Freyr - 15.10.1981, Blaðsíða 34
Gunnar Ríkharðsson
og
Jón Viðar Jónniundsson
Meðgöngutími hjá íslenskum kúm
Ætlunin er íþessari grein að skýrafrá niðurstöðum rannsóknar sem gerð hefur verið á lengd
meðgöngutíma hjá íslenskum kúm.
Upplýsingar þœr sem notaðar voru við rannsóknina voru fengnar úr skýrslum nautgripa-
rœktarfélaganna árin 1976 til 1979. ískýrsluhaldinu er skráning áfangdegi kúnna frjáls og
þar er mjög mikið um að þessar upplýsingar séu ekki skráðar. í þessa rannsókn voru því
valdar upplýsingar frá búum þar sem Ijóst virtist að almennt vœri þetta atriðifært í skýrslu.
Þessar upplýsingar voru frá samtals 65 búum og náðist þar í upplýsingar um lengd með-
göngutíma í 4034 tilvikum.
Meðgöngutíminn reyndist til
jafnaðar vera 286 dagar. Þetta er
allnokkru lengri meðgöngutími en
280 dagar, sem almennt virðist
hafa verið reiknað með hér á landi
til þessa. Aftur á móti eru þessar
niðurstöður í rnjög góðu samræmi
við niðurstöður fyrir þau naut-
gripakyn á Norðurlöndum, sem
almennt eru talin skyldust íslensk-
um kúm.
Enginn munur virtist á lengd
meðgöngutíma frá einu ári til ann-
ars. Munur milli landshluta og frá
einu búi til annars virtist einnig
hverfandi. Langtum stærsti hiuti
breytileika í lengd meðgöngutím-
ans virtist munur milli einstakra
kúa á sama búi.
Nokkur munur reyndist á með-
göngutíma kúnna eftir burðar-
mánuðum. Lengst gengu kýrnar
með sem báru í febrúar, en með-
göngutíminn var stystur hjá októ-
berbærunum. Þessi munur milli
burðarmánaða var um tveir dagar.
Áhrif burðarmánðarins voru aftur
á móti fremur óregluleg. Til að
bera þetta saman var árinu skipt í
dimma og bjarta mánuði, en slík
skipting sýndi engan mun.
Greinilegt var að yngri kýrnar
gengu skemur með en fullorðnar
Jón Viðar Jónmundsson.
kýr. Til jafnaðar má reikna með að
kvígur gangi með fyrsta kálf í 284
daga, síðan gangi kýrin með annan
kálf til jafnaðar degi lengur, en úr
því virðist lítill munur eftir aldri
kúnna.
Skýrt kom fram að það hefði
áhrif á lengd meðgöngutíma hjá
kúnni hvort hún gekk með naut
eða kvígu. Þannig ganga kýrnar til
jafnaðar réttum degi lengur með
nautkálf en kvígukálf. Tvíkelfinga
virtust kýrnar ganga með um fimm
dögunt skemur en eitt fóstur.
í erlendum rannsóknum hefur
komið í ljós að lengd meðgöngu-
Gunnar Ríkharðsson.
tímans má rekja bæði til áhrifa
móðurinnar og áhrifa fóstursins.
Auðveldast er að sýna fram á slíkt í
blendingstilraunum þar sem æxlað
er saman mjög óskyldum naut-
gripakynjum. Slíkar rannsóknir
sýna að arfgerð fóstursins virðist
ráða meiru um lengd meðgöngu-
tímans en arfgerð móðurinnar.
Til að varpa ljósi á þetta var
metið arfgengi fyrir lengd með-
göngutímans. Þegar við lítum á
meðgöngutímann sem eiginleika
hjá móðurinni var arfgengi 0,13,
en ef litið var á meðgöngutímann
sem eiginleika fóstursins reyndist
842 — FREYR