Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1972, Qupperneq 30

Freyr - 01.01.1972, Qupperneq 30
vegna, leggja þær verksmiðjur, sem fram- leiða vönduðustu vöruna, áherzlu á merk- ingu hennar. Hins vegar gengur það sitt á hvað með verzlanir, er selja leirvöru og postulín. Þær hafa það til sumar að gera lítið úr mismun vöru og verðs þegar við- skiptavinurinn á í hlut. Stundum er það ef til vill svo, að verzlunarfólkið hefur enga þekkingu á hlutunum, diskur er disk- ur og bolli er bolli, frá þessu sjónarmiði og fjöldi kaupenda meðal almennings er einn- ig sama sinnis. Þess vegna er svo auðvelt að hafa lítinn verðmismun á umræddum vörum. Þær verksmiðjur, sem leggja allt kapp á að gera vandaða vöru, setja heiður sinn og metnað í merkinguna og með greinilegu framleiðanda- og gæðamerki er auðvelt að gera sér grein fyrir að hlutaðeigandi fram- leiðanda er það kappsmál, að kaupandi viti hvaðan varan er komin. Hins vegar eru til, á botni leirhluta, merki, sem víst eru auð- kenni, en með engu móti verða greind né lesin hvað þýða og þau eru raunar hið sama og ekkert auðkenni. Skrautmunir. Víst er ánægjulegt að horfa á vel gerða skreytingu á postulíni. Frá upphafi vega er það alþekkt, að börn hafa gleði af mynd- um og hvers konar skrauti á matarílátum þeirra, diskum og bollum, og það hefur jafnan þótt lystaukandi meðal barnanna að segja þeim sögur um myndirnar ef litirnir einir og skoðun þeirra er ekki nóg til lyst- arauka. Ýmsum er einnig svo farið að sér- stakar kenndir vakna í hugum þeirra þegar þeir skyndilega sjá á ný, stundum eftir margra ára fjarvist, diska eða bolla með sömu myndunum — sama skrautinu — og var á matarílátum þeirra á æskuskeiði. Meðal annars vegna þessa gera ýmsar 24 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.