Freyr - 01.12.1977, Síða 13
GUÐMUNDUR JÓNSSON, fyrrv. skólastjóri:
Brantryðjanda
minnst
Sjötíu og fimm ár
frá upphafi starfs
Guðjón Guðmundsson, ráðunautur
Guðjón Guðmundsson var fæddur 1. apríl
1872 á Finnbogastöðum í Strandasýslu, en
dó 13. maí 1908. Foreldrar hans voru Guð-
mundur, bóndi þar, Magnússon, Guð-
mundssonar, og kona hans, Guðfinna Jör-
undsdóttir, bónda á Eyri í Ingólfsfirði, Guð-
mundssonar.
Guðjón ólst upp hjá foreldrum sínum til
25 ára aldurs og lagði þar stund á störf til
lands og sjávar, en jafnframt hneigðist hug-
ur hans til bóknáms. Flann varð búfræðing-
ur frá búnaðarskólanum í Ólafsdal 1893 og
lauk gagnfræðaprófi frá Möðruvallaskóla
1897 með 1. einkunn. Var þetta mjög góð
menntun á þeim tíma. En hugur hans
stefndi hærra.
Síðast á árinu 1897 hélt Guðjón til Nor-
egs með það í huga að hefja búnaðarnám
við Búnaðarháskólann í Ási. Ekki tókst hon-
um þó að fá inngöngu þar, en komst til
náms í Vinter landbruksskolen í Kristianíu
(Osló). Eftir inntökupróf var hann tekinn í
2. bekk og stundaði nám þar frá janúar til
vors 1898, en tók ekki próf.
Eftir tæplega eins árs dvöl í Noregi hélt
hann til Danmerkur, hóf nám við Búnaðar-
háskólann í Kaupmannahöfn haustið 1898
og lauk þaðan kandídatsprófi fyrstur ís-
lendinga, með ágætum vitnisburði, vorið
1900. Næsta ár stundaði hann sérnám í bú-
fjárrækt, einkum kynbótafræði, við sama
skóla og fékk til þess styrk frá konung-
lega, danska landbúnaðarfélaginu og Bún-
aðarfélagi íslands. Ferðaðist hann þá einn-
ig í sama tilgangi um Norðurlönd.
Flaustið 1901 fékk hann framhaldsstyrk
frá sömu félögum til þess að kynna sér
markað fyrir íslenskar landbúnaðarafurðir í
Bretlandi. Dvaldi hann fyrst í landbúnaðar-
héruðum í nágrenni við Lundúni, en síðar
í Edinborg og nágrenni alls um fjögurra
mánaða skeið. Fllustaði hann meðal annars
á búfjárræktarfyrirlestra við háskólann í
Edinborg, en í nágrenni hans kynnti hann
sér búrekstur og markaðsmál.
Guðjón kom heim til íslands úr þessari
rúmlega fjögurra ára námsför sinni í mars
F R E Y R
849