Freyr - 01.01.1972, Síða 23
AOSTOÐ VEGNA HARÐÆRIS
Á aðalf undi Stettarsambands bænda sl. haust
upplýsti formaðurinn, að í imdangengnum
harðærum hafi aðstoð verið veitt, sem segir
í eftirfarandi:
Tillögur um harðærisnefnd, öskufallsað-
stoð og harðærisaðstoð voru sendar harð-
ærisnefnd og landbúnaðarráðherra og
Bjargráðasjóði. Úthlutað var miklu lánsfé
og flutningastyrkjum vegna heyflutninga
svo og bótum fyrir ýmis konar tján og
tilkostnað á öskufallssvæðunum vegna
Heklugossins, skb. tillögum harðærisnefnd-
ar.
Voru þær fjárhæðir, sem hér segir:
Lánin voru veitt sveitarfélögum úr af-
urðatjónadeild landbúnaðarins við sjóðinn
samkvæmt 12. gr. laga sjóðins nr. 82/1967,
til að endurlána féð þurfandi bændum
til fóðurkaupa. Heyflutningastyrkir voru
veittir úr sameignardeild sjóðins sam-
kvæmt 11. gr. laga sjóðins.
Lánin eru vaxtalaus og afborganalaus
fyrstu tvö ár lánstímans, en endurgreiðast
síðan með jöfnum afborgunum á næstu
fimm árum.
A. Styrkir v/Heklugoss .................. kr. 35.547.999,00
B. Heyflutningastyrkir .................. — 6.812.716,00
C. Lánveitingar v/fóðurkaupa ............ — 59.385.000,00
kr. 101.745.715,00
Fjármögnim:
1. Endurgreiðsla ríkissjóðs v/Heklugoss kr. 34.000.000,00
2. Endurgr. ríkissj. v/heyflutn. styrkja — 5.840.000,00
kr. 39.840.000,00
3. Lántökur ............................. — 27.500.000,00
4. Bráðabirgðalán úr séreignadeild .... — 2.500.000,00
5. Af ráðstöfunarfé sjóðins 1970 og 1971 — 31.905.715,00
kr. 101.745.715,00
Styrkir og lán vegna grasbrests og óþurrka samkvæmt tillögum Harðærisnefndar
s.l. 4 ár:
Tala Heyfl.styrkir úr
Árið hreppa sameignardeild
1967 72
1968 65
1969 120
1970 110
2.142.554,25
6.030.654,00
6.332.871,00
6.812.716,00
21.318.795,25
Vaxtalaus lán úr
afurðatjónadeild
16.820.000,00
16.395.000,00
77.436.000,00
*59.385.000,00
170.036.000,00
Styrkir og lán
samtals kr.
18.962.554,25
22.425.654,00
83.768.871,00
63.777.530,00
191.354.795,25
* Óafgreitt 31/12 1970 kr. 46.635.000,00.
F R E Y R
17