þess að köfnunarefni og fosfór gæti skort og í fosfórtilrauninni nær fosfóráburður ekki kjörmagni. Einungis voru teknar þær tilraunir og þau tilraunaár, þar sem efna- greiningar á hrápróteini, fosfór og kalí lágu fyrir. Breiddin í meðaltölum tilrauna er vegna mismunandi aðstæðna í þessum tilraunum, en ekki er unnt að gera nánari grein fyrir því. Þar getur komið til bæði jarðvegur, gróðurfar og veðurfar. Kjörmagn er miðað við hagkvæmnasta áburðarskammt og þá reiknað með verðlagi áburðar 1971 og föstu heyverði 450 kr. á hestburð. Ýmsar fleiri forsendur, sem ekki verða raktar hér, er nauðsynlegt að séu uppfylltar við ákvörð- un á hagkvæmasta áburðarskammti og kjörmagni áburðarefnanna í heyi. Æskilegast væri að taka sýnishornin áð- ur en borið er á og leiðbeina sama árið og efnagreint er, eins og gert er sumstaðar erlendis í garðyrkju. En til þess skortir tilraunagrundvöll og vafasamt hvort sú leið er fær í túnræktinni. Reynt verður á næstunni að beita þeim aðferðum, sem að framan er lýst, en tæp- lega, nema í tilraunaskyni á þessu stigi málsins. Heimildir: 1. Friðrik Pálmason (1968): Kalktilraunir tilrauna- stöðvanna. — Búnaðarblaðið,8, 54—57. 2. Bjarni E. Guðieifsson (1971): Overvintringsska- der i grasmark pá Island. omfang og ársaker. — Norges Landbrukshöjskoie, Vollebekk 1971. 16 F R E Y R

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.