Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1972, Síða 31

Freyr - 01.01.1972, Síða 31
verksmiðjur það að reglu, að breyta til um skraut og skreytingu frá einu skeiði til annars. Við sjáum gömul mynstur skyndilega komna á vettvang, eftir langa fjarrvist þeirra. Flestum er svo farið, að vilja ekki nota vönduðustu matarílátin, diskana eða boll- ana, nema við hátíðleg tækifæri, en hvers- dagslega bara lakari gerðir, sem auðvitað eru jafn nothæfar en þola daglegt hnjask miklu lakar. Þegar vandaða varan er svo tekin fram og lögð á borð, færist jafnan hátíðablær í umhverfið, stundum hljóð- lega, stundum með gleðihljómum, ekki sízt þar sem börn eru í heimili, já jafnvel aldraða fólkið kemst í gott skap við að sjá nýtt mynstur á borðum, er minnir á æsku eða löngu liðna tíma. Gamla postulínið. Nú er þess ekki að dyljazt, að jafnvel hin ágætasta vara eldist og fyrnist, enda þótt hún sé notuð aðeins við og við. Bezta varan þolir að eldast, en hins er líka vert að minnast, að aldurinn gerir sitt til að vissar gerðir postulíns verða stökkar því eldri sem þær verða. Meðal annars með tilliti til þess er sjálfsagt að handleika gam- alt postulín ævinlega með gætni. Það er til dæmis fráleitt, að setja það í uppþvott í uppþvottavélar nútímans, heldur skal hafa það milli handa og handleika með varúð. Komi skörð í kanta, og ef af því nuddast eða mást gylltir jaðrar eða aðrir litir á skreytingunni, þá er skartgripur orðinn allt annað en fagur, jafnvel þótt nothæfnin sé lítt eða ekki skert. Þess er alltaf vert að minnast, að þar sem gull- bryddingar eða gyllt skreyting er á borð- búnaði, er gullið lagt á eftir brennslu og nuddast þess vegna auðveldlega af og getur losnað smátt og smátt við notkun sterkra ræstiefna. Þrátt fyrir þetta er eðlilegt ag sjálfsagt að nota gamla og skrautlega borðbúnaðinn við og við, hann flytur alltaf með sér há- tíðablæ og gleður augað og tilfinninguna fyrir tilverunni. Jafnframt er sjálfsagt að minnast þess, að í allri meðferð er eðlilegt að handleika þessa gömlu hluti með varúð og virðingu, — með varúð vegna þess, að gamlir hlutir verða brothættari með aldrinum — og virðingu vegna þess, að gömlu munirnir eiga sína sögu í samleið með gengnum ætt- liðum og fá því aukið verðgildi með aldr- inum. Leirmunir og blýmengun. Þótt það sé önnur hlið málsins að ræða um hættur í sambandi við borðbúnað, er rétt og sjálfsagt að geta þess, að úr ýmsum áttum er auðvelt að afla borðbúnaðar og búshluta, sem eru mengaðir af blýi svo að eitrun getur af hlotizt. Þetta geta verið fagrir gripir en því miður stórhættulegir. Með auknum ferðum Norðurlandabúa til Miðjarðarhafssvæðanna, hefur það hvað eftir annað komið á daginn, að fólk hefur keypt og flutt með sér heim fagra muni úr leir, sem valdið hafa eitrunum, af því að blýmengun hefur átt sér stað, í hlutun- um hefur verið svo mikið blý, að heilsu- tjón hefur af hlotizt. Matarílát, sem gerð eru úr leir af einu eða öðru tagi, geta verið stórhættuleg, enda hefur það sýnt sig, og hættan er sérlega mikil þegar sýru- myndandi efni eru varðveitt í slíkum í- látum. í Svíaríki og víðar eru varðúðar- reglur samþykktar um, að í hæsta lagi 3 mg blý megi vera í hverjum lítra upp- lausnar, sem notuð er til matargerðar. í leirskál, sem keypt var á Spáni og flutt heim til Skandinavíu, hefur komið fyrir, að um 350 mg blý hefur fundist í upplausn þess vökva, er geymdur var í umræddri skál. Slíkt magn er lífshættulegt eitur. Auðvitað þarf einstaklingurinn ekki að ferðast til Miðjarðarhafslanda til þess að eiga á hættu að kaupa blýeitraða vöru. Innkaupaaðiljar hljóta að standa þar vörð og bægja hættunni frá og forðast að hafa slíka mengaða vöru á markaði. F R E Y R 25

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.