Freyr - 01.12.1977, Qupperneq 30
Builustrokkur.
Borghildur Magnúsdóttir frá Arabæ í Flóa,
1919—1924,
Sigurlína Högnadóttir frá Vík í Mýrdal, 1926.
Margrét Júníusdóttir frá Syðraseli í Stokks-
eyrarhreppi frá 1928, og þar til starfsem-
inni lauk.
Mér þykir hlýða að fara hér að lokum
nokkrum orðum um líf og starf síðustu
rjómabússtýrunnar, Margrétar Júníusdótt-
ur, svo mjög sem hún helgaði rjómabúinu
á Baugsstöðum krafta sína og umhyggju.
Margrét Júníusdóttir fæddist 19. nóvem-
ber 1882 að Syðraseli í Stokkseyrarhreppi.
Foreldrar hennar voru Júnís Pálsson, bóndi
þar, og unnusta hans, Ingveldur Erlends-
dóttir, en móður sína missti Margrét af
slysförum fáum vikum eftir að hún fæddist.
Hún ólst síðan upp hjá ömmu sinni, Mar-
gréti Gísladóttur á Syðraseli.
Fyrstu kynni Margrétar af rjómavinnslu í
rjómabúi voru þau, að hún var aðstoðar-
stúlka í rjómabúinu á Baugsstöðum sum-
arið 1907. Þá um haustið íór hún til náms
í Mjólkurskólanum á Hvítárvöllum og lauk
þaðan prófi á næsta vori, 1908. Hún var
við íramhaldsnám í mjólkurfræðum í Dan-
mörku í Lögstrup Mejeri á Jótlandi á árun-
um 1911—12. Hún var einnig við nám í
Kvennaskólanum í Reykjavík veturinn 1909
10. Heimili sitt átti hún jafnan hjá frænku
sinni og uppeldissystur, Þórdísi Bjarna-
dóttur, og manni hennar, Jóni Adolfssyni,
kaupmanni í Vestri-Móhúsum á Stokkseyri.
En sumarstarf hennar var ævinlega, frá því
hún lauk námi í mjólkurskólanum, bundið
við rjómabúin. Hún var rjómabússtýra í
Þykkvabæ í Rangárvallasýslu 1908—21, við
Hróarslæk í Flóa 1922, við Hofsá í Eyja-
fjallasveit 1923—27 og í rjómabúinu á
Baugsstöðum frá 1928—52 og síðan for-
stöðukona pöntunarfélagsins þar til 1969.
Margrét andaðist á sjúkrahúsi í Reykjavík
17. ágúst 1969 eftir stutta legu, 86 ára að
aldri.
Það er engum efa undirorpið, að Margrét
hefur starfað lengur en nokkur annar við
rjómabúin hér á landi, því að starfstími
hennar beint við þau var frá 1907—52, eða
45 ár. En einnig má bæta við þeim 17 árum,
sem hún þar á eftir dvaldi í Rjómabúi
Baugsstaða og sá um það að varðveita
húsið og tækin með öðrum þeim atvinnj'.-
rekstri, er hún veitti þar forstöðu, og þá er
starfstími hennar helgaður rjómabúunum
orðinn 62 ár. Öll störf Margrétar við rjóma-
búin voru unnin af sérstakri alúð og vand-
virkni, og gilti það sama um sjálfa fram-
leiðsluna sem og reikningshald og meðferð
fjármuna. Hlaut hún fyrir þetta sérstaka
heiðursviðurkenningu frá Búnaðarfélagi ís-
lands 1945. Margrét Júníusdóttir var mikil-
hæf kona og ógleymanlegur persónuleiki
öllum þeim, sem af henni höfðu kynni.
Henni var það sérstakt áhugamál að varð-
866
F R E Y R