Freyr - 01.01.1972, Qupperneq 25
Ástæða er til að hvetja bændur til að lesa þetta fylgirit gaumgæfilega og senda fyrir-
spurnaformið til baka og mun lögð áherzla á að afgreiða mál bænda eins fljótt og
mögulegt er.
Breyttum búnaðarháttum fylgir oft ýmiskonar vandi, sem bóndinn verður á einhvern
hátt að leysa. Margir bændur leita til Sambandsins með úrlausnir þegar þeim er nýr
vandi á höndum og oft hefur Sambandið borið gæfu til að finna lausn, sem leysti
vandann.
Félagsverzlun bændanna Sambandið og kaupfélögin hefur átt því láni að fagna að
hljóta umboð fyrir úrvals framleiðendur, sem ekki er nema eðlilegur hlutur þeim sem
málið skoðar nánar. Ef erlendur framleiðandi vill selja sína vöru á íslandi þá athugar
hann í fyrsta lagi hversu sterkt fyrirtækið er á markaðinum og eftir þá athugun verð-
ur flestum aðilum ljóst, að það er einmitt Sambandið og kaupfélögin sem hefur lang
bezta möguleikann á því að geta dreift vörunni á hagkvæman hátt og veitt nauðsyn-
lega þjónustu til frambúðar.
Það er ánægjulegt til þess að vita að ýmis þau viðskiptatengsl, sem til var stofnað í
öndverðu, eru enn gædd því lífi og þeim traustleika sem er aðalsmerki hinna beztu fyr-
irtækja.
Þannig njóta þeir, sem í dag starfa að þessum málum, farsælla verka þeirra, sem
fyrst lögðu hönd á plóginn.
Um leið og þessa er minnzt með þakklæti strengja Sambandsstarfsmenn þess heit að
slaka hvergi á í þjónustustarfi við íslenzkan landbúnað.
Með ósk til allra okkar ágætu viðskiptavina og samstarfsmanna nær og fjær árs og
friðar
Fréttatilkynning til bænda frá búvéladeild Sam-
bandsins v/ Bændurnir svara.
VORWERK
ALLT
ÁRBÐ
AUKINN ÞRIFNAÐUR —
— ARÐMEIRI AFURÐIR
Handhœg hirðingartœki fyrir
nautgripi og hross
Einkaumboð á íslandi:
B. THORVALDSSON
Umboðs- & HeiSdverzlun
Pósthólf 548 — Símnefni BRYNTHOR
Sími 38472 — Reykjavík
F R E Y R
19