Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1972, Blaðsíða 32

Freyr - 01.01.1972, Blaðsíða 32
Vöxtulegt lerki- og furuskjólbelti við gróðrarstöðina á Hallormsstað, en víða í Hallormsstaðaskógi eru barrtré nú frá 10—13 m á hæð. Ljósm.: Hákon Bjarnason. ráðuneytinu í Moskvu, en undir Grave heyra 17 sérstofnanir á sviði skógræktar. Á blaðamannafundi er Skógrækt ríkisins boðaði til, skömmu áður en þeir félagar kvöddu landið, upplýsti skógræktarstjóri Hákon Bjarnason, að þeir Atrokhin og Grave hefðu hingað komið til að kynna sér íslenzk skógræktarmál, og ekki síst til að kanna þarfir Skógræktar ríkisins á sviði fræmála á komandi árum. Skógræktar- stjóri benti á, að mörg undanfarin ár hefði Skógrækt ríkisins fengið lerki frá Sovét- ríkjunum, og það sem gert yrði í framtíð- inni ylti mikið á því að hægt væri að fá öruggt og gott fræ. Taldi skógræktarstjóri því mjög þýðingarmikið fyrir skógræktar- menn hér að fá þessa menn í heimsókn. Atrokhin upplýsti því næst, að á undan- förnum árum hefðu verið góð tengsl og samstarf á milli skógræktarmanna hér og Skógræktarmenn í heimsókn í byrjun október voru hér í heimsókn á vegum skógræktar ríkisins tveir sovéskir skógræktarmenn V. G. Atrokhin og N. P. Grave. Atrokhin fæstviðrannsóknastörf og veitir forstöðu þeirri deild á vegum skóg- ræktar í Sovétríkjunum, sem sér um nytj- un og umhirðu skóga, enda er hann sér- fræðingur í þeirri grein og annast kennslu í henni við skógræktardeild Moskvuháskóla. N. P. Grave gegnir störfum í skógræktar- 26 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.