Freyr - 01.12.1977, Page 34
Leiðbeiningar við
Eftirfarandi skal tekið íram, þegar pantanir
eru gerðar:
1) Tilgreina skal tegund og árgerð vélar.
2) Serialnúmer dráttarvélar (plata í mæla-
borði).
3) Tegund gírkassa, t.d. 6 gíra, 8 eða multi-
power).
4) Serialnúmer vélar (plata á vél).
Athygli skal vakin á því, að á síðustu
árum hafa orðið miklar, tæknilegar breyt-
ingar á dráttarvélum, sem alls ekki eru
bundnar við árgerð heldur hafa þær komið
varahlutapantanir
smám saman. Því er nauðsynlegt að hafa
tiltækar ofangreindar upplýsingar, þegar
pöntun er gerð, svo ekki verði hætta á
rangri afgreiðslu varahluta, sem í flestum
tilfellum kemur sér mjög illa fyrir viðkom-
andi aðila. Annað ber að hafa í huga, þegar
vél er lagt að hausti, að yfirfara hana og
athuga, hvort þörf sé á varahlutum fyrir
næsta vor. Ef svo er, þá er rétt að gera
pöntun strax og taka fram, hvenær þér
viljið fá hana afgreidda. Þetta atriði er
mjög mikilvægt og tryggir, að vélin verður
strax tilbúin til vinnu næsta vor.
gírkössum og vökvakerfum innvortis vernd
gegn ryði og tæringu. RUST-BAN 623, sem
hefur sömu þykkt og vélarolía SAE 30, er
fyrst og fremst notað til að verja innvortis
alls konar aflvélar, t.d. bílvélar og traktors-
vélar, er geyma þarf í langan tíma. RUST-
BAN 337 hefur þykkt eins og vélarolía 10 w
og er helst notað til þess að verja vökva-
kerfi, loftpressur og gírkassa, sem geyma
þarf í lengri tíma. Báðar tegundirnar eru
mjög áhrifaríkar við að hreinsa að innan
þær vélar, þar sem kælivatn eða annað
vatn hefur komist í smurolíuna.
RUST-BAN 337 og 623 mynda smur-
himnu, sem þornar ekki eða rennur af, og
þessi himna gerir slagavatn og súrbruna-
efnl óskaðleg.
RUST-BAN 337 eða 623 er sett á vélarnar
og látið hringrása rækilega, þannig að allir
innfletir vélanna verði rakir og fái á sig
ryðvarnarhimnu, sem efnið myndar. Annað
hvort er RUST-BAN tappað strax af eða
það látið vera á, þar til vélin er tekin aftur
í notkun, en í báðum tilfellum er nauðsyn-
legt að setja aðvörunarmiða á vélina, sem
segir, að þessi vél sé með ryðvörn og á
hana verði að setja rétta ESSO smurolíu,
áður en hún sé tekin í notkun.
Notkunaraðferðir.
Aðeins, ef réttum aðferðum er beitt og verk-
ið framkvæmt samviskusamlega, má vænta
árangurs, að öðrum kosti er bæði pening-
um og tíma sóað. Þegar tæki eru ryðvarin,
getur þurft að nota nokkrar tegundir af
ryðvarnarefnum, en oftast er komist af með
aðeins eina.
Hér á eftir verður fjallað um aðferðir,
sem vænta má góðs árangurs af.
Sumir halda því fram, að hægt sé að
komast hjá tæringarskemmdum í vélum,
með því að setja þær smástund í gang eða
snúa með handafli öðru hverju, meðan á
geymslunni stendur. Þessi aðferð er verri
en engin, því síendurteknar gangsetningar
og vélin látin ganga aðeins stutta stund í
einu auka tæringarmyndun að mun og or-
saka auk þess verulegt slit, því á þeim
tíma, sem líður á milli gangsetninga, rennur
öll smurolía af slitflötunum niður í tönnun-
um.
Árangursrík aðferð við að verja vélar er
þannig:
Bensínvélar:
1. Látið vélina ganga, þangað til smurolía
er orðin sæmilega heit, stöðvið þá vélina
og tappið olíuna af.
870
F R E Y R