Freyr - 01.01.1972, Blaðsíða 24
Fra fyrsta happdrætti ..Bæntlurnir svara.“ Notarius punliltus Sigurður M. Helgason annast og lögskráir
útdráttinn. Aðrir á myndinni eru, talið frá vinstri: Sigtryggur Björnsson, Jón I»ór Jóhannsson, Gunnar
Gunnarsson, Gísli Kristjánsson og Guðmunda Eyjólfsdóttir.
Fjörutíu og fimm ára þjónusta við ísl. landbúnað
í 45 ár hefur Samband íslenzkra Samvinnufélaga stundað verzlun með búvélar. Það var
árið 1927 að grunnur var lagður að starfsemi Sambandsins á þessu sviði, en áður höfðu
Búnaðarfélag íslands og Ræktunarfélag Norðurlands haft á hendi útvegun verkfæra
fyrir landbúnaðinn.
Eins og allir vita þá er saga vélaverzlunar Sambandsins og vélvæðingar landbúnaðar-
ins svo nátengdar að þar verður ekki á milli greint.
McCormick International traktorar og jarðvinnslutæki svo og ýmis konar heyvinnu-
tæki, PZ sláttuvélar og snúningsvélar Priestman og þurrkun landsins, Alfa-Laval og
fullkomin mjaltatækni, allt eru þetta nöfn, sem í huga hvers einasta bónda eiga sér
eðlilegt og sjálfsagt samhengi, samhengi, sem er í ætt við orsök og afleiðingu og sem
helgað er af góðri reynslu margra áratuga. Hér verður þessari upptalningu ekki lengur
fram haldið. Það er hlutverk fylgiritsins Bændurnir svara að kynna íslenzkum bænd
um þær vélar og tæki, sem Búvéladeild Sambandsins hefur til sölu. Einnig er það
markmið með þessu fyrirspurnarformi að vekja áhuga bænda fyrir því að panta vara-
hluti í tíma því það er bezta og öruggasta leiðin til að tryggja góða varahlutaþjón-
ustu.
18
F R E Y R