Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1972, Qupperneq 26

Freyr - 01.01.1972, Qupperneq 26
Komvörur og vörwverd Fyrir 25 árum voru atvinnuvegir margra þjóða í rústum eftir styrjöld, sem stóð í meira en 5 ár. Um þær mundir og á árun- um þar á eftir var víða þröng um öflun matvæla og þar á meðal var kornvara af skornum skammti, og í ýmsum hlutum heimsins var hungursneyð, einkum þar, sem kornvara er aðalfæða fólks. En brátt var að því unnið af kappi að auka eftirtekju korns, bæði með því að brjóta lönd til kornræktar og með jurta- kynbótum. Ennfremur komu í gang umfangsmiklar athafnir til þess að hindra ágang skordýra og annarra meindýra og sveppa, sem jafn- an gerðu stór spjöll og rýrðu eftirtekju að miklum mun, bæði á ökrum og í geymsl- um. í hinum svonefndu þróunarlöndum hafa sílkar framfarir sumstaðar orðið feiki- miklar og á síðasta áratugnum hefur þró- unin orðið sérlega ör. í vissum löndum hefur þó verið sérleg viðleitni til þess að minnka akurlendi, sem sáin voru hveiti, með tilliti til þess, að þannig skyldi reynt að skapa jafnvægi milli framleiðslu og eftirspurnar, en þá voru birgðir hveitis orðnar svo gífurlegar, að heilar rastir hveitis voru geymdar undir berum himni, illa varðar gegn veðurfari og ýmsu meinvætti. En slíkar birgðir hurfu að mestu þegar samkomulag varð um að senda mikið af þeim til vannærðra þjóða. Síðan hefur blaðinu verið flett þannig, að nú hafa aftur safnazt birgðir hveitis, svo að á ýmsum tímum og einkum við söfnun nýrrar uppskeru er hveiti stundum selt á verði, er liggur talsvert lægra en hið skráða heimsmarkaðsverð. Náttúrlega eru það þá ekki beztu flokkar vörunnar, sem völ er á, enda hafa ekki allar tegundir jafn mikið geymsluþol. Þró- unin hefur verið sú, nú á síðari árum, að uppskerumagn hveitis í heiminum hefur stóraukizt. Þrátt fyrir minnkandi hveiti- akra í U.S.A. og Argentínu vex uppskeran í heiminum enn. Þess má geta sérstaklega, að meðal Efna- hagsbandalagsþjóða Evrópu hefur ekki verið farið inn á þá braut að minnka fram- leiðslu hveitis og í vissum löndum Norð- ur-Evrópu hefur framleiðslan verið langt fram yfir þarfir heimaþjóða. Þannig hafa Svíar nú ár eftir ár getað fargað miklu magni og m. a. séð Norðmönnum fyrir hveiti, en Norðmenn eru hættir að fram- leiða manneldiskorn, það þykir ekki hag- kvæmt, að þeirra eigin sögn, þeir framleiða heldur bygg og hafra til fóðurs. Sem dæmi um aukningu eftirtekju má nefna, að í ýmsum þróunarlöndum er uppskera af hverri flatareiningu nú margföld við það, er áður gerðist. Meira að segja þar sem ræktunarmenning var öflug fyrir 25 árum hefur einnig orðið stór-framför. Svíar t. d. fengu að jafnaði svo sem 30—40 tunnur korns af ha fyrir aldarfjórðungi en nú þykir ósköp hversdagslegt að fá 70—80 tunnur hveitis af ha á aðal-kornyrkju- svæðum þar í landi. Álíka sögu er að segja um framleiðslu annarrar aðalkornvöru til manneldis í heiminum, það eru hrísgrjónin. Þau eru ræktuð í hitabeltislöndum og heittempr- uðum beltum hnattarins, en mest og lang- mest í Austurlöndum. Margar þær þjóðir, sem einatt sultu heilu hungri, vegna upp- skerubrests á hrísgrjónum, hafa nú gnægð- ir af þessari kornvöru og flytja hana úr landi. Svo góðum tökum hafa umræddar þjóðir náð í því að tileinka sér þær ör- yggisráðstafanir, sem nauðsynlegar eru til að tryggja uppskeruna. Tæknin hefur léð þeim búnað til að tryggja vatnsmagn, 20 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.