Freyr - 01.12.1977, Síða 36
5. Stöðvið vélina, hreinsið lofthreinsarann
og skiptið um síufyllingu eða endurnýið
olíuna á honum, eftir því hvort við á.
Límið því næst plast ryrir loftinntak, út-
blástursrör og öndun sveifarhúss. Tæm-
ið og skolið út kælikerfið, ef á því er
enginn frostlögur eða hann orðinn of
gamall (meira en ársgamall). Setjið þá á
kælikerfið blöndu af vatni og frostlegi
(40% af frostlegi verja að -r- 24°C og
veita ryð- og tæringarvörn). Hengið á
áberandi stað aðvörunarmiða, sem seg-
ir, að á vélinni sé ryðvarnarolía, og
áður en vélin sé tekin í notkun, verði að
tappa hana af og setja í staðinn viðeig-
andi smurolíu. Hins vegar er ekki þörf
á að tappa blönduna af eldsneytisgeym-
inum, því hún er ágætis eldsneyti.
Gírkassar:
Tappið olíuna af, sem fyrir er. Setjið í stað-
inn, að hæfilegu marki, RUST-BAN 623 og
látið gírkassan snúast án álags. Við þetta
mun RUST-BANið flæða um alla innfleti
gírkassans. Hengið á áþerandi stað aðvör-
unarmiða, sem segir, að áður en gírkassinn
sé tekinn í notkun aftur, verði að tappa
RUST-BANið af og setja viðeigandi olíu í
staðinn.
Vökvakerfi:
Tappið olíuna, sem er á vökvakerfinu, af
og setjið í staðinn RUST-BAN 337. Látið
því næst vökvakerfið vinna án álags, þann-
ig að RUST-BANið þerist um allt kerfið.
Hengið á áberandi síað viðvörunarmiða,
sem segir, að áður en tækið sé tekið í
notkun á ný, verði að tappa RUST-BANið
af og setja í staðinn viðeigandi olíu.
Landbúnaðarvinnuvélar:
Ekki verður hægt að gefa hér leiðbeiningar
um meðhöndlun allra landbúnaðarvélateg-
unda, en af þeim alhliða leiðbeiningum,
sem hér fara á eftir, geta bændur sjálfir
skipulagt aðferðir, er best henta öllum
þeirra mismunandi iækjaþúnaði.
Eins og áður var sagt, er tilgangslaust
að setja ryðvararefni yfir skít eða önnur
óhreinindi, og er það því sóun, bæði á tíma
og verðmætum. Ryðvarnarefni, meðhöndl-
uð á réttan hátt, koma í veg fyrir ryðmyndun
en eyða ekki ryði, sem þegar hefur mynd-
ast. RUST-BAN 392 smýgur undir vatn, en
málmfletirnir, sem ryðverja skal, verða samt
sem áður að vera hreinir, þegar RUST-BAN-
ið er borið á. Fyrsta atriðið við að ryðverja
tækið er því rækileg hreinsun. Síðan er
hægt að úða hlutinn með RUST-BAN 392,
og ef geymslan á aðeins að vara í nokkrar
vikur, eða ef hluturinn er geymdur inni, þá
nægir þessi aðferð alveg.
Hins vegar, ef geyma á hlutinn úti, jafnvel
í marga mánuði, ætti að setja lag af RUST-
BAN 396 yfir RUST-BAN 392. Ekki er þó
nauðsynlegt að nota RUST-BAN 392 í þessu
tilviki, og ef hluturinn, sem ryðverja á, er
sæmilega þurr, er RUST-BAN 396 eingöngu
notað. Hægt er að úða RUST-BAN á, en
einnig er hægt að bera það á með pensli
og jafnvel að dýfa litlum hlutum ofan í það.
Varast skal opinn eld, þegar RUST-BAN 392
og 396 er meðhöndlað, og einnig þarf góð
loftræsting að vera, því að í RUST-BANinu
er þynningarefni, sem gerir það að verkum,
að auðvelt er að bera efnið á eða sprauta
því, en síðan gufar þynningarefnið upp og
eftir verður mjúk og sterk ryðvarnarhimna.
Ef þörf er á því að fjarlægja himnuna, er
auðvelt að gera það með tusku vættri í
terpentínu (White Spirit) eða steinolíu. Oft-
ast er þó engin þörf á því að fjarlægja ryð-
varnarefni, þó að vélin sé tekin í notkun.
Smyrjið vel alla smurkoppa.
AÐVÖRUN:
RUST-BAN 392 og 396 ætti ekki að bera á
hluti gerða úr efnum eins og t.d. gúmmíi,
korki, pappír, vefnaði eða plasti, því sum
þessara efna gætu skemmst við það.
872
F R E Y R