Freyr - 01.01.1983, Side 19
Ragna Hróbjartsdótlir hlúir að jarðarberjaplöntum á Hvanneyri. (Ljósm. M.Ó)
ur óneitanlega marga kosti. Þessir
eru helstir:
1. Engin vinna verður við illgres-
iseyðingu ef svart plast er
notað.
2. Berin skemmast síður ef þau
liggja í plasti, en ef þau liggja á
moldinni.
3. Auðveldara er að hirða berja-
plönturnar vegna þess að
smáplönturnar á renglunum
geta ekki skotið rótum í gegn-
um plastið.
I hverju beði hafa verið tvær
raðir af jarðarberjaplöntum, á
milli raða hafa verið 50 cm og milli
plantna 40—50 cm.
Að sumrinu hefur glært plast
verið haft yfir beðunum. Plast-
dúknum hefur verið haldið upp af
tveggja metra löngum rafmagns-
rörum úr plasti. Slíkum plastbúr-
um hefur verið lýst oftar en einu
sinni í Frey. (Björn Þorsteinsson,
1978 og Sigurður Þráinsson,
1981). Líkur benda til að á Hvann-
eyri hafi glæra plastið verið sett of
seint yfir beðin á vorin.
” Plönturnar eru gróðusettar að
vorlagi. Sumarið eftir eru öll blóm
slitin af þeim. Næstu þrjú ár eru
plönturnar látnar bera jarðarber.
Eftir því sem þær verða eldri dreg-
ur úr berjasprettunni og berin
smækka. Þetta hefur komið
greinilega fram á Hvanneyri. Arið
1981 voru berin af tveggja ára
Njös-Glima plöntum að meðaltali
7,67 g en af þriggja ára plöntum
6,44 g. Samsvarandi tölur af Jons-
ok voru 9,08 g og 8,21 g.
A Hvanneyri hefur ekki orðið
vart við sjúkdóma á jarðarberja-
plöntum eða berjum, en skógar-
þrestir hafa verið aðgangsharðir
og spillt uppskeru. Þess vegna
hefur orðið að leggja net yfir búr-
in til að koma í veg fyrir að þrestir
komist inn í þau. Þetta skapar
aukavinnu og kostnað. Margir
sem rækta jarðarber kvarta undan
grámyglu, (Óli Valur Hansson,
1978). Þegar svart plast er haft
undir berjunum dregur það úr
hættu á mygluskemmdum. Verði
grámyglu vart er rétt að tína strax
öll sjúk ber, til að draga úr smit-
un. Ef mikið er um grámyglu
verður að úða með mygluvarnar-
efni.
Á Hvanneyri hafa fáar plöntur
dáið að vetrinum. Til að vernda
plönturnar fyrir frosti hefur verið
lagt heymoð yfir þær að haustinu,
en óvíst er hvort það er nauðsyn-
legt.
Kostnaður við ræktun jarðarberja.
Það er ekki unnt að fullyrða að
ræktunn jarðarberja beri sig ef
reiknað er með að greidd séu
venjuleg daglaun. Hér á eftir
verður reynt að reikna lauslega
tekjur og gjöld vegna jarðarberja-
ræktunar undir plastskýli yfir eitt
ræktunarskeið, sem er 4 ár á
Hvanneyri. Gert er ráð fyrir því
að fyrsta árið séu engin ber, en
síðan séu plönturnar látnar bera
Tafla 3. Hundraðshlutar af heildaruppskeru berja, sem tínd höfðu verið fyrir 10. ágúst og 30. ágúst.
Njös-Glima Zephyr Jonsok Senga-Sengana
10. ág. 30. ág. 10.-ág. 30. ág. 10. ág. 30. ág. 10. ág. 30. ág.
1978 .................................. 40% 84% 7% 63% 1% 33%
1979 ................................... 3% 40% 0 5% 0 7%
1980 .................................. 81% 95% 69% 83% 70% 91%
1981 .............................. 26% 84% 53% 94% 34% 87% 13% 76%
1982 .............................. 24% 76% 25% 74% 21% 79% 10% 53%
FREYR — 11