Freyr - 01.12.1977, Page 5
FREYR
BÚNAÐARBLAÐ
flukafundur
Stéttarsambands bænda
nr. 23, desember 1977
Útgefendur:
BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS
STÉTTARSAMBAND BÆNDA
Útgáfustjórn:
EINAR ÓLAFSSON
HALLDÓR PÁLSSON
ÓLI VALUR HANSSON
Ritstjóri:
JÓNASJÓNSSON
Heimilisfang:
BÆNDAHÖLLIN, REYKJAVÍK
PÓSTHÓLF 7080, REYKJAVÍK
ÁskriftarverS kr. 2000
árgangurinn
Ritstjórn, innheimta, afgreiSsla og
auglýsingar:
Bændahöllinni, Reykjavík, sími 19200
RíkisprentsmiSjan Gutenberg
Reykjavík — Sími 84522
EFNI:
Aukafundur Stéttarsambands
bænda
Þekkiröu algenga þörunga í
fjöru?
Brautryðjanda minnst
Atvinnuleysið og ungmennin
Yfirlýsing frá stjórn
Stéttarsambandsins
Sauðfjárlitir
Rjómabúið á Baugsstöðum
75 ára
Vetrargeymsla á landbúnaðar-
vélum
Leiðbeiningar við varahluta-
pantanir
Járninganámskeið
Erlendir þættir
IVIolar
Eins og kunnugt er var boðað til aukafundar Stéttar-
sambands bænda, og var hann haldinn í Reykjavík 30.
nóv. sl. Tilefni fundarins voru tillögur um breytingar á
lögum um Framleiðsluráð landbúnaðarins o.fl., og þau
vandamál, sem steðja að landbúnaðinum vegna erfiðra
markaða.
Þegar aðalfundur Stéttarsambandsins var haldinn í lok
ágúst sl., blasti þegar við mikill vandi, þar sem Ijóst var,
að verulega mundi skorta á að bændur fengju full verð
fyrir afurðir sínar verðlagsárið 1976—77, og allar líkur
bentu til að enn meira mundi vanta uppá á komandi
verðlagsári.
•
Nánar tiltekið var talið að vantaði sem svarar 1.0% af
heildarverðmæti landbúnaðarvaranna á því ári. í krónum
talið vantaði 150—170 milljónir á að útflutningsbætur
hrykkju til að hægt væri að borga bændum fullt verð
fyrir afurðirnar. Var þá miðað við að útflutningsbætur
fengjust í samræmi við útreikning Framleiðsluráðs land-
búnaðarins á verðmæti framleiðslunnar. En þess ber að
geta, að verulega ber á milli útreikninga þess og út-
reikninga Hagstofunnar, sem lagðir eru til grundvallar
við ákvörðun á útflutningsbótum. Miðað við útreikninga
Hagstofunnar var vöntunin rúmar 300 milljónir. Ef ekki
fást útflutningsbætur í samræmi við þá tölu, sem Fram-
leiðsluráð telur rétta, hrekkur það verðjöfnunargjald á
kjöti, sem þegar hefur verið ákveðið 12 kr. á hvert kg
dilkakjöts, alls ekki, og yrði að hækka það um helming.
•
Eins og nú horfir, er talið að á nýbyrjuðu verðlagsári
(1977—78) muni vanta enn meira, eða frá 1.5—1.5 millj-
örðum til þess að útflutningsbætur hrökkvi svo að fullt
verð náist, og er það sem svara 4% eða meir af heildar-
verðmæti landbúnaðarframleiðslunnar. Lægri talan er
miðuð við það að hlutfallslega sama verðlag haldist á
útfl. framleiðslu en það gæti hæglega orðið óhagstæðara.
F R E Y R
841