Freyr - 01.12.1977, Qupperneq 32
SKÚLI HAUKSSON:
V etrar geymsla
á landbúnaðarvélum
Vetrargeymsla landbúnaðarvéla og tækja
er afar mikilvægt, fjárhagslegt atriði fyrir
hvern bónda. Skemmdir, sem vélar geta
hlotið, ef þær hafa ekki verið nægilega
varðar, áður en þær voru settar í vetrar-
geymslu, geta verið mjög kostnaðarsamar
og það, sem er jafnvel enn verra, að vél-
arnar eru ekki nothæfar, þegar til þeirra á
að taka. Oft hafa hreyfihlutir véla festst í
geymslu og afleiðingin því vélabrot, þegar
vélin er tekin í notkun.
Stundum hafa bændur verið sakaðir um
hirðuleysi gagnvart vélum, og að þeir láti
þær grotna niður af ryði. Hvað sem um það
má segja, þá er það staðreynd, að nægilega
stórar vélageymslur í sveitum eru fátíðar,
enda er það fjárhagslega ofviða hverju
meðalbúi. Bændur hafa því neyðst til þess
að geyma flestar eða jafnvel allar sínar
vélar undir berum himni. Þótt vélar séu
geymdar úti, þarf það ekki að þýða það,
að þær skemmist af veðrunaráhrifum, því
að með réttri meðhöndlun er hægt að kom-
ast hjá því. Ef réttri meðhöndlun er ekki
beitt, geta jafnvel vélar, sem geymdar eru
undir þaki, skemmst, t.d. vegna rakans í
loftinu eða aðeins vegna þess, að vélin
hefur ekki verið nægilega hreinsuð.
Rækileg hreinsun er fyrsta stigið í því að
verja vélarnar og tæki gegn ryði og tær-
ingu. Hvorki málning eða ryðvarnarefni
eyða ryði, sem þegar hefur myndast, og
þau veita enga vörn, ef þau eru borin á
óhreina fleti. Þess vegna verður að hreinsa
allt ryð og óhreinindi, áður en ryðvörnin
hefst.
Næsta stigið í ryðvörninni er að athuga
ástand málningarinnar. Framleiðendur véla
mála ekki framleiðslu sína eingöngu vegna
útlitsins heldur einnig vegna þess, að máln-
ingin er góð ryðvörn. Ef málningin er í góðu
ásigkomulagi, þarf aðeins að hreinsa burt
öll óhreinindi af yfirborðinu, en ef betrum-
bæta þarf málninguna, verður að hreinsa
þá fleti mjög vel, þannig að allt ryð sé
fjarlægt, en síðan málað yfir.
Suma vélarhluta þýðir þó ekki að mála,
og eru þar helstir núningsfletir og bitfletir.
Slíkum flötum verður að halda gljáandi
hreinum, til þess að þeir vinni vel, og eina
ráðið til þess að verja þá, er að setja á
þá ryðvarnarefni, sem ver þá í geymslu, en
auðvelt eða óþarfi að taka það af, þegar
vélin er tekin í notkun aftur. Venjuleg smur-
olía eða feiti er stundum notuð í þessu
augnamiði. Oftast er það betra en ekkert,
en samt sem áður veita þessi efni ekki eins
haldgóða vörn og réttu ryðvarnarefnin gera.
Besta aðferðin til að verja gljáða vélarhluta
er að nota á þá efni, sem sérstaklega eru
til þess ætluð. Það er ekki síður mikilvægt
að velja rétt ryðvarnarefni heldur en réttan
868
F R E Y R