Freyr - 01.12.1977, Side 29
starfsemi þess lá alveg niðri. Frá 1928 starf-
aði rjómabúið bæði sumar og vetur, uns
starfsemi þess lagðist að fullu niður haustið
1952.
í húsakynnum rjómabúsins var einnig
starfrækt pöntunarfélag frá árinu 1928 og
allt til 1969, eða í rúmlega 40 ár, þar af í
17 ár, eftir að rjómavinnslu lauk að fuliu,
og síðasta rjómabússtýran, Margrét Júníus-
dóttir, veitti þeirri starfsemi forstöðu.
Framleiðsla rjómabúsins á Baugsstöðum
frá stofnun þess og til ársins 1916 var um
122 smálestir af smjöri, er seldust á 233
þúsund krónur, og fór öll framleiðsla þess
tímabils á Bretlandsmarkað. En heildar-
framleiðslan frá 1905 til 1948 var um 260
smálestir, er seldust fyrir um 886 þúsund
krónur. Auk þess var þarna framleitt nokk-
uð af ostum, og rjómasala átti sér stað í 2
eða 3 ár af starfstímanum.
Félagssvæði rjómabúsins á Baugsstöð-
um var upphaflega Stokkseyrar- og Gaul-
verjabæjarhreppar og hluti of Villingaholts-
hreppi. Félagar í rjómabúinu voru fyrsta
árið 48. Þeir urðu flestir 1913 94. Þeim
fækkaði mjög um og upp úr 1930, er Mjólk-
urbú Flóamanna tók til starfa. Þeir voru
1934 44. Þeir voru 1937 26, 1944 voru þeir
8 og síðustu árin munu þeir hafa verið þrír.
Hluti af fundargerðabókum búsins hefur
ekki fundist, en fundargerðabók þess frá
árunum 1915—1937 er varðveitt.
Formennsku gegndu þessir menn, og í
þeirri röð, sem hér greinir:
Ólafur Árnason, kaupmaður á Stokkseyri,
Einar Pálsson, prestur í Gaulverjabæ,
Jón Jónsson, bóndi á Loftsstöðum,
Gísli Pálsson, bóndi í Hoftúni,
Ólafur Gunnarsson, bóndi á Baugsstöðum,
Bjarni Júníusson, bóndi í Syðraseli.
Þessir menn eru allir látnir að undan-
skildum einum, Ólafi Gunnarssyni.
Forstöðukonur eða rjómabússtýrur, eins
og þær voru ævinlega nefndar, voru þessar:
Margrét Jónsdóttir frá Sandlækjarkoti,
1905—1906,
Ragnheiður Hallgrímsdóttir frá Kalastöðum
á Stokkseyri, 1907—1915.
Guðmunda Ólafsdóttir frá Björk í Flóa,
1916—1918,
Tréílát, flest noluS við
matargerð úr mjólk: askur,
kútur, kanna og skjóla,
skyrgrind og trog eru á
gólfinu. Á hillu eru smjörmót
og könnur. Allt frá því fyrir
tíma rjómabúanna.
F R E Y R
865