Freyr - 01.12.1977, Side 24
JÖN VIÐAR JÓNMUNDSSON:
Sauðfjárlitir
Fjölbreytni í litum er eitt af séreinkennum og
kostum islenska sauðfjárins.
★
Nákvæmar upplýsingar um skiptingu fjár-
stofnsins eftir litum eru ekki fyrir hendi, hins
vegar er fengin með rannsóknum staðgóð
þekking á því hvernig litirnir erfast.
★
Sú þekking kemur bændum til góðs við rækt-
unina, og má ætla að í framtiðinni aukist
ávinningur bænda af því að framleiða gærur
og ull með hinum fjölbreyttu litum.
Eitt af sérkennum íslenska sauðfjárkynsins
er hin mikla fjölbreytni lita.
Ekki liggja íyrir nákvæmar upplýsingar
um hlutdeild einstakra lita í fjárstofninum,
en Stefán Aðalsteinsson hefur út frá upp-
lýsingum um ullarmagn frá árunum 1970—
1972 áætlað, að um 20% af fénu séu með
öðrum lit en hvítum.
Gerð hefur verið talning á lit lamba í
fjárræktarfélögunum. Notaðar voru upplýs-
ingar um öll lömb, sem komu til uppgjörs
í fjárræktarfélögunum hjá Búnaðarfélagi ís-
lands haustið 1976. Til þess að lömbin
væru talin, þurftu minnst 60% lamba á
búinu að hafa skráðan lit. Samtals voru
það 134.543 lömb, sem þannig fengust upp-
lýsingar um lit á. í töflu 1 er fjöldi lamba
af einstökum litum í einstökum landshlut-
um. Heildarniðurstöðurnar gefa eftirfarandi
hlutfallslega skiptingu:
Hvít 84,18%
Grá 5,72%
Svört 5,02%
Mórauð 1,77%
Grámórauð 0,38%
Botnótt 0,92%
Goltótt 0,52%
Flekkótt 1,50%
Eins og fram kemur í töflu 1 er litur
nokkuð breytilegur á fé eftir landshlutum,
en þó enn meiri eftir félögum. í tveimur
félögum er innan við helmingur lambanna
hvítur. í Sf. Hlíðarhrepps eru 43,5% af 2.264
lömbum hvít og í Sf. Víkingi, Dalvík, 47,4%
af 291 lambi hvít. Fæst eru mislit lömb í
Sf. Sléttunga, þar sem 99,5% af 1391 lambi
860
F R E Y R